25.10.1982
Sameinað þing: 6. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í B-deild Alþingistíðinda. (88)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Í fréttum af umheiminum undanfarnar vikur, mánuði og jafnvel ár hefur einna hæst borið frásögn af vaxandi kreppu. Í iðnaðarríkjunum hefur kreppan einkennst af því að mörgum stærri iðnfyrirtækjum er lokað. Samfara þessu hefur atvinnuleysi stöðugt farið vaxandi og er nú víða orðið meira en 10. hver vinnufær maður. Atvinnuleysi það sem er í Bretlandi nú mundi t.d. samsvara því að 13 000 Íslendingar væru atvinnulausir.

Í mörgum hinum vestrænu iðnaðarríkjum hefur verið fylgt harðri stefnu í peningamálum, peningamálastefnunni svonefndu. Vextir hafa verið háir. Undan þessu hafa fyrirtækin verið að kikna og þau sem hafa lokað geta að sjálfsögðu ekki greitt sínar skuldir, enda spáir Alþjóðatollastofnunin í Genf, GATT, því að fram undan kunni að vera hrun bankakerfisins með kreppu sambærilegri þeirri sem skall á 1931. Fæstir telja þó ástandið svo alvarlegt sem betur fer. Með slíkum aðgerðum hefur víða tekist að halda verðbólgunni nokkuð í skefjum. Segja má að það hafi verið gert með því að svelta atvinnuvegina og fólkið.

Framsfl. hafnar þessari leið í baráttunni við verðbólguna. Það hefur sú ríkisstjórn sem nú situr jafnframt gert. Við teljum atvinnuleysi óviðunandi böl. Hinu verður ekki neitað, að mikil atvinna og miklar tekjur geta leitt til þenslu og viðskiptahalla, ekki síst ef útflutningur dregst saman. Við slíku er óhjákvæmilegt að bregðast.

Við Íslendingar höfum sloppið ótrúlega vel við kreppuna í nágrannalöndum okkar. Hennar hefur að vísu gætt nokkuð í iðnaði, sérstaklega orkufrekum iðnaði. Einnig hafa útflytjendur sjávarafurða til sumra Evrópulanda orðið fyrir barðinu á því jafnvægisleysi sem gætt hefur í gjaldeyrismálum. Yfirleitt hefur þó útflutningur sjávarafurða, sem þjóðarbúið byggir fyrst og fremst á, gengið vel þar til á þessu ári að hin alvarlega sölustöðvun á skreið verður í Nígeríu.

Efnahagserfiðleikar okkar eru því að verulegu leyti af öðrum toga spunnir en kreppan í iðnaðarríkjunum. Þeir stafa fyrst og fremst af aflabresti. Við veikleika í loðnustofninum varð vart á s.l. ári og loðnuveiðar varð að stöðva. Heildaraflinn varð um 100 þús. lestum minni en ráð var fyrir gert. Á þessu hefur ekki orðið breyting, því miður. Ólíklegt er að um nokkra loðnuveiði verði að ræða á þessu ári. Loðnuafurðir hafa numið um 7,5% gjaldeyristekna þjóðarinnar. Þessi samdráttur hefur í för með sér u.þ.b. 2% minni þjóðarframleiðslu. Að öllum líkindum verður þorskafli u.þ.b. 80 þús. lestum minni í ár en ráðgert var. Það veldur einnig um 2% minni þjóðarframleiðslu. Og það er útilokað að halda því fram, eins og kom fram í orðum Geirs Hallgrímssonar hér áðan, að ekki muni um 15% minni gjaldeyristekjur. Þetta er gífurleg blóðtaka fyrir íslenski þjóðarbú.

Síðastliðinn áratug nam hagvöxtur hér á landi 3,6% að meðaltali á ári. Þessi vöxtur byggir fyrst og fremst á vaxandi sjávarafla. Á árinu 1981 verður á þessu breyting. Þá er aflinn farinn að nálgast það hámark sem ætla má að okkar góðu fiskimið geti gefið. Á s.l. ári jókst þjóðarframleiðslan þó um 1,5%. Í ár er hins vegar talið að þjóðarframleiðslan muni dragast saman um 5% af ástæðum sem að framan er getið. Ofangreinda þróun verður að hafa í huga þegar fjallað er um framvindu efnahagsmála og aðgerðir ríkisstj. á því sviði.

Þegar ríkisstj. var mynduð setti hún sér sem megin markmið traust atvinnulíf, næga atvinnu og minnkandi verðbólgu. Þótt atvinnulíf hafi, vegna atvinnubrests og mikillar verðbólgu, ekki verið eins traust og æskilegt er hefur þó tekist að halda fullri atvinnu. Því markmiði hefur verið náð. Úr verðbólgu hefur einnig tekist að draga þótt ekki hafi náðst það markmið sem sett var á því sviði.

Eftir að ríkisstj. var mynduð dróst of lengi á árinu 1980 að grípa til aðgerða gegn verðbólgunni. Ýmsir töldu það erfitt vegna lausra kjarasamninga. Myndarlegt átak var hins vegar gert í upphafi ársins 1981. Verðbólgan stefndi þá í yfir 70% en með niðurtalningu hinna ýmsu þátta, sem áhrif hafa á verðbólguna, tókst að koma henni á síðari hluta ársins niður undir 40%. Það er ekki lítill árangur þegar þess er jafnframt gætt að á sama tíma hélst full atvinna og fullur kaupmáttur. Þetta tókst með því að draga úr verðbótum á laun 1. mars 1981, takmarka hækkun búvöruverðs og fiskverðs í samræmi við það, fresta fullri verðtryggingu fjármagns og hamla gegn vaxtahækkunum og setja þak á verðlagshækkanir. Kaupmátturinn var hins vegar varinn með skattalækkunum. Þótt þessar aðgerðir kæmu nokkuð hart við ýmsar atvinnugreinar verður því ekki neitað að mjög athyglisverður árangur náðist. Vafalaust er jafnframt að minni verðbólga vó margfalt upp það óhagræði sem aðgerðunum fylgdi. Það voru mistök að halda ekki áfram á sömu braut á síðari hluta ársins 1981.

Þegar þjóðhagsáætlun var lögð fyrir Alþingi í október í fyrra var talið að þjóðarframleiðslan ykist um 1% á þessu ári, viðskipti við önnur lönd yrðu hallalaus og úr verðbólgu drægi áfram. Við þessar aðstæður gaf ríkisstj. út í janúarmánuði s.l. áætlun sína um efnahagsmál. Þá var talið nægjanlegt að draga úr víxlverkun verðlags og kaupgjalds með því að endurskoða vísitöluviðmiðun. Jafnframt var leitast við að treysta grundvöll atvinnulífsins með því að draga úr útgjöldum, t.d. var launaskattur lækkaður. Forsendur þjóðhagsáætlunar breyttust hins vegar mjög skyndilega vegna minni sjávarafla. Þjóðhagsstofnun gaf því út nýja áætlun í upphafi þessa árs. Var þá talið að þjóðarframleiðslan drægist saman um 3% og viðskiptahalli gæti orðið 4–5%. Þá mátti þegar vera öllum ljóst að grípa varð til harðra aðgerða í efnahagsmálum. Ég lýsti mínu viðhorfi í ítarlegu viðtali í Tímanum í byrjun júní. Sumum þótti það einkennast af svartsýni. Aðeins nokkrum dögum síðar birti Þjóðhagsstofnun enn nýja áætlun. Þá var komið í ljós að þorskafli yrði einnig miklu minni en áætlað hafði verið. Nú taldi Þjóðhagsstofnun að þjóðarframleiðsla gæti dregist saman um allt að 6%. Jafnframt var viðskiptahalli orðinn 8–9%. Þessi snögga breyting boðaði alvarlegra ástand í efnahagsmálum en við Íslendingar höfum orðið að horfast í augu við allt frá því fyrir síðustu heimsstyrjöld.

Þótt samdráttur þjóðarframleiðslunnar og sú kjaraskerðing, sem slíku hlýtur að fylgja, sé vissulega mjög alvarlegt mál veldur viðskiptahallinn þó enn meiri áhyggjum. Viðskiptahallinn boðar að meiru er eytt en aflað. Hann merkir að erlendar skuldir þjóðarinnar aukast gífurlega. Greiðslubyrði af erlendum lánum var innan við 20% gjaldeyristekna á s.l. ári, sem getur alls ekki talist óeðlilegt miðað við þá vexti sem greiddir voru erlendis. Nú er hún orðin 22%. Ef viðskiptahallinn héldist áfram eins og hann hefur verið verður greiðslubyrðin komin upp í hvorki meira né minna en 33% árið 1985 eða þriðjung af gjaldeyristekjum þjóðarinnar. Slík greiðslubyrði er óbærileg og hlýtur að leiða til greiðsluþrots. Gegn viðskiptahallanum varð því fyrst og fremst að snúast.

Fljótvirkasta leiðin væri eflaust sú að draga mjög úr fjármagni í umferð og svelta fyrirtækin og fólkið þannig að minni eftirspurn verði eftir gjaldeyri. Það er leiftursóknin. Og ég heyrði ekki betur á orðum Geirs Hallgrímssonar áðan en hann væri þar við sama heygarðshornið. Þannig fer einnig íhaldsstjórnin í Bretlandi að og uppsker 10–12% atvinnuleysingja. Þessi ríkisstj. fer ekki þá leið, jafnvel þótt lengri tíma taki að snúa við alvarlegri þróun í viðskiptamálum.

Með brbl. frá 21. ágúst s.l. og yfirlýsingu um efnahagsmál er snúist gegn ofangreindum vanda, en þó þannig að ekki skapist atvinnuleysi. Gengisfellingunni í ágúst var ætlað að hækka verð á erlendum gjaldeyri og draga þannig úr eftirspurn og innflutningi og lagfæra viðskiptahallann. Ef slík gengisfelling er látin leiða til launahækkunar hefur hún að sjálfsögðu mjög lítil eða engin áhrif. Því var ekki um annað að ræða en taka áhrif gengisfellingarinnar út úr verðbótum launa. Það verður gert 1. des. n.k. Að sjálfsögðu er þar um kjaraskerðingu að ræða. Það er erfitt spor, en þó ólikt betra en atvinnuleysi eða stóraukin skuldasöfnun erlendis, sem gæti leitt til greiðsluþrots hins íslenska þjóðarbús.

Í yfirlýsingu ríkisstj. er jafnframt gert ráð fyrir öðrum aðgerðum, bæði til þess að létta þá byrði sem fyrrgreind kjaraskerðing veldur launþegum og einnig til þess að draga nokkuð úr víxlverkun verðlags og launa og stuðla þannig að áframhaldandi hjöðnun verðbólgu. Undir hið fyrra falla ákvæði um láglaunabætur og lengra orlof, en undir hið síðara breyting á viðmiðunarkerfinu, m.a. með lengingu vísitölutímabilsins og fleiru sem nú er til umræðu við fulltrúa launþega og vinnuveitenda. Þetta eru ekki óljósar áætlanir eins og Geir Hallgrímsson hélt fram áðan. Þetta eru raunhæfar áætlanir til hjöðnunar á verðbólgu og kemur greinilega fram í áætlun Þjóðhagsstofnunar mat hennar á áhrifum þessara aðgerða. Þjóðhagsstofnun telur að án aðgerða hefði verðbólgan stefnt í 80–90%, en með ofangreindum aðgerðum megi ná verðbólgu á næsta ári aftur niður í um 40—45%. Það er út af fyrir sig góður árangur, en mætti þó gjarnan vera meiri.

Aðgerðirnar nú eru um ýmislegt líkar efnahagsaðgerðunum í upphafi ársins 1981. Þá var einnig dregið úr verðbótum launa og hækkun búvöruverðs og fiskverðs og láglaunabætur ákveðnar. Í tveimur veigamiklum þáttum verða þær þó frábrugðnar.

Með efnahagslögum frá 1979 var stefnt að fullri verðtryggingu inn- og útlána. Við aðgerðirnar 1981 var hægt á vaxtahækkuninni og því frestað að ná fullri verðtryggingu. Í lok ársins, þegar verðbólga hafði hjaðnað og spáð var enn hjaðnandi verðbólgu árið 1982, var talið rétt að koma á fullri verðtryggingu inn- og útlána. Þessu hefur Seðlabankinn síðan haldið mjög til streitu, jafnvel svo að ýmsum, m.a. mér, þykir nóg um. Ég óttast að mörgum einstaklingum, t.d. þeim sem eru að byggja, reynist skuldabagginn þungur þegar tekjur hækka ekki í samræmi við verðlag og lánskjaravísitölu. Sömuleiðis er ljóst að fjármagnskostnaður mun reynast ýmsum fyrirtækjum ofviða er tekjur dragast saman eins og gerist með minni afla.

Ég minni á að þegar ákveðið var að taka upp fulla verðtryggingu var mjög um það rætt að slíkt væri vart framkvæmanlegt nema í minnkandi verðbólgu þannig að vextir og verðbólga mættust á niðurleið verðbólgunnar. Einnig var þá vakin athygli á því að með slíku fyrirkomulagi yrði að stórlengja lánstímann og auka rekstrarfé í samræmi við verðbólgu. Þetta hefur ekki tekist nema í tiltölulega litlum mæli.

Nú er svo komið að jafnvel Alþfl.-þm. er farið að blöskra. Þeir flyt a frv. um að létta fjármagnskostnaði af einstaklingum. Ég er sammála þeirri hugsun sem í því felst, en slíki þarf einnig að ná til fyrirtækjanna. Með vaxtahækkun og gífurlegri takmörkun rekstrarfjár er hætt við að atvinnufyrirtæki geti stöðvast. Það gæti þessi ríkisstj. ekki horft upp á aðgerðarlaus og það mun hún ekki gera. Með þessu er ég ekki að boða að hverfa eigi frá verðtryggingu inn- og útlána. Hins vegar tel ég að í því sambandi sé óhjákvæmilegt að taka tillit til aðstæðna, t.d. almennrar greiðslugetu.

Í öðru lagi var talið óhætt í lok ársins 1981 að slaka á verðlagseftirliti. Í sumum tilfellum varð verðákvörðunin í raun og veru frjáls, eins og t.d. hjá Landsvirkjun, sem á eigin spýtur hefur nú hækkað heildsöluverð raforku um 35%. Sjálfstæðismeirihlutinn í Reykjavík boðar yfir 30% hækkun á Hitaveitu Reykjavíkur nú og ársfjórðungslega næsta ár. Þetta þýðir hvorki meira né minna en hátt í þreföldun á taxta Hitaveitunnar á einu ári. Sú spurning hlýtur að vakna hvort hjá slíkum fyrirtækjum landsmanna, sem hafa nánast einokun, sé gætt nægilegrar ráðdeildar.

Að mati Þjóðhagsstofnunar munu þær efnahagsaðgerðir, sem ég hef nú lýst, ná umtalsverðum árangri. Þeim árangri má alls ekki fórna í refskák stjórnmálanna. Hitt er svo annað mál, að sumum kann að virðast að lengra þurfi að ganga. Við framsóknarmenn erum til viðræðu um það, enda sé þess gætt að atvinnuvegirnir hafi viðunandi rekstrargrundvöll og atvinna sé næg. Að okkar mati þurfa niðurtalningarskrefin að vera tíðari.

Sá samdráttur í afla sem fyrst og fremst veldur erfiðleikum í dag hefur að sjálfsögðu lagst þyngst á sjávarútveginn. Gengisfellingin í ágústmánuði, sem byggð var á tillögum Seðlabanka Íslands, veitti ekki svigrúm til þess að leiðrétta nægilega rekstrargrundvöll útgerðarinnar. Í tengslum við efnahagsráðstafanirnar varð því að láta nægja að bæta að stórum hluta það mikla tap sem togararnir höfðu orðið fyrir á fyrri hluta ársins. Einnig var lagt fjármagn í Stofnfjársjóð fiskiskipa til þess að vega gegn hækkun gengistryggðra lána útgerðarinnar. Þá verður 10 millj. kr. varið til orkusparandi aðgerða og átaks í gæðamálum, 15 millj. til aðstoðar við loðnuverksmiðjurnar og 5 millj. til að efla lífeyrissjóði sjómanna. Þótt þessar aðgerðir séu mikilvægar var ljóst að lagfæra varð rekstrargrundvöllinn enn. Það var gert eftir hörð átök við fulltrúa útgerðarmanna. Ég ætla ekki að rekja hér gang þeirra mála. Ég fagna því að skynsemin var látin ráða og fallist var á þær ráðstafanir sem ríkisstj. bauð. Það forðaði svo sannarlega frá miklum vanda.

Meðal þessara aðgerða er mjög umfangsmikil skuldbreyting sem ég geri mér fastlega vonir um að gangi langtum hraðar en samsvarandi skuldbreyting á árunum 1975–1976. Þessi framkvæmd er eðlileg þegar þess er gætt að við fulla verðtryggingu verður að lengja lán atvinnuveganna eins og lofað var. Lækkun olíukostnaðar er mikilvæg til þess að bæta greiðslustöðu útgerðarinnar. Olíukostnaður togaranna hefur hækkað úr um 11 % aflaverðmætis 1973 í tæplega 25% nú. Með niðurgreiðslunni lækkar þessi kostnaður niður fyrir 20%. Niðurgreiðsla er ætíð umdeilanleg. M.a. af þeirri ástæðu þótti mér rétt að gera aðeins ráð fyrir niðurgreiðslu á olíu til áramóta og veita Alþingi tækifæri til þess að taka afstöðu til framhaldsaðgerða. Um þau mál verður fjallað í fullu samráði við hagsmunaaðila og stjórnarandstöðu.

Ekki vinnst tími til þess að rekja hér og nú þær aðgerðir sem líklegastar eru til þess að rétta við rekstrargrundvöll útgerðarinnar. Einstakir spekingar virðast þó hafa fundið lausnarorðið. Mér skilst að of stór floti sé mesti efnahagsvandi íslensku þjóðarinnar. Þessu er ég ósammála. Hvar værum við Íslendingar staddir ef við ættum ekki öflugan fiskveiðiflota? Þá værum við ekki á meðal auðugustu þjóða. Hér væru lífskjörin bágborin. Ég viðurkenni að þorskveiðiflotinn er óþarflega stór eftir að nauðsynlegt varð að heimila loðnuskipunum þorskveiðar. Staðreyndin er þó sú, að þessi stóri floti nær ekki þeim afla sem fiskifræðingar mæla með og þjóðarbúið þarfnast. Jafnframt hef ég talið sjálfsagt að stuðla að endurnýjun flotans og eðlilegt að nýta í því sambandi ýmsa góða möguleika á ódýrum skipum erlendis. Þessi undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar á að búa við góð og fullkomin skip.

Nei, vandinn er ekki of stór floti eða eðlileg endurnýjun hans. Vandinn er fyrst og fremst of dýr skip og of litið eigið fjármagn í þeim skipum. Að hluta stafar þetta af því að innlendar skipasmíðar hafa ekki notið sömu fyrirgreiðslu og keppinautar þeirra erlendis. Það er því í raun og veru iðnaðarvandamál sem hefur veríð velt yfir á útgerðina. Það veldur gífurlegum kostnaðarauka að öll lán til innlendrar skipasmíði hafa verið í dollurum. Kostnað við slík lán fær enginn borið að óbreyttu.

Staða fiskvinnslunnar var erfið þegar þessi ríkisstj. tók við í upphafi ársins 1980. Þá hafði gengi ekki verið lagað að kostnaðarhækkunum innanlands eins og nauðsynlegt er. Þetta hefur smám saman verið leiðrétt, bæði með aðlögun gengis að kostnaðarhækkunum en jafnframt með ýmsum öðrum aðgerðum. Einna mikilvægast tel ég það samkomulag sem náðist við Seðlabanka Íslands um miklar endurgreiðslur á fjármagnskostnaði. Þær námu 230 millj. kr. til útflutningsatvinnuveganna samtals á s.l. ári. Þá er einnig ákaflega mikilvægt að afurðalánum var breytt úr dollaralánum í lán meðvöxtum sem nema 29%. Ekki síst með tilliti til þeirrar þróunar, sem orðið hefur á gengi dollarans, má ljóst vera hve mikilvæg þessi breyting hefur reynst. Útflutningsatvinnuvegum þjóðarinnar, ekki síst grundvallargreinum eins og útgerð og landbúnaði, verður að tryggja viðunandi rekstrarstöðu.

Þessa dagana er mjög rætt um þá staðreynd að ríkisstj. hefur misst meiri hluta sinn í Nd. Mér datt þó satt að segja ekki í hug að stjórnarandstaðan legðist sem heild gegn brbl. Það væri slíkt ábyrgðarleysi að annað eins hefur varla þekkst. Vissulega kom til greina að láta þm. standa frammi fyrir ábyrgðarlausum yfirlýsingum, gefa þeim kost á að fella brbl. strax og efna til kosninga fyrir miðjan nóvember. Við framsóknarmenn leggjum á það höfuðáherslu í þessu sambandi að alls ekki má þó fórna þeim vinning sem í efnahagsráðstöfunum ríkisstj. felst. Því er ekki um annað að ræða en lita raunsætt á stöðu mála og taka á vandanum af fullkominni ábyrgð. Annað er óréttlætanlegt.

Eina ábyrga leiðin í stöðunni er að ríkisstj. og stjórnarandstaða semji um framgang mikilvægustu lykilmála. Þessar viðræður eru hafnar. Stjórnarandstaðan gerði kröfu til þess að samið yrði um þingrof og kosningar. Þetta teljum við sjálfsagt að ræða í tengslum við samkomulag um meðferð nauðsynlegustu þingmála. Þannig hefur verið gengið til móts við stjórnarandstöðuna. Viðbrögð hennar hafa valdið mér vonbrigðum. Nú er þess krafist að ríkisstj. segi af sér. Það leysir engan vanda. Það breytir heldur engu í efnahagsmálum hvort kosningar verða í jan. eða febr. eða t.d. í apríl þegar færð er orðin skárri um erfiðustu kjördæmin. Það er einlæg von mín að menn átti sig á þessu og fjalli næstu daga af ábyrgð um meðferð nauðsynlegustu þingmála og efnisatriði í því sambandi og semji síðan um kjördag með tilliti til eðlilegs framgangs þingmála og tíðarfars.

Góðir Íslendingar. Við lifum að ýmsu leyti á erfiðum tímum. Það stafar að hluta af mjög miklum efnahagsörðugleikum í flestum eða öllum viðskiptalöndum okkar. Líklega hefði þó tekist að sigla fram hjá þeim erfiðleikum að mestu leyti ef ekki hefði skapast vandamál af allt öðrum toga, þ.e. aflabrestur. Sá mikli samdráttur, sem þessu fylgir í þjóðarframleiðslu, leiðir óhjákvæmilega um tíma til lakari afkomu þjóðarbúsins og einstaklinga. Hjá því verður ekki komist. Með fulla atvinnu og miklar tekjur undanfarin ár erum við Íslendingar hins vegar vel undir slíkt búnir, enda er ég þess fullviss að við munum fljótlega rétta úr kútnum að nýju. Við höfum allan grundvöll til þess. Fiskimiðin eru gjöful og munu áfram standa undir stærstum hluta þjóðarframleiðslunnar. Við eigum mikla ónotaða orku og ágætt land til framleiðslu á landbúnaðarafurðum þar sem nýjar og álitlegar búgreinar hasla sér völl. Aukin framleiðsla er að sjálfsögðu lausnarorðið þegar til lengri tíma er litið. Undir það átak þurfum við að búa okkur með minnkandi verðbólgu og meiri ráðdeild á öllum sviðum.

Við Íslendingar vorum fátæk þjóð. Á fátæktinni unnum við sigur. Nú ríkir hér velmegun. Ekki er síður nauðsynlegt að ná tökum á velmeguninni.

Ég þakka þeim sem hlýddu.