25.10.1982
Sameinað þing: 6. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Síðasti ræðumaður er kunnur að því að mála glansmyndir. Ræða hans í kvöld stingur nokkuð í stúf við það sem venja er og hlustendur þekkja. Hingað til hefur allt verið í lagi og stjórnarathafnir gengið eftir áætlun. En nú hefur syrt í álinn að áliti síðasta ræðumanns. En auðvitað fer fjarri að ríkisstj. beri ábyrgð á ástandinu og hinu dökka útliti að hans mati.

Tvennt bar síðasti ræðumaður fyrir sig. Spár sérfræðinga höfðu brugðist. Vitnaði hann til þjóðhagsáætlunar er fylgdi stefnuræðunni í fyrra. En þjóðhagsáætlun, sem fylgir stefnuræðu forsrh., er útbúin og birt á ábyrgð ráðherra og þar er byggt á forsendum sem ráðherra gefur sérfræðingum. Um þetta eru dæmi í þeirri þjóðhagsáætlun sem fylgir stefnuræðu að þessu sinni. Þar er byggt á því að frekari efnahagsaðgerðir, sem enn hafa ekki séð dagsins í jós, muni komast í framkvæmd og að þeim gerðum muni verðbólgan á næsta ári geta komist niður undir 40%. En sé byggt á þeim aðgerðum sem komnar eru fram, þ. á m. brbl., er ljóst að verðbólgan verður yfir 60%. Hér skeikar miklu. Skýringin er sú, að byggt er á óljósum orðum um væntanlegar efnahagsaðgerðir, sem ekkert samkomulag er um innan ríkisstj., hvorki í fyrra né nú. Að þessu leyti er því ekki sérfræðingum um að kenna heldur forsrh. og röngum forsendum, sem hann lætur sérfræðingum í té, að spár hafa brugðist.

Í öðru lagi ber forsrh. fyrir sig að ytri kringumstæður hafi breyst svo mjög að þær séu orsök þess hvernig komið er. Það þykir alltaf lágkúrulegt að þakka sjálfum sér allt þegar vel árar en kenna öðrum um þegar miður fer. Stjórnarliðar geta rifjað upp að við stjórnarandstæðingar sögðum fyrir um þróun mála í gagnrýni okkar í umræðum um stefnuræðu forsrh. í fyrra og þegar frá upphafi þessa stjórnarsamstarfs. Þótt Íslendingar hafi orðið fyrir áföllum, sem ber að mæta af fullri einurð, þá er verðmæti sjávarafurða sambærilegt við árin 1978 og 1979. Og eftir met í aflaverðmæti síðustu tvö árin ættum við að vera vel undir það búnir að mæta erfiðleikum. En vegna rangrar stjórnarstefnu fer víðs fjarri að svo sé.

Þegar fokið er í flest skjól og öll markmið ríkisstj. og fyrirheit eru aðeins orðin tóm er þó eitt sem hatturinn er hengdur á. Það er að hér sé ekki atvinnuleysi, gagnstætt því sem er með öðrum þjóðum. En það er rétt að við gerum okkur grein fyrir því, Íslendingar, hvort hér sé full atvinna í þess orðs réttu merkingu, hvort vinnuafl landsmanna sé allt bundið við arðbær störf. Og er það ríkisstj. að þakka að hér eru skráðir atvinnuleysingjar innan við 1%? Því fer fjarri. Þessari sýndarmennsku er komið í kring með geigvænlegri erlendri og innlendri skuldasöfnun, sem auðvitað er ekkert annað en gálgafrestur. Og inntakið í ræðu síðasta ræðumanns var í raun og veru að landsmönnum var hótað atvinnuleysi ef þeir sættu sig ekki við lakari lífskjör. Því miður er sú hótun ekki tilefnislaus. Það sýnir reynslan á þessu ári þegar fiskveiðiflotinn hefur stöðvast bæði í ársbyrjun og nú síðast í september og mörg fyrirtæki riða á barmi uppgjafar og gjaldþrots vegna þess að þeim eru ekki sköpuð skilyrði til starfa.

Forsrh. taldi að valið stæði á milli verðbólgu og atvinnuleysis. Við sjálfstæðismenn erum þeirrar skoðunar að unnt sé að ráðast gegn verðbólgunni án þess að atvinnuleysi haldi innreið sína. En forsrh. og ríkisstj. hafa gefist upp í baráttunni gegn verðbólgunni og hengja hatt sinn nú á atvinnuleysisvofuna til þess að treina líftóruna í ríkisstj. Við eigum hvorki að þola verðbólgu né atvinnuleysi.

Það var ljóst við stjórnarmyndun haustið 1978, þegar þáverandi vinstri stjórn var mynduð, og við stjórnarmyndunina eftir kosningarnar 1979, þegar núverandi stjórn var mynduð, að stjórnvöld þurftu að snúast gegn verðbólgu annars vegar og tryggja atvinnuöryggi hins vegar. Menn höfðu búið að auknum fiskafla eftir útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur undir forustu okkar sjálfstæðismanna 1975. En sá aukni fiskafli og verðmætaaukning, sem honum fylgdi, dugði ekki eyðsluseggjum núverandi stjórnar heldur þurfti og til að koma erlend skuldasöfnun í stærri stíl en nokkru sinni áður til viðbótar aukinni seðlaprentun.

Stjórnvöld gáfust ekki eingöngu upp í baráttunni gegn verðbólgunni heldur vanræktu að skapa nýjum atvinnugreinum skilyrði. Fiskifræðingar höfðu löngu varað við því að fiskstofnar væru ofnýttir og því ætti loðnubrestur og minnkandi þorskafli ekki að koma stjórnvöldum á óvart. En í stað þess að láta sér þá aðvörun að kenningu verða og hefja sókn til að nýta orkulindir landsins og byggja upp stóriðju og almennan iðnað hafa núverandi stjórnvöld í raun og veru stöðvað fyrri þróun í þeim efnum.

Við hvoruga þessa stjórnarmyndun, 1978 eða 1980, horfðust stjórnaraðilar í augu við nauðsyn þess að berjast gegn verðbólgunni annars vegar og tryggja áframhaldandi hagvöxt hins vegar. Það vakti fyrst og fremst fyrir þeim að næla sér í ráðherrastóla og halda völdum. Framsóknarmenn féllu fyrir þessari freistingu þegar eftir skemmdarverk og galdra A-flokkanna 1978, og síðan féllu fleiri fyrir hinu sama við stjórnarmyndun 1980.

Það er á allra vitorði og ekkert fær dulið lengur þá staðreynd að stjórnarmyndunin 1980, sem átti að leysa stjórnarkreppuna og bjarga virðingu Alþingis, var byggð á fyrirætlunum Alþb. og Framsfl. um að kljúfa Sjálfstfl. Reynslan hefur orðið sú að Alþb. og Framsfl. hafa orðið fyrir vonbrigðum. Þeim hefur ekki tekist að kljúfa sjálfstfl. Það sýndi sigurganga hans í sveitarstjórnarkosningunum á liðnu sumri. Sannast hefur að sér grefur gröf þótt grafi því að óánægja og klofningur hafa myndast í þessum flokkum.

Í stað þess að núverandi ríkisstj. leysti tveggja mánaða stjórnarkreppu og bjargaði sóma Alþingis, eins og hún átti að gera, hefur ríkisstj. framlengt stjórnarkreppuna um nærfellt þrjú ár með upphlaupum á þriggja mánaða fresti og misboðið þingræði og virðingu Alþingis jafnvel freklegar en dæmi eru til frá dögum danskra einvaldskonunga.

Nú er ekki heldur hægt að leyna staðreyndum og hinum alvarlegu viðhorfum sem við blasa eftir tvö bestu aflaár og mestu verðmætaöflun, sem við Íslendingar höfum notið.

Ríkisstj. lofaði að verðbólgan skyldi á þessu ári verða 7–10%. Hún verður a.m.k. 60% og ekkert útlit fyrir að hún hjaðni.

Ríkisstj. lofaði að tryggja gengi íslensku krónunnar. En gengisfellingar hafa verið fleiri og örari ásamt stöðugu gengissigi þannig að dollarinn hefur fjórfaldast í verði á tæplega þriggja ára ferli ríkisstj. Núverandi ríkisstj. á Íslandsmet í gengisfellingu og er þá langt til jafnað.

Ríkisstj. lofaði að myntbreytingu skyldi nýta í baráttu gegn verðbólgu og til að tryggja gengi íslensku krónunnar en myntbreytingin hefur orðið skálkaskjól fyrir verðhækkunum og hruni íslensku krónunnar.

Tvær síðustu ríkisstjórnir lofuðu að tryggja kaupmátt launa, setja samninga frá 1977 í gildi, en hafa staðið að meiri launa- og verðbótaskerðingum en dæmi eru til um, eða samtals um 40% á síðustu fjórum árum meðan grunnlaun hafa hækkað um 25%. Kaupmáttur kauptaxta er nú minni en 1978 þótt þjóðartekjur séu svipaðar og verðbólgan æðir áfram þrátt fyrir launaskerðingar.

Ríkisstjórnir hafa s.l. fjögur ár hækkað skatta um 6% af þjóðarframleiðslu eða um allt að 1 800 millj. kr. Ríkisstj. hefur hagað svo málum að viðskiptahalli var 5% af þjóðarframleiðslu á síðasta ári og spáð er 10–11% halla á yfirstandandi ári. Erlendar skuldir hafa stórhækkað. Þær námu um 30% af þjóðarframleiðslu fyrir fjórum árum en eru nú orðnar 45% af þjóðarframleiðslu. Seðlabankinn spáir að innan skamms fari þær yfir 50%. Greiðslubyrði afborgana og lána, sem áður var 12–13% af gjaldeyristekjum, er á yfirstandandi ári 23% og Seðlabankinn spáir að innan skamms muni þriðja hver króna af gjaldeyristekjum okkar fara í afborganir og vexti af erlendum lánum. Svavar Gestsson líkir okkur við Pólverja í þessum efnum, en þeir þurftu að biðja vestræn ríki um sérstök skuldaskil. Ragnar Arnalds segir okkur vera sokkin á kaf í gífurlegt skuldafen. Slíkur er vitnisburður þeirra er á þessu bera ábyrgð.

Ríkisstj. hefur hagað peningamálum þannig að viðskiptabankarnir skulda nálægt 1 000 millj. kr. í Seðlabanka og boða nú meiri lánsfjárskömmtun en dæmi eru til. Ríkisstj. lofaði vaxtalækkun, en vextir hafa hækkað um nær helming á síðustu fjórum árum, og eru þó lægri en verðbólgan segir til um. Fyrir liggur hjá ríkisstj. till. um 8% vaxtahækkun og verðtrygging hefur farið vaxandi í heildarútlánum með vaxandi verðbólgu og aukið fjármagnskostnað enn meira. Ríkisstj. hefur í raun gengið á bak allra sinna orða, svikið öll sín loforð og ætti þegar af þeirri ástæðu að fara frá.

Við sjálfstæðismenn lýstum andstöðu okkar við brbl., sem eru nú helsta bjargráð ríkisstj., vegna þess að við krefjumst breyttrar stjórnarstefnu. Í brbl. felst kjaraskerðing, án þess að hún komi að teljandi gagni í baráttunni gegn verðbólgu, og til lengdar getur hún orðið til skaða vegna þess að launþegar munu ekki sætta sig við sífelldar kjaraskerðingar, eins og vinstri stjórna er vandi, sem Alþb. ber höfuðábyrgð á. Verðhótaskerðing um 8% 1. des. styðst við þá nauðsyn að tilkostnaður atvinnuveganna aukist ekki. En á sama tíma hefur lenging orlofs meira en 4% tilkostnaðaraukningu í för með sér. Væri þá ekki skynsamlegra að draga úr verðbótaskerðingu og fresta því að taka sér lengra frí meðan svo árar sem nú er?

Samhliða þessum brbl. voru boðaðar ýmsar aðrar ráðstafanir. Ekkert af því sem boðað hefur verið hefur séð dagsins ljós, en alþm. hljóta að gera kröfu til þess að málin séu lögð fram í einni heild svo að yfirsýn fáist yfir áhrif þessara aðgerða. En ágreiningur milli stjórnarliða veldur því að djúpt er á þessum málum öllum. Samkvæmt þessum brbl. er svo enn um aukna skattheimtu að ræða sem sjálfstæðismenn geta undir engum kringumstæðum sætt sig við.

Allur almenningur verður nú ekki eingöngu að horfast í augu við rýrnandi kaupmátt heldur er jafnvægisleysið í efnahagsmálum orðið slíkt að okurlánamarkaður er talinn þrífast með ólíkindum. Menn flýja í neðanjarðarhagkerfi vegna skattaáþjánar og húsnæðiskreppan er slík að húsaleiga stórhækkar. Gripið er til styrkja- og uppbótakerfis eins og dæmin sýna þegar fiskiskipaflotanum var komið aftur á flot með bráðabirgðaráðstöfunum, slætti til áramóta, en óleyst vandamál skilin eftir fyrir og eftir þann tíma. Menn eru óðum að hverfa marga áratugi aftur í tímann þegar vinstrimennskan blómgaðist á sjötta áratugnum áður en viðreisnin hélt innreið sína. Hvarvetna eru menn í vörn gagnvart óstjórn og ofræðisvaldi ríkisstj. Þróunin stefnir óðfluga í þá átt sem er undanfari efnahagsskipulags austantjaldsríkjanna undir forustu sósíalista. Atvinnufyrirtæki standa höllum fæti, fólki er fækkað eða uppsagnir liggja við. Lánsfjárskömmtunin og verðbólguþróunin segja til sín með vaxandi þunga.

Fyrstu atvinnufyrirtækin, sem fórnað verður, eru einkafyrirtæki og fyrirtæki hlutafélaga. Samvinnufélögin haldast nokkru lengur uppi. Þau hafa borist á og keypt upp einkafyrirtækin í skjóli forréttinda sinna og aðgangs að lánastofnunum meðan framsóknarmenn verma valdastólana. En að þeim kemur einnig þegar kommúnistar ná því takmarki sínu að hremma alla atvinnustarfsemi undir hið opinbera svo að valdhafar hafi ráð einstaklinga og fyrirtækja í höndum sér og geti tryggt sér áframhaldandi völd með sama hætti og gerist í austantjaldslöndunum. En hver vill una þeim lífskjörum og frelsissviptingu sem þar tíðkast? Við skulum ekki gera of lítið úr þessari hættu og stöðva þá þróun sem nú á sér stað í tíma. Það er full þörf að spyrna við fótum, gerbreyta stjórnarstefnunni og hefja nýja endurreisn.

Þegar ljóst var í ágústmánuði s.l. eftir að brbl. voru gefin út, að ríkisstj. hafði misst starfhæfan meiri hluta í þinginu samþykkti þingflokkur Sjálfstfl. ályktun þess efnis að kalla bæri þing saman hið fyrsta, þingið sinnti brýnustu úrlausnarefnum, svo sem kjördæmamálinu, síðan yrði þing rofið, og kosningar færu fram svo að nýr þingmeirihluti væri þess umkominn að snúa sér að lausn þess mikla vanda sem við blasti. Ríkisstj. sinnti þessari kröfu í engu. Það er því ekki á ábyrgð Sjálfstfl. að eigi vinnst tími til að snúa sér að lausn vandamálanna. Það er alfarið á ábyrgð núverandi ríkisstj.

Bæði Svavar Gestsson og Steingrímur Hermannsson hafa sagt að ríkisstj. hefði of veika stöðu til þess að glíma við þau alvarlegu mál sem fram undan eru. Um leið og óstarfhæf stjórn leitar eftir lengingu lífdaga hjá stjórnarandstöðu er það og viðurkenning á því að ríkisstj. hefur beðið skipbrot og ætti því um leið að fallast á nýjar kosningar hið allra fyrsta.

Krafa Sjálfstfl. er að ákvörðun sé tekin um að ríkisstj. biðjist lausnar, þing verði rofið og til nýrra kosninga boðað. Sjálfstæðismenn telja að áður en til kosninga sé gengið beri að leita sem víðtækastrar samstöðu án tafar um lausn kjördæmamálsins til þess að jafna vægi atkvæða. Við getum ekki sett fyrir okkur að óæskilegra sé að kjósa á vetrarmánuðum en á öðrum tíma ársins þar sem við megum engan tíma missa til að geta snúið okkur að lausn þeirra vandamála sem bíða. Um leið verðum við að tryggja að allir kjósendur til sjávar og sveita geti neytt atkvæðisréttar síns með samgöngubótum og heimild til fleiri kjördaga.

Lausnarbeiðni ríkisstj. er eðlileg þar sem hún hefur misst starfhæfan meiri hluta á þingi og hefur þess vegna ekki umboð þingsins til meiri háttar stjórnarathafna. Það er hvorki ástæða fyrir Sjálfstfl. né unnt að krefja hann um það að lengja lífdaga þeirrar stjórnar sem svo hefur haldið á málum sem ég að framan hef rakið.

Við sjálfstæðismenn viljum með engum hætti taka nokkra ábyrgð á þeirri stjórnarstefnu og stjórnarathöfnum sem núv. ríkisstj. verður ein að axla og standa reikningsskil gerða sinna fyrir í næstu kosningum. Kjósendur verða sjálfir að kveða upp sinn dóm, þeirra er valdið og Sjálfstfl. mun í þeim kosningum leggja stefnu sína undir dóm kjósenda og væntir stuðnings þeirra svo að breyta megi um stjórnarstefnu.

Við viljum fyrst og fremst berjast gegn verðbólgunni með því að lækka skatta og draga úr ríkisumsvifum. Með þeim hætti lækka síðan vextir, fjármagnskostnaður, útgjöld fyrirtækja og heimila. Við viljum að gengi íslenskrar krónu sé raunhæft í samræmi við afkomu atvinnuveganna og tryggi jöfnuð í viðskiptum við útlönd. Við viljum gera jöfnunarsjóði, sem núverandi ríkisstjórn hefur tæmt og stefnt í skuldir, raunhæft tæki til að jafna sveiflur í afla og verðlagi. Við viljum jafna skilyrði atvinnuveganna en ekki stefna í þveröfuga átt í vonlausa hít styrkja- og uppbótakerfis eins og núverandi ríkisstjórn: Við viljum skapa atvinnuvegunum skilyrði til þess að öðlast hagnað svo að unnt verði að endurnýja atvinnutækin, auka framleiðslu og framleiðni og greiða hærri laun og bæta kjör almennings í landinu. Við sjálfstæðismenn viljum gera atvinnurekendur með þessum hætti ábyrga fyrir rekstri sínum og efla samkeppni og samanburð þeirra á milli þannig að það verði hvatning til að reka atvinnufyrirtækin á sem hagkvæmastan hátt. Við sjálfstæðismenn hófnum ríkisforsjá og haftabúskap en viljum leysa hugvit og framtak einstaklinga úr læðingi. Einstaklingsframtakið getur gert kraftaverk sem engum skrifborðs- og gæluverkefnastjórnum er unnt að gera sér í hugarlund. Við viljum efla frjálsa samkeppni í því skyni að lækka vöruverð og vinna bug á verðbólgunni. Við viljum auka og efla sparnað með því að einstaklingar ráði sjálfir sem mest yfir aflafé sínu og hvetja þá til þess að leggja fram áhættuframlag til uppbyggingar atvinnufyrirtækja, enda njóti þeir þá sams konar skattaívilnana og annar sparnaður. Við viljum að sérhverri fjölskyldu verði gert kleift að eignast og búa í eigin húsnæði. Við sjálfstæðismenn viljum tryggja þeim sem minna mega sín í lífinu öryggi og mannsæmandi afkomu en það verður ekki gert nema undirstaðan, atvinnuvegirnir í landinu og afrakstur þeirra, sé byggð á traustum grunni. Við viljum að menn beri ábyrgð á orðum sínum og gerðum, stjórnmálamenn jafnt og atvinnurekendur og launþegasamtök eða önnur hagsmunasamtök. Þrýstihópar, þótt hlutverki hafi að gegna, mega ekki vaða uppi í þjóðfélaginu vegna veikleika stjórnmálamanna sem eru á atkvæðaveiðum og láta eftir þeim í trausti þess að allur almenningur, sem borgar brúsann, taki ekki eftir því að það er verið að hlunnfara hann.

Við væntum þess að kjósendur, sem valdið hafa, geri sér grein fyrir því að við Íslendingar stöndum á örlagaríkum tímamótum. Það skiptir máli að hver og einn gangi að kjörborðinu við næstu kosningar með það eitt í huga hvers þjóðarheill krefst og leggi sig fram um það af ábyrgðartilfinningu að stuðla að því að efla þjóðarhag eftir megni. Hver og einn hefur hlutverki að gegna fremur á Íslandi en í nokkru öðru landi þar sem við erum fámenn þjóð og um hvern einstakan og framlag hans munar. Það er okkar gæfa.

Ég þakka þeim sem hlýddu.