16.12.1982
Sameinað þing: 31. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1194 í B-deild Alþingistíðinda. (913)

107. mál, sveitarafvæðing

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Málefni sveitarafvæðingar komu til umr. hér í síðustu viku, all ítarlegrar, og þá kom fram hver staðan væri varðandi fjárveitingar á þessu ári og margt fleira varðandi þetta mál.

Hér er borin fram fsp. varðandi ráðstöfun fjár samkv. tillögum orkuráðs frá því í apríl s.l. til Selársdalslínu vestra, en til ráðstöfunar voru að mati orkuráðs og samkv. fjárveitingum 1 millj. 261 þús. kr., en kostnaður við lagningu Selárdalslínu var áætlaður 2 millj. 355 þús. kr. Orkuráð gerði tillögu um að verja þessu takmarkaða fjármagni í þetta tiltekna verk og hafði fært upp á sinni skrá Selárdalslínu úr fimmta sæti, þar sem hún var í marsmánuði s.l. á skrá ráðsins, upp í fyrsta sæti 2–3 vikum síðar á grundvelli þess, að fundnir væru fleiri notendur í hreppnum heldur en áður var að mati ráðsins. Ég taldi, eftir að hafa fengið þessa tillögu orkuráðs með þessari skyndilegu breytingu á röðun á þessum raflínum, nauðsynlegt að athuga þetta mál nokkru nánar, til þess að ljóst væri að þarna væri farið að með eðlilegum hætti og einnig hvaða möguleikar væru á því að ljúka þessu verki á þessu ári.

Áður hafði verið í fyrsta sæti á skrá orkuráðs frá held ég 24. eða 25. mars á þessu ári svokölluð Njarðvíkurlína í Borgarfirði eystra, og kostnaður við lagningu hennar var metinn á um 800 þús. kr. Það var því ljóst að fjármagnið, sem þarna var til ráðstöfunar, mundi hrökkva til að ljúka því verki og rúmlega það.

Ég lét kanna þetta mál s.l. sumar, líklega í júlímánuði, og frétti þá að framkvæmdir væru hafnar við lagningu Selárdalslínu án þess að staðfesting lægi fyrir af hálfu rn. á tillögu orkuráðs í þessu sambandi. Ég lét grennslast fyrir um það, hvernig það mætti vera, og þá höfðu farið þarna einhver munnleg skilaboð á milli, sem ég kann ekki nánar að greina frá, og Orkubú Vestfjarða hafði ráðist í verkið án þess að hafa tryggingu og nokkuð bréflegt um málið. Ég fékk upplýsingar um það frá orkuráði eða starfsmönnum þess, hvaða notendur hefðu fundist nýir í Ketildalahreppi. Þeir reyndust samkv. endurmati vera orðnir átta í staðinn fyrir fimm áður og þannig hafði þessi breyting verið gerð á röðun af hálfu orkuráðs. Ég ætla hér ekki að fara að tíunda hverjir þar voru tiltaldir nýir og ætla ekki út af fyrir sig að vefengja það, en kirkjan í hreppnum var, ef ég man rétt, í hópi hinna nýju notenda og ekki lasta ég það að fá ljós í kirkju.

Nú var það ljóst í sumar að þetta verk yrði unnið á vegum Orkubús Vestfjarða þrátt fyrir það að ljóst væri að fjárveiting hrykki ekki til þess, og ég hef verið áhugamaður um það að koma sveitarafvæðingu áfram. Ég tel að til lögur míns rn. beri vott um það frá liðnum árum. Því hóf ég málaleitun um það þá þegar að fá Byggðasjóð í lið við þetta mál og tókst í byrjun sept. að fá heimild fyrir Byggðasjóð til að taka á sínum vegum lán að upphæð 2 millj. kr. til þess að nóg efni væru til til að ljúka Selárdalslínu og einnig að ljúka lagningu Njarðvíkurlínu í Borgarfirði eystra. Það hefur því miður dregist hjá Byggðasjóði að afgreiða þetta mál, taka afstöðu til þessarar lántökuheimildar, sem sjóðurinn hefur, en ég geri mér von um að það fáist niðurstaða á næsta fundi Byggðasjóðs. Ég hef ákveðið að staðfesta þessa tillögu orkuráðs og vona sem sagt að geta bætt um betur og fengið með tilstyrk Byggðasjóðs nægjanlegt fé fyrir þessa framkvæmd í heild sinni í ár, þannig að það íþyngi ekki Orkubúi Vestfjarða, sem á við fjárhagsörðugleika að stríða, og auk þess verði hægt að leggja þá línu, sem að mati Orkuráðs í mars s.l. var efst áblaði, Njarðvíkurlínu í Borgarfirði eystra, en það mun þó fara mjög eftir tíðarfari, hvort unnt er að ljúka þeirri framkvæmd fyrir lok ársins eður ei.

Bréf frá orkuráði barst mér 23. nóv., þar sem ráðið átelur að ég skuli ekki enn hafa afgreitt þetta og skorar á mig að afgreiða þetta þegar í stað. Hv. fyrirspyrjandi vitnaði til þess. Ég hef ekkert út af fyrir sig við það að athuga að ráðið sé með áskoranir af þessu tagi. En það er jafn ljóst að það er ráðh. að taka við tillögum orkuráðs og taka afstöðu til þeirra samkv. lögum, og ég vænti að svar mitt skýri það, hvaða ástæður lágu til þess að ekki var þegar í stað við brugðist og orðið við þessari tillögu orkuráðs s.l. vor. Ég tel að það hafi verið gildar ástæður til að athuga málið betur, en það hefur aldrei verið í mínum huga að nýta ekki það takmarkaða fjármagn sem þarna var um að ræða. Þvert á móti hef ég lagst á árar til að fá viðbótarfjármagn og geri mér góðar vonir um að það fáist nú einhvern næstu daga með jákvæðum viðbrögðum frá Byggðasjóði um að taka þátt í lausn þessa máls. Með því mundi þeim jörðum innan 6 km meðaltalsfjarlægðar fækka úr 32, sem voru á skrá í ársbyrjun, um 10 eða niður í 22, sem þá væru eftir.