14.12.1982
Sameinað þing: 29. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (854)
1. mál, fjárlög 1983
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég kveð mér hér hljóðs til þess að mæla fyrir till. á þskj. 169 sem við 10 sjálfstæðismenn flytjum varðandi fjáröflun til Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Ég vil aðeins, áður en ég vík að þessari till., taka fram, sem öllum má vera ljóst, hvers konar plagg það er sem við erum að ræða hér þar sem er frv. til fjárlaga fyrir árið 1983. Það er á margan hátt, eins og hér hefur komið fram áður í umr., með einstökum hætti og ber öll merki þess að ríkisstj. hefur misst öll tök á efnahagsmálum landsins. Þetta frv. er meira og minna óraunhæft. Það kemur fram í mörgum myndum. Ég býst við að það hafi komið fram hjá þm. allra kjördæma eitthvað svipað og komið hefur fram hjá þm. Vestfjarðakjördæmis, þegar við höfum undanfarna daga og vikur verið að velta fyrir okkur með hverjum hætti við ættum að skipta fjárveitingu, sem fallið hefur í hlut kjördæmisins til hinna einstöku málefna.
Ég vil taka það fram að við höfum viðhaft nú sömu vinnubrögð og jafnan áður, að leita eftir fullri samstöðu allra þm. kjördæmisins. Það verður ekki í því efni deilt neitt á stjórnarþm. í þessum efnum. Við höfum allir verið undir sömu sökina seldir og allir orðið að mæta þeim erfiðleikum sem hér er við að glíma, þó að stjórnarliðið beri auðvitað fulla ábyrgð á því hvernig málum er komið.
Ég get nefnt hér eitt atriði sem dæmi um hvers konar ástand þetta er og hvernig málin snúa í þessum efnum að einstökum þm. í mínu kjördæmi. Þá vík ég aðeins að einum málaflokki þar sem eru hafnamálin. Það vildi svo til að á síðasta þingi báru allir þm. Vestfjarða fram till. varðandi hafnarmál í Árneshreppi í Strandasýslu. Í þessari till. okkar var gert ráð fyrir að ríkisstj. léti þegar hefja framkvæmdir við undirbúning og hönnun að hafnarframkvæmdum í Árneshreppi í Strandasýslu. Það var gert ráð fyrir að gerðar yrðu kostnaðaráætlanir um þessar framkvæmdir og tillögur gerðar um fjáröflun til að standa undir þeim. Það var gert ráð fyrir að stefnt yrði að því að vinna við framkvæmdir gæti hafist vorið 1983. Þetta lögðu allir þm. Vestfjarðakjördæmis til, þ. á m. sá ráðh. sem þessi mál heyra undir, hæstv. samgrh.
Þetta góða mál, þessi góða till. var samþykkt sem þál. frá Alþingi 3. maí s.l. En þrátt fyrir þetta, þrátt fyrir vilja Alþingis, þrátt fyrir till. allra þm. Vestf., þar með talið þess ráðh. sem málið heyrir undir, þá er ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni í þessar framkvæmdir. Ég ætla ekki að fara að ræða þetta mál sérstaklega nema aðeins til að benda á hvernig málin liggja fyrir við afgreiðslu þessara fjárlaga. Þetta er aðeins eitt dæmi.
Hér var af síðasta ræðumanni vikið að orkujöfnunargjaldi sem lagt er á samkv. lögum í þeim tilgangi að jafna hitunarkostnað í landinu. Og það var ekki að ófyrirsynju að vikið væri að þessu máli, vegna þess að fátt misrétti hefur verið meira í þessu landi á undanförnum árum en einmitt misréttið í hitunarkostnaði landsmanna. Og nú vill svo til, að síðan 1980 hafa verið lög í landinu sem hafa gert ráð fyrir sérstakri fjáröflun í því skyni að bæta úr í þessu efni. En nú kemur það í ljós, eins og hefur komið í ljós á undanförnum árum við afgreiðslu fjárlaga, að svikist er um af hálfu ríkisstj. að verja þessu fé í þeim tilgangi sem lögin gera ráð fyrir. M.ö.o., það hefur verið leikinn sá leikur að leggja á skatt undir fölsku yfirskini. Þetta er ljótur leikur og hann á ekki að viðgangast átölulaust.
Síðasti ræðumaður spurði hvað væri varið miklu af því fjármagni sem kæmi inn, andvirði orkujöfnunargjaldsins, til þess að jafna hitunarkostnað í landinu. Það kemur fram í fjárlagafrv. að gert er ráð fyrir 29 millj. 200 þús. kr. í þessu skyni, og það er til þess að greiða niður olíu til húshitunar. Þetta er það sem ríkisstj. leggur til. Þó hefur ríkisstj. á þessu ári gefið hátíðlegar yfirlýsingar um gagngerðar ráðstafanir til að draga úr mismun upphitunarkostnaðar. Það er gert ráð fyrir að það kosti um 130 millj. á ári að framkvæma þessa yfirlýstu stefnu ríkisstj. En það eru tæpar 30 millj. sem eru ætlaðar í þessu skyni. Þó er það fjármagn, sem kemur inn vegna orkujöfnunargjaldsins, áætlað 308 millj. kr. á næsta ári. Það þyrfti ekki að taka nema 130 millj. af þessum 308 til þess að ríkisstj. stæði við þær yfirlýsingar sem hún hefur hátíðlega gefið. Þá gæti hún tekið afganginn í ríkishítina. En það er ekki nægilegt fyrir ríkisstj. því að hún leggur aðeins til að tæpar 30 millj. fari til að jafna hitunarkostnað í landinu.
Þetta er gott dæmi upp á ástand mála í dag. Þetta er gott dæmi upp á ósvífni stjórnvalda, svo mikla ósvífni að ég held að slíks séu fá dæmi.
En nú ætla ég að koma að öðru dæmi. Það varðar till. þá sem ég ætla að mæla fyrir á þskj. 169 frá okkur 10 sjálfstæðismönnum um fjármögnun til Húsnæðisstofnunar ríkisins. Það vill þannig til, og á ekki að þurfa að taka það fram, að það eru lög í landinu um skyldusparnað. Samkv. þeim lögum á að verja 2% af launaskatti til Byggingarsjóðs ríkisins. Það eru lög í landinu um þetta og á meðan þessi lög gilda á að framkvæma þetta. Það á að fara fjármagn í Byggingarsjóð sem svarar 2% launaskatts. Það er áætlað að á næsta ári gefi 2% launaskatts 340 millj. kr. Tillaga okkar sjálfstæðismanna á þskj. 169 er um það að þetta fjármagn, sem samkvæmt gildandi lögum á að fara í Byggingarsjóð ríkisins, fari þangað. En í frv. ríkisstj. er einungis gert ráð fyrir að 71.5 millj. kr. sé varið í þessu skyni. Mismuninum á að stela af Byggingarsjóði ríkisins og taka í ríkishítina, verja því fé á annan hátt en lög gera ráð fyrir.
Það er augljóst mál að ekki er hægt að láta óátalið slíkt framferði sem þetta. Með tilliti til þess berum við sjálfstæðismenn fram tillögu um að þetta verði leiðrétt og lögum um launaskatt sé framfylgt. Það er ekki meira sem við förum fram á. En auk þessa er það augljóst og verður ekki mótmælt af neinum, að það er brýn þörf að efla Byggingarsjóð ríkisins á þennan hátt, til þess hann geti sinnt sínum verkefnum. Um það þarf ég ekki að fjölyrða hér og um það ætla ég ekki að fjölyrða hér. Ég verð að óreyndu að gera ráð fyrir því að hér sé um að ræða svo sjálfsagt mál, að ég þurfi ekki að eyða fleiri orðum til að mæla fyrir því.
Ég hygg að það sé ekki stætt á öðru en að samþykkja þessa tillögu, ef menn vilja sýna einhvern snefil af velsæmi í afgreiðslu þessara mála.