15.12.1982
Efri deild: 19. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (883)
28. mál, málefni aldraðra
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Frv. um málefni aldraðra hefur nú sætt meðferð í hv. Nd. og það er í rauninni komið í annað sinn fyrir þingið, því að ég lagði það einnig fyrir síðasta Alþingi, en það hlaut þá ekki afgreiðslu. Það má líka segja að þetta mál hafi verið nokkuð lengi til meðferðar hér á hv. Alþingi. Allt frá 1980 hafa málefni aldraðra verið rædd hér, í báðum deildum þingsins og í Sþ. Árangurinn af þeirri umræðu hefur raunar þegar komið fram, m.a. í þessu frv. og samningu þess og á ári aldraðra, sem ákveðið var hér á Alþingi fyrir árið 1982. Sérstaklega hefur þó þetta komið í ljós með þeim hætti, að framkvæmdir í þágu aldraðra hafa verið stórauknar frá því sem áður var. Framkvæmdageta þess fjármagns, sem nú fer til byggingar fyrir aldraða á árinu 1982, er liðlega tíföld á við það sem var árið 1976. Hér hefur sem sagt mikil umræða um stórt mál skilað árangri, þar sem margir hafa lagt góða hönd að.
Þetta frv., sem hér er um að ræða, var samið af nefnd sem ég skipaði 24. júlí 1981. Í nefndinni voru Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands, Þórarinn V. Þórarinsson lögfræðingur, tilnefndur af Vinnuveitendasambandi Íslands, Hrafn Sæmundsson prentari og Pétur Sigurðsson alþingismaður, sem voru skipaðir af ráðh. án tilnefningar. Auk þess voru í nefndinni, sem undirbjó frv., þeir sömu og skipa stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra, þ.e. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri, Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Gunnhildur Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri, tilnefnd af Öldrunarfræðafélagi Íslands. Starfsmaður nefndarinnar var ráðin Dögg Pálsdóttir lögfræðingur og hefur hún starfað að málefnum aldraðra í heilbrmrn. um nokkurt skeið.
Eins og ég gat um hefur mál þetta þegar sætt meðferð í hv. Nd. Ætla ég því ekki að fjölyrða um efni frv. í einstökum atriðum þar sem mér er kunnugt um að heilbr.og trn. þessarar deildar hefur starfað með n. í Nd. að málinu. Í Nd. tók frv. nokkrum breytingum sem ekki eru stórvægilegar í rauninni, og eru flestar til bóta að mínu mati. Málið fékk þar hraðan byr og samhljóða afgreiðslu. Vil ég leyfa mér að láta þá ósk í ljós að hv. Ed. treysti sér til að afgreiða málið nú þegar, fyrir áramót, svo að lögin um málefni aldraðra verði til á því ári sem helgað er þeim sérstaklega.
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til, nema til þess gefist önnur tilefni, að fjölyrða frekar um málið. Ég legg til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og heilbr.- og trn.