15.12.1982
Efri deild: 19. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (887)
120. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breyting á lögum nr. 69 30. apríl 1973, um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum.
Í 1. gr. frv. er gert ráð fyrir því að samgrn. fái heimild til að ákveða frávik frá fjölda skipstjórnarmanna á verslunarskipum, eftir því sem tilefni gefst til, eins og þar segir, miðað við búnað og/eða verkefni skips. Jafnframt segir þar að þetta sé heimilt að fengnum tillögum mönnunarnefndar, sem skipuð skuli þremur fulltrúum Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, þremur fulltrúum útgerðaraðila kaupskipa og oddamanni, sem tilnefndur sé af aðilum sameiginlega eða af Hæstarétti Íslands, ef samkomulag næst ekki.
Brbl. þessi voru sett í samræmi við þá lausn sem fékkst á allharðri deilu Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og útgerðaraðila verslunarskipa. Hér er um að ræða, eins og fram kemur í greininni, frávik frá þeirri skyldu sem nú er um mönnun þessara skipa.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta mál mörg orð. Nefnd sú sem um ræðir í 1. gr. hefur þegar verið skipuð og samkomulag varð um formann eða oddamann. Hér er farið fram á að Alþingi staðfesti þessi brbl. og þar með lausn á þeirri deilu sem ég nefndi á milli Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og útgerðaraðila.
Að svo mæltu legg ég til, herra forseti, að frv. þessu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. samgn.