16.12.1982
Sameinað þing: 31. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (911)

266. mál, réttindi sjúkranuddara

Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör hans og tek undir það með honum að út úr þessu máli sé sú ein leið, sem hann ræddi hér sérstaklega, þ.e. að setja heildstæða löggjöf um heilbrigðisstéttirnar og ákveða þeim að öðru leyti starfssvið í reglugerð. Ég óttast að vísu að varðandi þá löggjöf eigi margir eftir að koma og spyrja um sinn rétt og sínar fyrri tryggingar gagnvart starfsheitum og lögverndun þeirra, en vafalaust verður þannig um hnútana búið að þessir aðilar þurfi ekki undan að kvarta.

Ég vil svo ítreka enn og aftur mikilvægi þess að nýta alla starfskrafta sem unnt er til endurhæfingarstarfs. Það starf er oft um leið fyrirbyggjandi og hefur gerbreytt öllum lífshögum og líðan ótalinna aðila.

Ég tel einnig nauðsyn á að nám í þessum afmarkaða þætti sjúkraþjálfaranámsins gæti farið fram hér á landi í ljósi þess stórfellda skorts á sjúkraþjálfurum sem hér hefur verið og útlendingar hafa æ ofan í æ þurft að bjarga að miklu leyti.

Við vitum að það eru æ fleiri stöðvar sem rísa upp til endurhæfingar og þjálfunar. Heilsugæslustöðvar á öllum stærri stöðum munu reyna að fara inn á vissa endurhæfingu svo sem mögulegt er, og að ekki sé nú talað um sjúkrahúsin úti á landsbyggðinni. Þetta er þeim brýn nauðsyn. Og að ekki sé nú talað um íbúana á þessum stöðum, að þeir þurfi ekki ævinlega að fara hingað suður til þeirrar endurhæfingar sem þeim er talin nauðsyn til þess að þeir nái sínum fyrri starfskröftum t.d. eftir erfiðar aðgerðir.

Því legg ég áherslu á að þessi mál séu tekin upp á svipaðan hátt og hæstv. ráðh. var með hugmyndir um áðan, heildstæð löggjöf verði um þetta sett og allir kraftar í heilbrigðiskerfinu nýttir til hins ýtrasta til þess að koma endurhæfingarmálum okkar í sem best horf.