25.10.1982
Sameinað þing: 6. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í B-deild Alþingistíðinda. (92)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Landbrh. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Í þeim umr. sem fram hafa farið hér í kvöld sem og í stjórnmálaumræðu síðustu vikna hefur tvö meginefni borið hæst. Í fyrsta lagi efnahagsmál og efnahagsráðstafanir ríkisstj., í öðru lagi hina pólitísku stöðu sem upp er komin á Alþingi og spásagnir um hvenær efnt kunni að verða til kosninga.

Í yfirgripsmikilli ræðu fjallaði forsrh. ítarlega um fyrra atriðið. Ég vil því aðeins nefna örfáa þætti. Brbl. ríkisstj. frá því í ágústmánuði hafa það meginhlutverk að verja þjóðfélagið verstu afleiðingu þeirra alvarlegu áfalla sem þjóðarbúið hefur orðið fyrir á þessu ári. Þessi áföll, sem hvort tveggja hafa komið fram í aflatregðu og markaðsþrengingum, eru þeim mun erfiðari viðfangs sem þau hafa komið ofan í langvarandi verðbólguþróun innanlands sem erfiðlega hefur gengið að kveða niður. Engum dylst að efnahagsráðstafana var þörf og brbl. hefur verið tekið með skilningi af þjóðinni. Spyrja má hvort ekki hafi verið þörf harðari ráðstafana og að þær væru fyrr á ferðinni en raun varð á. Slíkum spurningum má að vísu svara játandi, en á það verður að lita að það tekur tíma að ná pólitískri samstöðu um slík mál, og hverju sinni verður eigi gengið lengra en svo að fullvíst megi telja að ráðstafanir verði eigi brotnar niður af hagsmunasamtökum eða pólitískum liðsoddum.

Áhrif brbl. á efnahagslífið eru enn ekki komin fram nema að hluta þannig að talið er að verðbólga verði allt að 30% minni á næsta ári þeirra vegna en ef ekki hefði verið að gert. Í yfirlýsingu ríkisstj. sem fylgdi brbl. eru veigamikil atriði sem sum hver krefjast breytinga á löggjöf. Ég tel það mjög mikilvægt að um nokkur slík meginatriði hafi verið tekin ákvörðun eða lagafrv. lögð fram áður en frv. til staðfestingar brbl. verður afgreitt á Alþingi. Svo er t.d. varðandi ákvæði um láglaunabætur, breyting á lögum um orlof og nýtt viðmiðunarkerfi fyrir laun. Ég hygg að ekki sé ofsagt að núverandi vísitölukerfi hafi gengið sér til húðar. Alvarlegustu gallar þess eru sjálfvirkni í launa- og verðlagsbreytingum fjórum sinnum á ári og sívaxandi launamisrétti vegna þess hve það teygir á bilinu milli hárra og lágra launa. Margfeldisáhrif verðlags og launabreytinga á þriggja mánaða fresti eru orðin slík að þau ógna öllu efnahagskerfinu og hafa ævinlega verið skaðleg. Ég hef á síðustu árum hreyft tillögum um að fækka þessum verðlags- og verðbótatímabilum niður í tvö á ári, en get sætt mig við að byrja á því að þeim verði fækkað í þrjú á ári, eins og rætt hefur verið um af hálfu viðræðunefndar um vísitölumál. Ég legg mikla áherslu á þýðingu slíkra breytinga sem ná jafnt yfir verðbætur á laun, búvöruverð og fiskverð. Þar er um að ræða breytingar sem hafa varanleg áhrif til aukins stöðugleika í efnahagskerfinu. Á því er full þörf.

Það vakti furðu þegar forustumenn stjórnarandstöðunnar lýstu yfir andstöðu við brbl. þegar eftir að þau voru sett. Augljóst var að slík afstaða byggðist á skammsýni en ekki á umhyggju fyrir hagsmunum þjóðfélagsins. Við sjálfstæðismenn í ríkisstj. höfum talið og teljum það skyldu okkar að haga meðferð þess máls þannig að brbl. komi til framkvæmda í öllum greinum og að leita allra leiða til að þau hljóti jákvæða afgreiðslu Alþingis. Við töldum það ekki rétt að tefla þessu máli þannig að fyrirsjáanlegt væri að leiddi til falls frv. og síðan þingrofs og kosninga nú fyrri hluta vetrar. Þess vegna teljum við ekki ástæðu til að hraða málinu sérstaklega, auk þess sem svo kynni að fara að stjórnarandstaðan sjái að sér og átti sig á því að það yrði henni síst til álitsauka að vinna þau skemmdarverk á efnahagskerfinu sem falli brbl. væru samfara.

Um þessar mundir vilja forystumenn stjórnarandstöðunnar að ríkisstj. segi af sér og að efnt verði til kosninga hið allra fyrsta, jafnvel í janúar eða febrúar. Slíkt hefur oft heyrst áður frá stjórnarandstöðu. Ef vitað væri að kosningar leystu mikinn vanda þá væri þetta sjálfsagt. Ef svo væri þá væri mikið sældarlíf hjá þeim þjóðum sem kjósa að jafnaði á eins til tveggja ára fresti. En reynslan sýnir að kosningum fylgja átök. Þeim getur fylgt stöðvun á nauðsynlegum aðgerðum og í kjölfar þeirra fylgir stundum langvarandi stjórnarkreppa.

Um tal manna um kosningar nú vil ég að öðru leyti segja það að ég tel fráleitt að kjósa um miðjan vetur. Þeir sem tala nm það í alvöru miða sjóndeildarhring sinn við Elliðaár eða í hæsta lagi landnám Ingólfs. Það getur verið hugsanlegt að kjósa í apríllok, en þó geta vegir í sumum byggðarlögum verið ófærir vikurnar út á þeim árstíma. Og ef komið er fram í aprílmánuð þá er álitamál a.m.k. hvort þjóðfélagið bíði að nokkru leyti tjón af því þó að kosningar verði á eðlilegum tíma í júnímánuði.

Eftir erfitt og sveiflukennt árferði síðustu árin ríkir nokkur óvissa um afkomu bændastéttarinnar. Talið er að hún sé misjöfn enda þótt þorri bænda búi við góða eða sæmilega afkomu. Þrátt fyrir undrun Eiðs Guðnasonar hér áðan hef ég ákveðið að setja nefnd til þess að athuga eftir föngum fjárhagslega stöðu bænda og skila tillögum til rn. um ráðstafanir, eftir því sem talin verður ástæða til. Verður nefndinni m.a. falið að grafast fyrir um það hvort mismunur kunni að vera á afkomu bænda eftir landshlutum eða eftir framleiðslugreinum.

Ríkisstj. hefur markað þá stefnu í till. til þál. að landbúnaðarafurðir verði framleiddar með þeirri fjölbreytni sem landkostir, veðurfar og markaðsskilyrði leyfa. Ljóst er að möguleikar okkar til framleiðslu eru hvergi nærri fullnýttir. Á hinn bóginn er það markaðurinn sem í sumum greinum takmarkar framleiðslu landbúnaðarins. Þess vegna hefur verið unnið að aukinni fjölbreytni á þremur árum. Má þar einkum nefna fiskeldi og fiskrækt, fóðurframleiðslu og loðdýrarækt. Auk þess eru möguleikar okkar hvergi nærri fullnýttir í ylrækt, sem er vaxandi framleiðslugrein í landbúnaði. Í þessu sambandi má minna á að um síðustu áramót voru tæplega 30 refabú á landinu, en um næstu áramót verða þau væntanlega um 100. Unnið er að skipulagningu fóðurstöðvar fyrir loðdýraræktina og leyfi til loðdýraræktar verða síðan veitt í samræmi við það skipulag.

Vegna þess hve markaðurinn takmarkar framleiðslu hefðbundinna búgreina hefur verið lögð mikil rækt við markaðsmálin. Auk þess sem unnið hefur verið af búvörudeild SÍS og markaðsnefnd hefur verið leitað til einstaklinga sem hafa þekkingu og reynslu í viðskiptum. Ég met starf þessara aðila mikils. Það tekur tíma og árangur kemur ekki í ljós á einum degi, en það hefur þó þegar sannast að hægt er að selja hálfunnið kjöt erlendis mun hærra verði en fæst fyrir það með hefðbundnum útflutningsháttum. Hér eigum við enn mikið verk að vinna, en jafnframt að auka þá starfsemi sem hafin er, m.a. af hálfu einstaklinga, að færa kjötið í aðgengilegar umbúðir fyrir markaðinn, innanlands sem erlendis. Í þessum efnum liggur vonandi veruleg framtíð fyrir sauðfjárframleiðsluna þannig að þrátt fyrir erfiðleika á erlendum mörkuðum er væntanlega enn of snemmt að afskrifa hana sem útflutningsgrein.

Ljóst er að landbúnaðurinn þarf að laga sig að breyttum aðstæðum á inniendum markaði og nýtanlegum mörkuðum erlendis. Sú stefna kemur fram í þáltill. ríkisstj. í landbúnaðarmálum. Mikilvægt skref var stigið í þessa átt sumarið 1980 þegar ákveðið var með brbl. að leggja gjald á innflutt kjarnfóður til að draga úr innflutningi á fóðri, efla innienda fóðuröflun og hamla gegn óhagkvæmri umframframgreiðslu á mjólk. Þær efasemdaraddir, sem þá heyrðust um þessa stjórnunaraðgerð, eru þagnaðar samhliða því að góður árangur hennar hefur komið fram.

Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur undanfarin ár unnið að mótun kvótakerfis sem setur framleiðslu einstakra bænda og framleiðslu í landinu ákveðinn ramma. Ég hef ákveðið að láta kanna í samvinnu við bændasamtökin hvort ekki sé réttara að skipta landinu í framleiðslusvæði, sem hvert hafi rétt á fullu verði fyrir ákveðið magn búvöru, séu möguleikar markaða takmarkaðir, frekar en að láta það kvótafyrirkomulag sem unnið hefur verið að stjórna framleiðslumagninu. Með því mætti draga úr afskiptum af hverjum einstaklingi og tryggja betur þá framleiðslu sem þarf að vera til staðar í einstökum byggðarlögum með hliðsjón af byggðaþróun og markaði fyrir búvörur.

Ekkert liggur enn fyrir um tölu sláturfjár eða kjötmagn sem kemur á markað í haust. Þó virðist ekkert benda til að kjötið verði meira en í fyrra, fremur hið gagnstæða. Ekki er heldur vitað hve mörgu fé hefur verið slátrað samkv. samningum Framleiðsluráðs. Enn er því ekki hægt að áætla um markaðshorfur fyrir það kindakjöt sem til fellur á þessu hausti. Á hinn bóginn virðist ljóst að hægt verður að greiða sem næst fullt verð fyrir framleiðslu síðasta verðlagsárs og nota til þess m.a. fé úr kjarnfóðursjóði. Ætti það uppgjör að fara fram nú fyrri hluta vetrar.

Herra forseti. Þótt við ýmsa erfiðleika sé að etja í okkar landbúnaði, sem ekki er ný bóla, hefur landbúnaðurinn á margan hátt verið varinn áföllum, sem að hafa sótt, og margt hefur þokast til betri vegar. Ég nefni aðeins til viðbótar því sem fyrr er sagt verulega hækkun rekstrarlána á þessu ári og endurreisn Hólaskóla og um leið myndarlegan rekstur allra menntastofnana landbúnaðarins. Landbúnaðurinn hefur á að skipa hæfum mönnum með mikla þekkingu og hann er byggður upp af dugmikilli bændastétt. Fram undan eru nóg viðfangsefni og bændastéttin verður að geta haldið áfram uppbyggingu og framþróun. Í því er fólginn einn traustasti hornsteinninn að framtíð okkar þjóðar. — Góða nótt.