14.12.1982
Sameinað þing: 29. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1162 í B-deild Alþingistíðinda. (861)
1. mál, fjárlög 1983
Frsm. 1. minni hl. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Ég skal ekki fara að leggja hér í langa þrætubókarlist við hæstv. fjmrh. Hann talar um að miðað sé við spá Þjóðhagsstofnunar, þ.e. óbreytta samneyslu á milli ársins í ár og næsta árs. Þetta er ekki rétt. Í því plaggi sem heitir þjóðhagsáætlun og er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar, lagt fram af forsrh., eru helstu stefnumarkmið ríkisstjórnarinnar hverju sinni. Það kemur úr hörðustu átt ef hæstv. ráðh. vill ekki viðurkenna sitt eigið plagg og sína eigin stefnu. Það er satt að segja mjög undarlegt að heyra hæstv. ráðh. ræða hér um samneyslu eins og það sé eitthvað annað en ákveðin ríkisútgjöld. Samneysla hefur ævinlega verið skilgreind sem opinber samneysla, þ.e. það sem ríkið leggur til ákveðinna félagslegra þarfa í þ jóðfélaginu. Það er einfaldlega átt við það, hæstv. ráðh., og það eru einvörðungu ríkisútgjöld sem átt er við (Fjmrh.: Hvað um sveitarfélögin?) þegar talað er um þetta. Það er gert ráð fyrir að útgjöld sveitarfélaga aukist heldur á næsta ári, þannig að þar er um opinber útgjöld að ræða.
Ég skal alveg taka undir það með hæstv. ráðh. að auðvitað þarf að meta umsvif einstakra stofnana. Það er ekki okkar hugmynd að það sé bara litið á umsvif ríkisins eins og þau eru. En þegar gert er ráð fyrir að laun lækki að raungildi milli áranna 1981 og 1983, hvað er þá á ferðinni? Við vitum að það hefur stórfjölgað starfsliði í ríkiskerfinu, en þó er áætlað að t.d. önnur rekstrargjöld hjá ríkisstjórn verði 79.4% minni að raungildi í frv. en var 1981 Hvað er þá á ferðinni? Þegar laun hjá embætti forseta Íslands eru 25% lægri að raungildi en á árinu 1981, hvað er þá á ferðinni? Þegar viðhald hjá Háskóla Íslands er 100% minna að raungildi en 1981, hvað er þá á ferðinni? Hvaða sögu segir þetta okkur?
Ég gæti rakið hér hundrað eða tvö hundruð fáránleg dæmi um hvernig einstakir liðir lita út, ef menn bera saman þann raunveruleika um umfang ríkisbúskaparins sem var árið 1981 og þetta frv. Við erum einmitt með þessum dæmum að sýna fram á að ekki er hægt að skera niður bara með því að setja óraunhæfa tölu í fjárlög. Menn verða að taka ríkisbúskapinn og stokka hann upp og gefa sér einhverjar aðrar forsendur en að halda ríkisbúskapnum í sama umfangi og áður ef menn ætla að ná árangri í því að lækka ríkisútgjöld.