15.12.1982
Sameinað þing: 30. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í B-deild Alþingistíðinda. (872)
1. mál, fjárlög 1983
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Hæstv. félmrh. sagði að þessi till. væri ótímabær. Í lögum um launaskatt nr. 14 frá 1965 með síðari breytingum er svo ákveðið að 2% af launaskatti skuli ganga til Byggingarsjóðs ríkisins. Það er beint brot á þessum lögum ef ekki eru gerðar ráðstafanir til þess að þetta fjármagn renni til Byggingarsjóðs ríkisins samkv. fjárl. fyrir árið 1983. Það er blekking, sem hæstv. félmrh. sagði, að sjálfstæðismenn hefðu í tillögugerð sinni hér á þingi ekki gert ráð fyrir því að 2% fari til Byggingarsjóðs ríkisins eins og vera á samkv. lögum um launaskatt. Fyrir Ed. liggur frv. frá okkur sjálfstæðismönnum þar sem þetta er beint tekið fram. Fyrir sameinuðu þingi er þáltill. þar sem tekið er fram að gerðar verði margháttaðar ráðstafanir til eflingar Byggingarsjóðs ríkisins, en launaskattur megi aldrei vera lægri en 1%. Þetta breytir engu um það sem ég hef sagt áður. Það ber skylda til þess að 2% renni í Byggingarsjóð ríkisins.
Hv. þm. Vilmundur Gylfason stóð að flutningi sams konar till. á síðasta þingi og greiddi henni atkv., en það sem hann taldi vera rétt þá segir hann nú nauðaómerkilegt. Enginn tekur mark á slíku fleipri. Ég segi já.