15.12.1982
Sameinað þing: 30. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í B-deild Alþingistíðinda. (870)
1. mál, fjárlög 1983
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Þessi till., sem hér er flutt, er ótímabær og ekki í réttu samhengi í þessari umr. Í fyrsta lagi vegna þess að fyrir þinginu liggja viðamiklar brtt. við lög um Húsnæðisstofnun ríkisins, sem m.a. gera ráð fyrir tvöföldun á framlagi ríkissjóðs til Byggingarsjóðs ríkisins á næsta ári. Í öðru lagi er till. þessi óeðlileg vegna þess að hún er hrein sýndarmennska, þar sem ekki er gert ráð fyrir neinni fjáröflun á móti þeim miklu útgjöldum sem hér er gerð till. um, upp á um það bil 270 millj. kr. Og í þriðja lagi vil ég benda á að þessi till. gerir ráð fyrir mun meiri framlögum í Byggingarsjóð ríkisins en Sjálfstfl. sjálfur hafði gert till. um í stefnumótun um húsnæðismál, sem flutt er hér á þáltill. af hv. þm. Halldóri Blöndal og fleirum. Till. er því ómerkilegur áróður eins og hún er sett fram hér og ég segi nei.