14.12.1982
Sameinað þing: 29. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1162 í B-deild Alþingistíðinda. (860)

1. mál, fjárlög 1983

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég ítreka það, sem ég lét koma fram áðan, að ég tel að þessar reikningsaðferðir hv. þm. séu algerlega fráleit aðferð til að reikna út væntanleg útgjöld ríkisins á árinu 1983, þó að það komi fram í ákveðinni spá, í ákveðinni spátöflu á vegum Þjóðhagsstofnunar, að miðað er við í útreikningum að samneysla sé óbreytt, þ.e. það sé hvorki vöxtur eða samdráttur. Hún hefur ekki haft neina aðra tölu við að miða vegna þess að ekki var m.a. búið að afgreiða fjárlög og ekki búið að afgreiða áætlanir sveitarfélaga eða ýmislegt annað sem fellur undir þessa tölu, sem er auðvitað margt fleira en fjárlög ríkisins. Hér er verið að tala um samneyslu alls þjóðarbúsins.

Það er alveg vafalaust að í þessari tölu er fleira en bara útgjöld ríkisins. Þó að Þjóðhagsstofnun hafi gert ráð fyrir að þessi tala sé óbreytt og þó að að því sé stefnt af hálfu ríkisstjórnarinnar að félagsleg þjónusta sé ekki skert í þeim þrengingum sem að steðja þýðir það alls ekki að stofnun, sem kannske hefur farið 20% fram úr áætlunum á árinu 1981 samkv. ríkisreikningi og eytt miklu meira fjármagni en henni var ætlað, fái þá alveg örugglega nákvæmlega sama fjármagn á árinu 1983 framreiknað samkvæmt vísitölu. Það væri aldeilis stjórnin á ríkisfármálunum ef menn leyfðu sér þess háttar vinnubrögð. Ég veit að hv. þm. Sjálfstfl. mundu aldrei leyfa sér slík vinnubrögð ef þeir væru við stjórn og hefðu ríkisfjármálin með höndum. Þeir mundu að sjálfsögðu verða að meta umsvif viðkomandi stofnunar í samræmi við vilja Alþingis um starfsemi hennar.

Auðvitað segir það sig sjálft að á tveimur árum getur heilmikið breyst. Ýmsar þær stofnanir sem hafa t.d. farið talsvert fram úr á árinu 1981 hafa væntanlega fengið eitthvað minna í sinn hlut á árinu 1982. Þannig getur þetta gengið fram og aftur. Ég get ekki hugsað mér neinn hæpnari reiknigrundvöll til að reikna út fjárlög ársins 1983 út frá en ríkisreikning sem er orðinn tveggja ára gamall. (FrS: Hvaða verðlagsforsendur eru þetta?)