08.12.1982
Neðri deild: 15. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1063 í B-deild Alþingistíðinda. (790)
Umræður utan dagskrár
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessa umr. mikið frá því sem þegar er orðið. Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson taldi mig fara með rangt mál um það sem ég kallaði útflutningsbótarétt, að bændastéttin ætti þar tiltekinn rétt í lögum. Hann taldi að þessi réttur væri ekki löghelgaður, heldur væri hér um heimild að ræða. Hann sagði: Að sjálfsögðu veit ráðh. hið sanna. — Ég get sagt hv. þm. Sighvati Björgvinssyni að ég veit hið sanna, en hann veit það ekki eða fer vísvitandi með rangt mál.
Ég ætla þess vegna að lesa lagagreinina eins og hún liggur fyrir. Hún er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Tryggja skal greiðslu á þeim halla, sem bændur kunna að verða fyrir af útflutningi landbúnaðarvara, en þó skal greiðslan vegna þessarar tryggingar ekki vera hærri en svarar 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar viðkomandi verðlagsár, miðað við það verð, sem framleiðendur fá fyrir afurðir sínar.
Hagstofa Íslands reiknar fjárupphæð þá, er ber að greiða framleiðendum vegna ákvæðis 2. mgr. þessarar greinar.“
Síðan segir í lögum þessum að ríkissjóður beri kostnað vegna þessara laga.
Ég tel rétt að þetta komi hér fram svo skýrt að ekki orki tvímælis, enda þótt þessi hv. þm. sé ekki inni í þingsalnum.
Hv. þm. taldi mjög athugavert og mjög stórt mál að þessi verðhækkun á búvöru kæmi fram á sama tíma og laun væru skert um helming til launþega. Hann gætti þess ekki að laun eru skert um helming til bænda einmitt á sama tíma og laun launþega.
Til þess að tefja ekki tímann skal ég ekki fara út í fleiri atriði í ræðu þessa hv. þm., sem væri þó full ástæða til að svara og það í alllöngu máli.
Ég vil aðeins geta ummæla í ræðu hv. þm. Páls Péturssonar, þar sem hann gat þess aðdregist hefði nokkuð á langinn framkvæmd varðandi svokallaða fækkun sauðfjár á s.l. hausti og í framhaldi af því að bætur hefðu orðið sama og engar. Um þetta vil ég láta þau orð falla, að bætur þær sem greiddar eru af ríkisvaldinu í þessu skyni eru í öllum greinum jafnmiklar og farið var fram á af hálfu Framleiðsluráðs landbúnaðarins og í sumum greinum verulega hærri. Þannig er ekki við ríkisstjórnina að sakast þótt hv. þm. Páll Pétursson telji að þessar bætur hafi verið minni en hann hefði sjálfur óskað.
Varðandi fsp. hv. þm. Péturs Sigurðssonar um hvað umfang landbúnaðarframleiðslunnar hefði aukist frá 1959, þá er ég ekki með þær tölur við hendina. Framleiðslan hefur vissulega vaxið, en þeir liðir, sem hann tók sérstaklega, svo sem hlunnindaliðir, loðdýraframleiðsla, hafa verið framreiknaðir óbreyttir að magni til, en aðeins með verðlagsbreytingum ár frá ári nú um langa hríð, þannig að það skekkir ekki þennan grundvöll.
Ég var ekki að kenna kaupmönnum í Reykjavík um landbúnaðarvöruverð. Hins vegar tók ég undir það með málshefjanda í þessari umr., að það hefði vakið athygli mína, og ég hef spurst sérstaklega fyrir um það og gert við það nokkra athugasemd, að smásöluverð hækkaði til að mynda á kjöti til muna meira að þessu sinni en heildsöluverðshækkuninni nam. Með þeim orðum var ég ekki beint að kenna kaupmönnum um það þó hækkun verði á þessari vöru, en staðreynd er að þeir fengu að þessu sinni meiri hækkun í sinn hlut en bændur.