09.12.1982
Sameinað þing: 28. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í B-deild Alþingistíðinda. (799)

Umræður utan dagskrár

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Hér hefur þetta mál verið rætt af nokkrum hv. þm. og það væri sannarlega ástæða til að koma að mjög mörgum atriðum úr þeirra máli, en ég mun aðeins einskorða mig við tiltölulega fá að þessu sinni, því að mál þetta á eftir að verða á dagskrá áframhaldandi, geri ég ráð fyrir, og tækifæri til að koma þá að einstökum þáttum málsins frekar.

Ég ætla ekki að fara að gefa hv. 12. þm. Reykv. neinar einkunnir fyrir hans málflutning. Ég eftirlæt þeim sem á hafa hlýtt að meta hann og þeim sem þingtíðindi lesa, þar á meðal það sem fram var borið af hans hálfu ítrekað varðandi sannsögli mína eða ósannsögli. Ég vil aðeins að því leyti vísa til þess, að í þeim viðræðum, sem fram hafa farið fjórum sinnum á þessu ári við fulltrúa Alusuisse til að reyna að brjóta ísinn fyrir samningaviðræður um endurskoðun samninga, hækkun raforkuverðs og fleira, hef ég ekki setið einn við borðið á móti fulltrúum Alusuisse, heldur hafa þar verið þrír aðrir með mér, þar á meðal formaður álviðræðunefndar, dr. Vilhjálmur Lúðvíksson, og þeir sem eru að bera mér á brýn ósannsögli í frásögnum af fundum nefndarinnar eru um leið að brennimerkja þessa menn og þessi vitni með sama hætti. Ég tel það vera nokkur tíðindi að slíkur málflutningur skuli vera hafður uppi hér á hv. Alþingi og aðdróttanir í minn garð og þeirra manna sem þarna hafa staðið að viðræðum með mér.

Ég vil einnig vekja athygli á því, að hv. þm. Guðmundur G. Þórarinsson er hér með ásakanir í minn garð fyrir að dráttur hafi orðið á því að Alusuisse hafi fengist að samningaborði. Hann er með ásakanir í þá átt, og undir það hefur verið tekið af fulltrúum stjórnarandstöðu, þó ekki með sama hætti, að það sé mér að kenna og málsmeðferð minni að ekki skuli renna í sjóð Landsvirkjunar nú þegar hærra gjald fyrir þá raforku, sem ÍSAL kaupir af Landsvirkjun, og menn eru að nefna hér upphæðir í því sambandi. Það eru ekki léttvægar aðdróttanir sem hér eru uppi hafðar.

Það er látið að því liggja að ég hafi einhvern sérstakan áhuga á því að halda þeirri nefnd, sem sett var á laggirnar í ágúst 1981 til samráðs um þessi mál milli stjórnmálaflokka í landinu, utan við samningaviðræður við Alusuisse, en hv. 12. þm. Reykv. veit mætavel og hv. 10. þm. Reykv. einnig, að viðræðum var siglt í strand af Alusuisse með því að aflýsa fundi snemma á þessu ári, nánar tiltekið 3. mars, sem ákveðinn hafði verið, og viðræðum einhliða riftað af hálfu Alusuisse þá. Það var við þær aðstæður sem ég óskaði eftir að fulltrúar félagsins kæmu til viðræðna við mig til að láta á það reyna að koma af stað samningaviðræðum. Síðan hef ég hitt formann framkvæmdastjórnar fyrirtækisins fjórum sinnum á þessu ári í þeim tilgangi. Hér hefur hv. 12. þm. Reykv. talað um 4–5 fundi á síðustu vikum. Það hafa verið haldnir tveir fundir, 22. nóv. og 6. og 7. des. s.l., og á þeim fundum hefur formaður álviðræðunefndar verið í umboði nefndarinnar og með samþykki hennar sem hennar fulltrúi á þessum fundum til þess að fylgjast milliliðalaust með því sem þar hefur fram farið, og hann er þar einnig til frásagnar. Ég eftirlæt svo hv. 12. þm. Reykv. að leggja öðrum orð í munn og rekja hér skoðanir manna úr þessari nefnd í þessum ræðustól í einstökum atriðum.

En meginatriðið, þegar metið er það frumhlaup sem hv. fulltrúi Framsfl. hefur staðið hér fyrir og sá óvinafagnaður sem hann er upphafsmaður að í þessari málsmeðferð, hlýtur að vera þetta: Stenst sú krafa hans að ég bæri fram umrædda tillögu hans, sem hann hefur hér farið mörgum orðum um, sem tillögu af Íslands hálfu inn í umræðurnar við dr. Müller, formann framkvæmdastjórnar Alusuisse, á þriðjudaginn var? Telur hv. 12. þm. Reykv. sig vera dómbæran á það, dómbærari en ég er, hvað skynsamlegt væri að gera við þær aðstæður sem þar lágu fyrir? Hann hefur raunar þegar svarað þeirri spurningu og hann hefur látið fylgja að hann kæri sig ekkert um að sitja aftan við iðnrh. í sambandi við meðferð þessa máls. Orð af slíku tagi lýsa kannske svolítið upp hugarheim þessa hv. þm., — og ég verð að undrast það nokkuð þegar ýmsir hv. þm. hér, a.m.k. tveir hv. þm., hv. 10. og hv. 12. þm. Reykv., eru að láta að því liggja að stjórnarfarsleg ábyrgð á þessu máli geti verið annars staðar en hjá því stjórnvaldi sem með málið fer að réttum lögum.

Þá vil ég enn og aftur víkja að efni þeirrar margumræddu hugmyndar sem hv. 12. þm. Reykv. gerði að úrslitakröfu að fram yrði sett kl. 16 á þriðjudaginn. Hvernig stóðu mál þá? Alusuisse hafði ekki aðeins neitað að fallast á nokkra raforkuverðhækkun að óbreyttum samningum að öðru leyti, heldur hafði fyrirtækið sett fram gagnkröfu af sinni hálfu um þrjú meginatriði sem algert skilyrði fyrir því að það tæki til athugunar hvort það treysti sér til að íhuga möguleika á að bjóða einhverja hækkun á raforkuverði — gegn því að á þessar þrjár kröfur þeirra yrði fallist af Íslands hálfu: Stækkun álversins í Straumsvík, nýr eignaraðili með 50% eignaraðild. — Ég hlýt af því tilefni að benda hv. þm. á að ég var ekki að segja að hans hugmynd hefði lotið að þessu, heldur að það væri hugmynd Alusuisse og krafa sem þarna lá fyrir um að fallist yrði á nýjan eignaraðila með 50% eignaraðild. — Þriðja atriði og kannske stærsta atriðið í þessu samhengi er að kaupskylduákvæði ÍSALs yrði aflétt niður að 50% marki. Inn í þetta samhengi gerir hv. þm. kröfu um að ég beri fram hans tillögu sem andsvar við þessu um 20% hækkun á raforkuverði til ÍSALs frá og með 1. febr. n.k. Raunar sagði hann í sjónvarpinu í gær, að eftir þann tíma og jafnvel fyrr mætti svo fara að tala um hækkað raforkuverð og endurskoðaðan raforkusamning, sem að hans dómi ætti þá að taka gildi 1. apríl. Það ætti að takast á tveimur mánuðum að ná niðurstöðu við Alusuisse.

Það var þetta sem ég var í upphafsræðu minni að benda á að væri útilokað, að fara að taka inn sjónarmið af þessu tagi við þessar aðstæður og lái mér hver sem vill. Hvernig hefði slík tillaga verið metin af gagnaðilanum? Hún hefði verið metin þannig, að við værum að fallast á hans kröfur, sem fram hefðu verið settar, og tefla þar á móti kröfu um 20% hækkun á raforkuverði. Ég benti á hvað það sem hér er um að tefla þýddi tekjulega séð. Einnig er hægt að leggja talnalegt mat, að vísu ekkert óyggjandi, á það hagræði sem hringurinn teldi sér að því að hafa á hendi yfirlýsingu um stækkun álversins og nýjan eignaraðila upp að 50%. Það er ekki lítið sem hv. 12. þm. Reykv. ætlar sér í þessum efnum. Hann gerir það að úrslitaatriði fyrir áframhaldandi samráði um þetta mál að þessi krafa hans væri borin fram af Íslands hálfu. Og hann er farinn úr nefndinni. Ég er ekkert hissa þó að hv. stjórnarandstæðingar komi hér upp á eftir, hv. þm. Kjartan Jóhannsson og hv. 10. þm. Reykv. Friðrik Sophusson, og segi að það sé nú lítill veigur orðið í þessum samráðsvettvangi og viðræðunefnd þegar fulltrúi stærsta ríkisstjórnaraðilans er hlaupinn fyrir borð. Ég er ekkert hissa á því. Og mér er fyllilega ljóst að það hlýtur að þurfa að endurskoða þau efni. Annað væri að sjálfsögðu óraunsætt. En ég ber áframhaldandi ábyrgð á þessu máli og ég ætla ekkert að hlaupast undan þeirri ábyrgð.

Þetta er í rauninni meginefnið í því sem hér er um deilt og þau hörmulegu mistök sem fulltrúa Framsfl. hafa orðið á í meðferð þessa máls. Það er kátt í höllinni í aðalstöðvum Alusuisse suður í Zürich í dag og það er ekki að ástæðulausu. Það er þess vegna sem ég bar fram þá von og ósk að Framsfl. íhugaði sinn gang í þessu máli og þá ósk bar ég einnig fram á ríkisstjórnarfundi í morgun. (SvH: Hverju svöruðu þeir?) Málið var á þeim fundi rætt, en engar ákvarðanir teknar eða niðurstöður urðu á þeim fundi. Ég geri ráð fyrir að menn þurfi nokkurn tíma til að meta stöðuna. Mín ætlan var sú, að málið kæmi þar til umr. og mats í öðru samhengi en nú liggur fyrir. Og um leið og ég el þá von í brjósti að Framsfl. beri gæfu til að endurmeta viðhorf sitt í þessu máli og fylki sér ekki í kringum það frumhlaup sem talsmaður hans í álviðræðunefnd hefur staðið fyrir er ég jafnframt viss um að þessi málafylgja er í hrópandi andstöðu við viðhorf meiri hluta þess fólks sem treyst hefur Framsfl. til forustu og veitt honum atfylgi til áhrifa á hv. Alþingi. Ég er nokkuð viss um að það á eftir að heyrast frá því fólki sem þar á í hlut, þar á meðal því fólki sem nú ber sívaxandi byrðar raforkukostnaðar vegna meðgjafar og niðurgreiðslu á raforku til álversins í Straumsvík.

Ég vil svo víkja að máli hv. 2. þm. Reykn., þó að það séu út af fyrir sig ekki margar aths. sem ég hef við hans mál að gera á þessu stigi. Ég er ekkert hissa á þeim orðum sem frá honum féllu inn í það samhengi og þá umr. sem fram hafði farið áður en hann tók til máls. Ég er ekkert hissa þótt hv. stjórnarandstæðingar hlakki yfir því að það liggur fyrir opinn ágreiningur af hálfu ríkisstjórnarflokkanna í sambandi við svo örlagaríkt og þýðingarmikið mál. En ég fagna því, að það kemur fram ákveðinn vilji af hálfu Alþfl. um að hafa samráð um málafylgju í þessu efni áfram og útiloka ekkert í því sambandi, ekki heldur einhliða aðgerðir ef á þarf að halda, til þess að ná fram okkar rétti.

En ég vildi aðeins koma að einu atriði, sem hv. 2. þm. Reykn. vék að í máli sinu, sem snertir forsögu þessa máls og tengist sumpart þeirri deilu sem við eigum í við Alusuisse, sem gerð var grein fyrir á hv. Alþingi í desembermánuði 1980, — og raunar eru í dag tvö ár liðin síðan ríkisstj. gerði samþykkt sem fól í sér kröfu um að endurskoðaðir yrðu samningarnir um álverið í Straumsvík. Hv. þm. talaði um að ég hefði hér borið fram upplýsingar eða staðhæfingar — ég man ekki nákvæmlega hans orð — um 47 millj. dala „svik í hafi“, held ég að hv. þm. hafi sagt, — „hækkun í hafi“ höfum við kallað það, — sem var mismunurinn á útflutningsverði súráls frá Ástralíu og innflutningsverði til Íslands á sömu vöru. Þar var aldrei nein staðhæfing uppi höfð um það í þeim umr. þá né síðar að þetta væri nákvæmlega sá hagnaður sem Alusuisse hefði stungið undan í reikningum sínum á þessu árabili, heldur einfaldlega að þessi munur lægi fyrir staðfestur, og hann hefur ekki verið vefengdur umfram 100 þús. dali sem reyndist vera samlagningarskekkja í talnadálkum sem þarna var um að ræða. Þessi „hækkun í hafi“ liggur fyrir og óvefengd sem slík af Alusuisse, þ.e. munur á fob-verði út úr Ástralíu og innflutningsverði til Íslands. Þeir hafa borið ýmislegt fram sem þeir vildu að þarna væri tekið með í reikninginn og Coopers & Lybrand, sem fóru yfir málin, komust að þeirri niðurstöðu að það mætti út af fyrir sig líta svo á að sumt af þeim málsbótum sem Alusuisse vildi færa fram sér til handa gæti komið til álita að taka með inn í þetta dæmi þannig að næmi allt að helmingi þeirrar upphæðar sem fyrir liggur sem „hækkun í hafi“. Og hver var einn af þáttunum sem þar komu til álita? Það voru farmgjöldin milli Ástralíu og Íslands. Og á hverju byggðum við tölurnar um farmgjöld hingað? Við byggðum þær á innflutningsgögnum undirrituðum af framkvæmdastjóra ÍSALs, núverandi formanni Verslunarráðs Íslands, sem staðfestu upphæð farmgjalda frá skipi til skips, sem kom með varninginn á þessu tímabili, en móðurfyrirtækið sá sig tilknúið, til að bæta sína stöðu varðandi „hækkun í hafi“, að bera fram kröfu um leiðréttingu á þessari upphæð farmgjalda um 5 millj. Bandaríkjadala — leiðréttingu á þeim upphæðum sem framkvæmdastjóri dótturfyrirtækisins hafði skrifað upp á. Það væri kannske eðlilegt að einhverjir leituðu til hans eftir skýringum á slíkri bókfærslu. Kannske gæti Verslunarráð Íslands fengið einhver ráð hjá hv. framkvæmdastjóra í sambandi við slíkt bókhald.

Hv. 2. þm. Reykn. talaði um að af þessari upphæð stæði nú bara eftir 1 millj. Bandaríkjadala sem skattkrafa, ef ég hef skilið hann rétt. Ég veit ekki hvaðan hv. þm. hefur þessar upplýsingar. Ég taldi mig hafa upplýst það hér í þingræðu um daginn, að þegar endurskoðunarfyrirtækið Coopers & Lybrand er búið að fara yfir verðlagningu á aðföngum til ÍSALs á árunum 1975–1981 er það mat þess að aðföngin séu verðlögð of hátt sem nemur nær 32 millj. Bandaríkjadala og afskriftir að auki sem nema röskum 4 millj. Bandaríkjadala eða samtals sé á þessu tímabili yfirverð á aðföngum plús oftaldar afskriftir sem nemi 36 millj. dala. Þetta eru á núverandi gengi hátt í 600 millj. íslenskra króna.

Í máli mínu hér áðan vék ég að inngangi þeirrar málafylgju, sem uppi var höfð í sjónvarpinu í gærkvöldi af fréttamanni sjónvarpsins, þar sem sagt var að iðnrh. hefði verið með staðhæfingar uppi um svik og rangfærslur Alusuisse á undanförnum tveimur árum sem næmi verulegum upphæðum. Iðnrh. væri með það uppi, svona rétt eins og þetta væru einhverjar óskatölur sem hann væri að grípa úr lausu lofti. Ég vil spyrja hv. þm. og fyrrv. fulltrúa í álviðræðunefnd: Ætla þeir að vefengja þessar niðurstöður, sem hafa verið fluttar til mín sem lokaniðurstaða þessarar endurskoðunar Coopers & Lybrand og mundu, ef teknar væru til endurákvörðunar á skatti, verða til hækkunar miðað við undanfarin sex ár sem nemur um 6 millj. Bandaríkjadala í endurákvörðuðu framleiðslugjaldi? Ég vil jafnframt rifja það upp af þessu tilefni, að mat Coopers & Lybrand er, að mati þeirra sem yfir hafa farið, mjög varfærið svo að ekki sé meira sagt, enda fyrirtækið reiðubúið að standa fyrir máli sínu fyrir hvaða dómstóll sem er í sambandi við sínar niðurstöður. Aðrir sérfræðingar, erlendir og innlendir, sem yfir þessi mál hafa farið, telja raunverulega að um mun meira yfirverð á aðföngum sé að ræða, sérstaklega á rafskautum, sem mundi hækka þessar fölur, tvöfalda þá tölu sem Coopers & Lybrand nota í sinni niðurstöðu, og hækka skattgreiðslukröfuna á ÍSAL um helming eða tvöfalda hana þannig að hún yrði nærfellt 12 millj. Bandaríkjadala. Ég held að hv. þm. eigi að festa sér þessar tölur í minni og átta sig á því, kannske betur en hefur mátt lesa hér út úr máli manna, að viðskiptaaðili okkar í Straumsvík er ekkert góðgerðarfyrirtæki, sem ætlar sér að leiðrétta hlut okkar Íslendinga með hægu móti, en er brynjaður gegn okkar kröfum um endurskoðun á raforkuverði á sama hátt og hann hefur að sjálfsögðu reynt að verjast því alþjóðlega endurskoðaða mati á verðlagi aðfanga sem fyrir liggur. Það er mikill barnaskapur, sem lesa má út úr málflutningi t.d. og sérstaklega hv. 12. þm. Reykv., að reikna megi með því sem auðveldum leik að ná fram hækkun á raforkuverði sem um munar á stuttum tíma frá þessu fyrirtæki út á góð orð. En það mátti nánast á honum skilja að það væri sjálfsagt að hlaupa inn á þann grundvöll sem þeir lögðu með bréfi sínu þann 10. nóv. s.l. Það væri kosmetisk aðgerð eða snyrting að fara fram á 20% leiðréttingu á raforkuverði í leiðinni. Ég verð að segja að mikil er trú þín, hv. þm.

Ég hef hér vikið frá því sem hv. 2. þm. Reykn. sagði og beint máli mínu til annarra, en hann kom þarna með tölur sem hefðu valdið misskilningi ef ekki hefðu verið leiðréttar.

Hv. 10. þm. Reykv., Friðrik Sophusson, kvartar mjög undan því að samráð við sinn flokk hafi verið ónóg og ekki í því horfi sem Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu hefði kosið. Slíkan málflutning geta menn haft uppi og hann hefur verið hafður uppi af hv. þm. Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu. Þeir hafa meira að segja flutt hér inn á Alþingi, í byrjun þessa þings, sérstaka þáltill. þar sem þeir leggja til allt aðra málsmeðferð. Hér hefur farið fram hluti af umr. um þá till. og ég þarf ekki annað en vísa til þess sem ég sagði við þá umr. og ætla ekki að lengja það mikið. Ég vildi þó aðeins segja við hv. 10. þm. Reykv. vegna orða hans um hversu dýrkeypt það sé að láta mig fara með þetta mál — ég held dag hvern og hvern mánuð: Það var ekki fyrr en á árinu sem leið sem það fór að heyrast úr munni og í málflutningi hv. þm. Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu að það væri einhver ástæða til að fá leiðréttingu á raforkuverði til álversins í Straumsvík. Þeir geta leitað með logandi ljósi í þingtíðindum, þessir hv. þm., í sambandi við umr. um stóriðjutillögur sínar hér til þess að færa sönnur á að þeir hafi staðið þar á verði. Það var búið að ræða það mál hér æ og ítrekað og skora á þá að slást í hópinn um þá kröfu. Það hafa þeir nú gert og ég þakka þeim fyrir að hafa gert það, en það verður líka að fylgja því máli eftir í reynd.

Ég fel að það gæti nokkurs misskilnings hjá þeim hv. þm. sem eru hér að gera ráð fyrir að hægt sé að færa ábyrgð á meðferð þessa máls frá því stjórnarvaldi sem með það fer yfir í hendur einhverra annarra sem eigi raunverulega að bera þar ábyrgð. Menn hljóta að gera greinarmun á samráði og pólitískri ábyrgð í máli. Um leið og ég segi þetta undirstrika ég þýðingu þess, að það sé uppi haft pólitískt samráð og menn reyni að feta saman sem lengst í máli sem þessu, en ábyrgðin hlýtur að vera hjá því stjórnvaldi og viðkomandi ríkisstj., að svo miklu leyti sem hún þarf að taka sameiginlega á máli, og það hlýtur að reyna á það í stórmálum sem þessum að menn reyni að vera þar samstíga. Hin pólitíska ábyrgð hlýtur að verða á sínum stað hver sem í ríkisstj. er og skipar viðkomandi ráðherrasæti.

Ég vil ljúka máli mínu, herra forseti, með þessum aths., sem hér hafa fram komið, um leið og ég endurtek þá von mína að menn nái, þrátt fyrir það sem hér hefur gerst síðustu sólarhringa, að stilla saman á nýjan leik, finna leið til samstöðu í þessu knýjandi hagsmunamáli okkar Íslendinga og taka á því saman með þeim hætti sem leiðir til árangurs. En þar getur reynt á að við þurfum að láta sverfa að með því að bera okkur saman um einhliða aðgerðir í málinu, og það kemur þá í ljós, ef menn ná saman um slíkt, og það vona ég að geti orðið, af því að það virðist vera þörf á slíku, hvort hinn erlendi viðræðuaðili sjái sitt óvænna og fallist á lágmarksleiðréttingu á samningsákvæðum og fallist á hækkun raforkuverðs svo að um muni. Á því er brýn nauðsyn. Ég hlýt að bera fram tillögur þar að lútandi, en ég er að sjálfsögðu reiðubúinn að hlusta á viðhorf annarra í því efni. Ég vil minna hv. alþm. á að við erum ekki einir vestrænna ríkja og lýðræðisríkja sem hafa þurft að grípa til slíkra ráða og hafa gripið til slíkra ráða með árangri. Ég gæti nefnt hér dæmi. Ég hef gert það áður í þingræðum og þau dæmi verða framreidd í tengslum við þá tillögugerð sem ég hef í undirbúningi og mun leggja fram í ríkisstj. innan skamms.