14.12.1982
Sameinað þing: 29. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (864)
1. mál, fjárlög 1983
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég vil upplýsa þm. Friðrik Sophusson um að ég les blöð. Ég vaki og ég er sem sagt lifandi, ef hann er í einhverjum vafa um það. En það breytir ekki því, að það sem ég hef sagt um reiknitölur fjárlaga stendur eftir sem áður. Það stendur hér í athugasemdum við fjárlagafrumvarpið: „Reiknitala fjárlagafrumvarps er miðuð við 42% hækkun verðlags milli áranna 1982 og 1983. Rétt er að minna á, að reiknitala fjárlaga hefur aldrei verið verðbólguspá fyrir komandi ár“ — og er það ekki enn. Það breytir því engu hvað forstjóri Þjóðhagsstofnunar telur að verði verðbólga á komandi ári. Það var ekki meiningin þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram og verður ekki meiningin þegar það verður afgreitt að haga reiknitölum fjárlaga í fullu samræmi við það sem menn telja hugsanlega að kunni að verða verðbólga á því ári. Það hefur aldrei verið gert.
Við skulum hafa í huga að á þeim tímum þegar engin verðbólga er er auðvitað verulegur vandi á ferðum og dæmið ganga upp í samræmi við fjárlögin, en þegar mikil verðbólga er auðvitað verulegur vandi á ferðum og veruleg hætta á ferðum. Hættan er fólgin í því, að menn noti reiknitölu í fjárlögum sem sé hærri en verðbólguþróunin verður á komandi ári. Það er hættan. Það væri það versta sem gæti gerst. Ef menn leyfðu sér að nota reiknitölu sem væri langtum hærri en verðbólguþróunin verður mundi fjárhagur ríkisins lenda í miklum þrengingum. Ég þarf ekki að rökstyðja það frekar fyrir hv. þm. Aftur á móti er hitt miklu hægara. Ef reiknitalan er örugglega lægri en verðbólguþróunin verður er sem sagt hægt að bæta þar við með aukafjárveitingum og svo verða að sjálfsögðu tekjurnar meiri vegna aukinnar veltu í þjóðfélaginu. Þannig verður að halda á þessum málum. Fjmrh. sem leyfði sér að reyna að giska nákvæmlega á verðbólgu á komandi ári og setja svo slíka tölu inn í fjárlagafrumvarpið ætti á hættu að framkvæmd fjárlaga færi algerlega úr böndunum ef betur tækist til í baráttunni við verðbólguna en reiknað var með.
Auðvitað hljótum við að vonast til þess að vel gangi í baráttunni við verðbólguna og við megum aldrei setja okkur í það haft að við verðum að halda uppi svo og svo mikilli verðbólgu til þess einungis að fjárlögin gangi upp. Af þessu leiðir að reiknitala fjárlaga verður að vera töluvert undir raunverulegri væntanlegri verðbólgu. Þetta hefur alltaf verið. Ég er undrandi á því að hv. þm. skuli leyfa sér að mótmæla þessu.
Ég get hæglega sýnt fram á að munurinn á fjárlögum annars vegar og framkvæmd fjárlaga hins vegar, þ.e. tölunum eins og þær birtast í ríkisreikningi, hefur aldrei verið minni en 10% á seinustu 12 árum. Raunar hygg ég að þegar hv. þm. Matthías Mathiesen var fjmrh. hafi þessi munur oftast verið í kringum 20%. Ég vek á því athygli, að á árinu 1980 var munurinn rétt um 10% og má teljast gott. Það er sennilega eitt það besta sem hefur verið, eitt það næsta sem við höfum komið fjárlögunum við framkvæmd fjárlaga, þ.e. í ríkisreikningi.
Ég er undrandi á því hvað hv. stjórnarandstæðingar leyfa sér að halda uppi miklu málæði og málþófi um þessar svokölluðu reiknitölu fjárlaga, þó að staðreyndin sé sú, að það sé ekki hægt að halda á þessu máli með öðrum hætti en gert er. Þetta vita þeir sjálfir. Þeir vita hvernig þetta var framkvæmt í fjmrh.-tíð Matthíasar Á. Mathiesen. Þeir vita það sjálfir, að ef þeir færu með þessi mál nú yrðu þeir að haga málunum með svipuðum hætti. Allt þetta þóf og þras hér árum saman — búið að standa nú í þrjú ár — um það að reiknitala fjárlaga sé önnur en væntanleg verðbólga vita þeir að er innantómt kjaftæði og ekkert annað, sem hefur enga merkingu. Ég verð að segja alveg eins og er, að þegar menn halda uppi í svona löngu máli ítrekuðum umræðum um gjörsamlega innantómt atriði eins og þetta, sem allir skilja að hlýtur að vera svo og getur ekki öðruvísi verið, ber það vott um átakanlega málefnafátækt. Þá er eitthvað að. Þá virðast stjórnarandstæðingar ekki hafa nægilega sterk og stór mál til að berjast fyrir við fjárlagaafgreiðsluna eða ekki nægilega hvassa gagnrýni á það sem þeir telja að illa fari við gerð fjárlaganna. Þetta atriði vita þeir sjálfir að er ekkert annað en hjómið og að þeir eru þarna að ræða um algerlega fánýtt atriði.