21.10.1982
Sameinað þing: 5. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í B-deild Alþingistíðinda. (81)

18. mál, stóriðnaður á Norðurlandi

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég hlýt að láta í ljós ánægju mína yfir því, hversu þáltill. okkar hv. 3. þm. Norðurl. e. er vel tekið af samþingsmönnum okkar að norðan, þeim sem til máls hafa tekið, einkanlega af hv. síðasta ræðumanni, 4. þm. Norðurl. e., en ég hef aldrei heyrt hann jafnhógværan og nú þegar orkufrekur iðnaður er annars vegar. Ég hygg raunar að það stafi af því, að hann gerir sér fulla grein fyrir að við getum ekki lengur vænst þess að geta sótt meiri afla í sjóinn, heldur verðum að fara þar með meiri gát en verið hefur. Sú skýrsla sem nú er í undirbúningi hjá fiskifræðingum gefur ekki tilefni til mikillar bjartsýni um að lífskjör geti batnað hér á næstu árum svipað og í nágrannalöndum með því að við byggjum velferð okkar í jafnríkum mæli á sjávarafla og verið hefur. Þess vegna verðum við að leita víðar fanga og fara í því efni að dæmi Skallagríms, sem þótti einhver besti búmaður á sinni tíð, sem ég skal ekki rifja upp nú.

Ég vil taka undir það með þeim sem hér hafa talað, að það er vissulega ástæða til að gera sér vonir um að sú trjákvoðuverksmiðja, sem verið er að rannsaka nú að risið gæti í nágrenni Húsavíkur, geti reynst arðbærari en maður þorði að vona í upphafi. Þar er um verulegt byggðaframlag að ræða, ef af verður. Ef ég man rétt er gert ráð fyrir að þar vinni á annað hundrað manns, kannske um 150 manns, og þar er um verulega orkunotkun að ræða, 450 kígawattstundir á ári eða eitthvað þvíumlíkt. Það er stærðargráðan a.m.k. Eins og hæstv. iðnrh. sagði hér áðan hefur ekkert komið fram í þeim athugunum, sem gerðar hafa verið, — a.m.k. veit ég ekki til þess, því á vegum iðnrn. eru þessar rannsóknir unnar, — sem bendir til vandræða eða útilokar möguleika á þeirri verksmiðju. Það yrði að sjálfsögðu gífurleg lyftistöng fyrir Skjálfandasvæðið og mundi mjög rétta af hinar norðlensku byggðir.

Ég vil einnig þakka hæstv. iðnrh. fyrir það, að hann skyldi hafa beitt sér fyrir því að Eyjafjarðarsvæðið kæmi aftur inn í myndina í sambandi við álver, gagnstætt því sem leit út fyrir á vordögum. En nú er það sem sagt komið í ljós, að staðarvalsnefnd hefur mælt með að álverið rísi við Dysnesið við Eyjafjörð. Mér skilst að þær hagkvæmniathuganir, sem fram fari, ein fyrir sunnan og ein fyrir norðan, séu á tveimur svæðum, annars vegar á Reykjanesi norðanverðu og hins vegar á Dysnesi. Og ég vil þakka hæstv. iðnrh. fyrir að taka Eyjafjarðarsvæðið aftur inn í myndina og vænti þess, að þær niðurstöður, sem fram koma, sýni að það er ekki óhagkvæmara að reisa þar álver en annars staðar, a.m.k. ef maður vill hafa í huga að sterkt mótvægi haldist norðanlands við höfuðborgarsvæðið, svo sem verið hefur.

Ég skal ekki fara í hart við hv. 3. landsk. þm. um staðarvalið að þessu sinni, en það leyndi sér ekki að hann gerði sér miklar vonir um að urgur í mönnum fyrir norðan myndi valda því að Reyknesingar fengju álverið án nokkurrar fyrirhafnar. Hann var líkur malandi ketti á meðan hann var að velta því fyrir sér, ylja sér við þann hita sundurlyndis sem hann hugsaði sér að væri fyrir norðan. Nú má vera að ýmsir menn séu á þessu stigi hikandi í afstöðu til uppbyggingar stóriðju þar, en ég held á hinn bóginn, að þegar þar að kemur og menn hafa fengið staðreyndir málsins fyrir framan sig og íhuga hvað gerist ef eitt stóriðjuver til viðbótar rís hér á Suðurlandi, en ekki fyrir norðan, þegar menn leggja þetta dæmi fyrir sig í heild, taki menn hitt fram yfir, að reyna að halda því jafnvægi sem verið hefur á síðustu árum í þróun byggðar norðanlands og sunnan.

Auðvitað má hugsa sér að Eyjafjarðarsvæðið haldi velli með öðrum hætti, t.d. ef víðtækt samkomulag tækist um það meðal þm. að reisa þar aðrar stofnanir í staðinn, vísi að háskóla eða eitthvað þvíumlíkt, en ég þori nú ekki fyrir fram að treysta því að um það náist samkomulag.

Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð, en vil í lokin aðeins láta í 1 jós undrun mína yfir því, að þegar iðnþróunarnefnd við Eyjafjörð var skipuð skyldi iðnrekendum ekki vera gefinn kostur á að skipa mann í nefndina, eins og ýmsum öðrum þeim aðilum sem þar eru, sem hefði að mínum dómi verið eðlilegt. Það er að vísu rétt að iðnaðardeild SÍS er býsna sterk fyrir norðan, en það eru nú til önnur fyrirtæki þar líka og ekki síður vel rekin og það er mikill misskilningur ef menn halda að framtak einstaklingsins hafi ekki líka komið við sögu við Eyjafjarðarsvæðið. Ýmis landskunn sterk fyrirtæki eru þar. Þá einstaklinga, sem lögðu þar hönd á plóginn fyrst, áttu hugmyndina að að koma þessum fyrirtækjum upp, skal ég ekki telja upp hér, en eðlilegt hefði ég talið að iðnrekendur hefðu verið með í iðnþróunarnefnd fyrir Eyjafjarðarsvæðið.