16.12.1982
Sameinað þing: 31. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (927)

274. mál, kostnaður vegna athugunar á starfsemi Íslenska álfélagsins

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég skal ekki tefja tímann frekar um þetta mál. En ég verð að segja alveg eins og er, að ég sé ekki neinn mun á því sem hefur gerst nú í sambandi við þennan kostnað og svo aftur því sem gerðist árið 1974. Í báðum tilvikum féll til kostnaður vegna endurskoðunar og í báðum tilvikum var þessi kostnaður dreginn frá álgjaldinu, að vísu í öðru tilvikinu áður en félagið greiddi álgjaldið, en í hinu tilvikinu eftir að það hafði greitt álgjaldið. En kostnaðurinn var dreginn frá í báðum tilvikum. Hafnarfjarðarbær mótmælti í báðum tilvikum og fjmrn. féllst ekki á mótmælin í báðum tilvikum. Ég held satt að segja að eini munurinn á þessum tveimur tilvikum sé sá, að í fyrra sinnið var fjmrh. Matthías Á. Mathiesen, en í seinna tilvikinu er fjmrh. að nafni Ragnar Arnalds. Ég held að það sé eini munurinn.