15.12.1982
Efri deild: 19. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (885)

28. mál, málefni aldraðra

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Davíð Aðalsteinssyni fyrir góðar undirtektir við málið og skil hann svo, að hann muni leggja kapp á að ljúka afgreiðslu þess fyrir áramót. Varðandi síðustu setningarnar í máli hans, um kostnaðaráætlun vegna frv. þessa, þá hefur það að sjálfsögðu verið reiknað út þegar frv. var til meðferðar í ríkisstj. á sínum tíma. Þá var rækilega farið yfir öll kostnaðarákvæði frv., eins og reyndar er skylt að gera samkv. lögum nr. 13 frá 1979, svokölluðum „Ólafslögum.“ Það var farið mjög ítarlega yfir þessi ákvæði.

Ég ætla að fara fram á það við hv. þm., sem jafnframt er formaður í n. sem fær málið til meðhöndlunar, að hann fái þessa umsögn frá fjárlaga- og hagsýslustofnun. Hún liggur þar fyrir og hefur lengi leið, svo að þar ætti ekkert að þurfa að fara á milli mála. Ég þori ekki að fara með þessar tölur alveg eftir minni, en má þó segja að ef við lítum aðeins yfir frv. þá sé ljóst að þar sé ekki um verulegan kostnaðarauka að ræða. Ég ætla aðeins að hlaupa yfir frv. með tilliti til kostnaðarins.

Í I. kafla er fjallað um skipulag öldrunarþjónustu. Sá kafli á ekki að hafa í för með sér annan kostnað en þann sem fylgir störfum þeirra nefnda og samstarfshópa sem þar er gert ráð fyrir. Þó á t.d. þjónustuhópur við aldraða, sem er samstarfshópur starfsfólks á heilsugæslustöðvum, ekki að kosta aukafjármuni, vegna þess að þar er um að ræða fólk sem starfar hvort eð er á þessum stöðvum og þiggur þegar laun að mestu leyti frá ríkinu.

Eini viðbótarkostnaðurinn, sem um er að ræða samkv. I. kafla og í rauninni skiptir e.t.v. einhverju verulegu, er vegna 2. gr. frv. þar sem gert er ráð fyrir því að það verði starfandi deild öldrunarmálefna í heilbr.- og trmrn. Hér er um að ræða laun eins starfsmanns eða svo, ég geri ekki ráð fyrir að slík deild verði fjölmennari en það. Og raunar hefur þegar verið að störfum í heilbr.- og trmrn. einn maður í þágu málefna aldraðra.

II. kafli frv. fjallar um Framkvæmdasjóð aldraðra. Þar er aðeins verið að staðfesta lög sem þegar hafa verið samþykkt. Það er verið að setja lögin um Framkvæmdasjóð aldraðra, sem voru samþykkt 1980, inn í ný lög um málefni aldraðra. Sá kafli á því ekki að hafa breytingar í för með sér frá því sem nú er þegar í lögum. Það er auðvitað sá kafli sem er lang fjárfrekastur, en þar eiga ekki að vera ný kostnaðarákvæði umfram það sem þegar er í lögum um Framkvæmdasjóð aldraðra.

III. kaflinn er sá kafli sem aðallega hefur í för með sér kostnaðarauka. Sá kafli gerir ráð fyrir því að heimaþjónusta verði að nokkru leyti greidd af ríkinu. Nánari ákvæði um þetta er að finna í 27. gr. frv. Þar stendur: „Kostnaður af rekstri heimaþjónustu skal greiddur af sjúkrasamlögum, þó þannig að sveitarfélögin greiða 65% kostnaðar en ríki 35% kostnaðar.“ Þetta ákvæði er auðvitað sett þarna inn til að ýta undir það að sveitarfélögin verði með þjónustu við aldraða í heimahúsum, svo að minna þurfi en ella af stofnunum fyrir aldraða, húsum sem þurfi að reisa til að taka við þeim í hjúkrunarþjónustu eða til dvalar.

Kostnaðurinn við þessa grein, þegar hann var reiknaður út á s.l. ári, var að mig minnir 5–6 millj. kr., miðað við þá heimaþjónustu sem þá þegar var komin í hinum ýmsu sveitarfélögum í landinu, sem eru auðvitað einkum þau stærri. Á móti þessu kemur svo það að ríkið losnar við verulegan kostnað af heilbrigðisþjónustu með því að heilsugæslustöðvar taka til starfa í hinum einstöku umdæmum.

Það er alveg ljóst að heilsugæslustöðvarnar eru ódýrari fyrir ríkið heldur en gamla númeralæknakerfið. Á síðasta ári reiknuðum við út hvaða áhrif það hefði ef heilsugæslustöðvar tækju til starfa í Reykjavík einnig, en númeralæknakerfið yrði lagt niður þar á móti. Niðurstaðan af þeirri athugun sýndi að sú kerfisbreyting ein út af fyrir sig hefði sparað ríkinu í kringum 10 millj. kr. á verðlagi ársins 1981.

Þegar ég var að ræða þessi mál m.a. í ríkisstj. og við fjmrn.lagði ég áherslu á að rekstur heimaþjónustunnar mætti gjarnan skoða sem þátt í viðleitni okkar til að koma heilsugæslustöðvafyrirkomulaginu á hér í Reykjavík. Borgarstjórn Reykjavíkur tók — og tekur reyndar enn mjög vel undir þetta sjónarmið. Samþykkt þessa frv. með þessu ákvæði í 27. gr. er í raun og veru ein af nauðsynlegum forsendum þess að borgarstjórn Reykjavíkur fallist á að koma á heilsugæslustöðvakerfi hér í borginni. Þess vegna er samþykkt þessa frv. mikilvægur liður í því að bæta heilsugæslufyrirkomulagið hér í Reykjavík, sem að mörgu leyti er skemmra á veg komið en hjá ýmsum öðrum byggðarlögum í landinu.

Annar kostnaður í frv. kemur aðallega fram í 26. gr. Þar er um að ræða nýmæli sem hefur í raun og veru í för með sér miklar breytingar á fyrirkomulagi greiðslu fyrir vistun aldraðra á stofnunum. Hér er um að ræða viðkvæmt mál að mörgu leyti sem hefur tekið nokkurn tíma að fá menn til að sættast á. Eins og þessu er nú háttað greiða aldraðir vistmenn á dvalarheimilum eða svokölluðum elliheimilum eins mikið og þeir geta af sínum ellilífeyri og sínum lífeyri úr lífeyrissjóðum fyrir dvölina á elliheimilinu, en síðan bætir Tryggingastofnun ríkisins þar nokkru við.

Þegar sami aldraður einstaklingur leggst inn á hjúkrunarheimili, sem oft vill verða, þá gerist það að lífeyrir hans úr lífeyrissjóði fer ekki til að kosta vistunina heldur rennur þessi lífeyrir beint inn á bók hjá viðkomandi einstaklingi, hann gengur beint til þessa manns. Þegar tillit er tekið til svokallaðra vasapeninga og annars, þá hefur aldraður maður á elliheimili yfirleitt mjög knappan fjárhag. Hér er gert ráð fyrir að lagfæra það nokkuð. Hins vegar þegar hann kemur á hjúkrunarheimili batnar fjárhagur hans, þó að viðkomandi aldraður einstaklingur sé að jafnaði rúmfastur eða svo til, þegar hann nýtur hjúkrunarþjónustunnar. Þetta er auðvitað mjög óeðlilegt fyrirkomulag. Í þessu frv. er stigið það mikilvæga skref að reyna að hafa sams konar fjármögnun hvort sem hinn aldraði einstaklingur er á dvalarstofnun eða hjúkrunarheimili.

Þetta hefur ekki í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Raunar mun þetta draga úr kostnaði fyrir ríkissjóð við langleguvistun þegar fram í sækir. Þegar lífeyrissjóðirnir eflast og fleiri og fleiri fá lífeyri úr lífeyriss jóðum, þá mun það gerast að þeir yfirtaka stærri og stærri hluta af kostnaðinum við vistun á hjúkrunarheimilum. Í rauninni er því verið að leggja til í 26. gr. að færa byrðar vegna langleguvistunar aldraðra yfir af ríkissjóði að nokkru leyti yfir á lífeyrissjóðina. Þetta gerist hins vegar á löngum tíma. Það er ómögulegt að segja hversu hratt það gerist.

Ég held, herra forseti, að mér sé alveg óhætt að segja það með góðri samvisku að þetta frv. út af fyrir sig flytur ekki verulegar kostnaðarbyrðar yfir á ríkissjóð. En allar upplýsingar um þau efni er hægt að fá í fjárlaga- og hagsýslustofnun.

Ég vil þó benda á að sú stofnun hefur jafnan þann hátt á að reikna allt til hins ýtrasta. Þegar hún fékk til meðferðar frv. til l. um heilbrigðisþjónustu, sem hv. þm. Nd. kannast við, reiknaði stofnunin með því að allir sjúkraþjálfararnir væru komnir til starfa á öllum heilsugæslustöðvum á landinu, a.m.k. einn á hverri stöð og jafnvel fleiri, enda þótt vitað sé að ekki eru til nema kannske fimm eða tíu sjúkraþjálfarar til að gegna þeim störfum sem þar er um að ræða. Þó að fjárlaga- og hagsýslustofnun reikni oft rétt, þá reiknar hún suma hluti fullítarlega stundum að mínu mati og gleymir því iðulega, að það er Alþingi sem auðvitað ákveður hvernig til kostnaðarins er stofnað hverju sinni við afgreiðslu fjárlaga.