15.12.1982
Sameinað þing: 30. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í B-deild Alþingistíðinda. (875)

1. mál, fjárlög 1983

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Hæstv. félmrh. sagði hér áðan að það væri sýndarmennska að flytja till. um þessa útgjaldaaukningu án þess að flytja till. um tekjuöflun á móti. Tekjuöflunin fer fram. Það hafa verið lagðir á skattar til þessarar tekjuöflunar. Tekjunum af viðkomandi sköttum er hins vegar ekki ráðstafað eins og lög mæla fyrir um. Sú till. sem hér er flutt fjallar aðeins um það að lög, sem hafa verið sett af Alþingi, séu virt. Þeir sem greiða atkv. á móti slíkri till. greiða atkv. gegn því að lög, sem þeir hafa sjálfir sett, séu virt. Ég segi já.