09.12.1982
Sameinað þing: 28. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1093 í B-deild Alþingistíðinda. (801)
Umræður utan dagskrár
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Úf af staðhæfingum hæstv. iðnrh. hér áðan á talnasviðinu, sem ég geri ekki að aðalatriði þessa máls, tel ég rétt að upplýsa sannleikann í því máli. Samkv. yfirlýsingum í des. 1980 af hálfu hæstv. iðnrh. var „hækkun í hafi“ talin 47 millj. dollara, en samkv. athugun Coopers & Lybrand var hún talin 22.7–25.5 millj. dollara og yfirverð samkv. samningi 16.2 millj. dollara. Fyrir tímabilið 1975–1979 þýðir þetta yfirverð á súráli 1 millj. 21 þús. dala. Þetta vildi ég að kæmi fram vegna ummæla hæstv. iðnrh.