16.12.1982
Sameinað þing: 31. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í B-deild Alþingistíðinda. (916)
107. mál, sveitarafvæðing
Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Ég vil fyrst aðeins leggja áherslu á að það er ekkert beint samband milli þess að taka ákvörðun um ráðstöfun þess fjármagns sem ráðstafað er áfjárlögum til sveitarafvæðingar og að leita leiða til að fá lánsfjármagn í þessu skyni. Í öðru lagi er það óhæfa að láta líða átta mánuði frá því að tillögur Orkusjóðs komu fram og þar til nú að ráðh. lofar að ganga frá þessu máli. Það er alger óhæfa. Það er staðreynd að Byggðasjóður og Framkvæmdastofnun og sérstaklega framkvæmdastjóri hennar sem hér var nefndur á nafn, Sverrir Hermannsson, hefur haft mikinn áhuga á því að lánsfjármagn fengist í þessu skyni, en það hefur staðið á ríkisstj. Ef ríkisstj. hefði sýnt framtak þá væri búið að ganga frá þessu máli.