21.10.1982
Sameinað þing: 5. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í B-deild Alþingistíðinda. (79)
18. mál, stóriðnaður á Norðurlandi
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Sú till. sem hér liggur fyrir er allra góðra gjalda verð og auðvitað er nauðsyn á því að efla atvinnulíf á Norðurlandi eystra og kanna leiðir í þeim efnum, en þar sem inn í þessar umr. hafa blandast hugmyndir manna um að staðsetja álver í Eyjafirði tel ég ástæðu til að segja nokkur orð.
Það er gert lítið úr því hér, að á Norðurlandi er verulegur ágreiningur um þessi mál. Það er mikill fjöldi Norðlendinga andvígur því að setja niður álver í Eyjafirði og telur að það sé mjög til að spilla öllu náttúrufari, þar verði mikil mengun. Sér þetta fólk mjög mikla annmarka á því að eyðileggja þá náttúrufegurð sem í Eyjafirðinum er.
Ef til vill er ekki tímabært að velja álveri stað á tímum er mikil kreppa ríkir í áliðnaði og hvert áliðjuverið fer á hausinn á fætur öðru víðs vegar um heiminn, en þó hygg ég að ástæða sé til að menn geri það upp við sig hvar næsta álver verður staðsett þegar bjartar horfir um þennan iðnað. Það er nú svo, að stundum gengur vel og stundum illa í þessum iðnaði og vafalaust er að álver munu skila hagnaði þegar frá líður.
Í áliti staðarvalsnefndar er bent á allnokkra staði þar sem hægt væri að staðsetja álver. Þar er t.d. bent á hvað það hafi ótvíræða kosti að staðsetja álver í Helguvík eða Vatnsleysuvík, þ.e. á Suðurnesjum, og verð ég að segja það sem mína skoðun, að ég tel að það sé hiklaust rétt að næsta álver verði staðsett á þeim slóðum. Þar er ekki ágreiningur um þessi mál, menn vilja fá ný starfstækifæri, enda er það svo á þessum slóðum að það þarf að skapa 150 ný starfstækifæri á ári fyrir fólk á Suðurnesjum. Þar eru góðar aðstæður til iðnþróunar, bæði hvað varðar framboð á orku og hráefnum, og því mælir allt með því að þannig verði á málum haldið. En við eigum ekki að neyða fólk til þess að fá yfir sig stóriðju, fólk sem ekki vill stóriðju, og ástæða er til að taka tillit til þess þegar menn hugsa þannig.
Ég hefði líka haldið, að iðnrh. lýsti því hér yfir að næsta álver yrði staðsett á Suðurnesjum vegna þess að í stjórnarsáttmálanum, reyndar undir kaflanum um utanríkismál, er talað um að efla atvinnulíf á Suðurnesjum, reyna að gera öflugt átak í atvinnumálum á Suðurnesjum. Það hefur ekki enn verið gert. Þar hefur ekkert verið gert í þeim efnum. Því hefði verið ástæða fyrir iðnrh. að lýsa því yfir að rétt væri að næsta álver yrði staðsett á Suðurnesjum.
Það er líka fyrirsjáanlegt, að þegar við höfum byggt flugstóð, sem verður gert vafalaust, og búið verður að reisa olíutanka í Helguvík verður mikill skortur á atvinnu, sem slíki stórfyrirtæki sem álver gæti leyst.
Ég tel líka, að það sé mjög varhugavert að íbúar á Suðurnesjum þurfi að vera háðir vinnu hjá varnarliðinu. Því mundi það auka jafnvægið ef slík stóriðja yrði staðsett þar.
Ég vil endurtaka það, að það er mikil nauðsyn á að kanna og athuga hvernig best verður brugðist við varðandi erfiðleika atvinnulífsins á Norðurlandi eystra. Það þarf að leysa þau mál, en við eigum ekki að þvinga menn til að taka stóriðju, — menn sem ekki vilja stóriðju.