16.12.1982
Efri deild: 20. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1210 í B-deild Alþingistíðinda. (931)
143. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það frv. til l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, sem hér er nú á dagskrá, á sér alllangan aðdraganda, eins og glöggt kemur fram í greinargerð sem frv. fylgir. Vinna við þetta frv. hófst þó fyrst að verulegu marki í sumar í ágústmánuði, þegar ég skipaði starfshóp stjórnaraðilanna til að fjalla um fjárhagsvanda hinna opinberu byggingarsjóða, Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna, og til þess að kanna og gera tillögur um ýmsa þætti húsnæðismála. Í starfshópnum voru Alexander Stefánsson og Guðmundur G. Þórarinsson alþm., Jón Ormur Halldórsson og Þorvaldur Mawby og Ólafur Jónsson formaður húsnæðismálastjórnar. Sjálfur sat ég flesta fundi starfshópsins. Þeir Ingi Valur Jóhannsson og Jón Rúnar Sveinsson störfuðu með hópnum sem sérfræðilegir ráðunautar. Var hópurinn sammála um þær tillögur um húsnæðismál sem birtar eru á bls. 12–16 í frv. á þskj. 151 sem hér er til umr.
Ég vil nota þetta tækifæri, þegar ég mæli fyrir frv., til þess að hér verði bókaðar þakkir mínar til starfshópsins fyrir góð störf. Þar lögðu sig allir fram um að komast að samkomulagi í þessu mikilvæga máli. Menn störfuðu málefnalega og af raunsæi. Yfirboð leyfði sér enginn, heldur héldu menn sig þétt við jörðina og þann grundvöll sem unnt er að standa á í þessu efni, þ.e. hinn fjárhagslega grundvöll og þann fjárhagslega ramma sem við er að miða.
Eftir að tillögur um húsnæðismál höfðu verið kynntar ríkisstjórninni voru þær samþ. þar og kynntar fjölmiðlum. Í frv. eru nokkrar veigamestu tillögur starfshópsins, en einnig eru nokkrar tillögur starfshópsins í sérstakri athugun á öðrum vettvangi.
Nefndin gerði 14 megintill.: Í fyrsta lagi um að lán til þeirra sem eru að byggja eða kaupa sína fyrstu íbúð hækki verulega á næstu árum og eigi um minna en 25% að raungildi þegar á árinu 1983 frá og með næstu starfsáætlun Húsnæðisstofnunar. Fyrir 1984 skal síðan tekin ákvörðun um frekari hækkun. Þetta ákvæði í tillögum nefndarinnar er inni í því frv. sem ég mæli hér fyrir.
Í öðru lagi lagði nefndin til að framlag ríkissjóðs til Byggingarsjóðs ríkisins verði tvöfaldað að raungildi frá árinu 1982. Þetta ákvæði er einnig í því frv. sem hér liggur fyrir.
Í þriðja lagi var gert ráð fyrir að öllum lífeyrissjóðum á landinu verði skylt að kaupa skuldabréf fyrir eigi lægri fjárhæð en sem nemur 45% af ráðstöfunartekjum sínum af Byggingarsjóði ríkisins, Byggingarsjóði verkamanna, ríkissjóði, Framkvæmdasjóði eða öðrum fjárfestingarlánasjóðum atvinnuveganna sem viðurkenndir eru af fjmrn. og samkvæmt þeirri skiptingu sem ákveðin er í fjárl. Seðlabankinn geri tillögur um fyrirkomulag sem tryggi betur en nú er aðild lífeyrissjóða að húsnæðislánakerfinu.
Þetta atriði er til meðferðar á vettvangi ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnin hefur fjallað sérstaklega um það í tengslum við þær meginforsendur sem lánsfjáráætlun ársins 1983 hlýtur að byggjast á. Það er með öðrum orðum miðað við það í þeim vinnugögnum, sem við höfum lagt fram í ríkisstjórninni, að 45% af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna verði bundið til fjárfestingarlánasjóðanna á árinu 1983. Auðvitað kunna að vera á því annmarkar að þetta náist fram, m.a. pólitískir vegna þess hversu háttar til um störf hér á Alþingi og meirihlutastöðu í Nd. þingsins. Ljóst er engu að síður í mínum huga, að ef það á að knýja fram þær úrbætur í húsnæðismálum sem við öll höfum áhuga á er höfuðatriði og í raun og veru atriði númer eitt að hlutdeild lífeyrissjóða verði tryggð miklu betur en verið hefur og gengið fastar að þeim um reglur og starfsaðferðir en hingað til hefur verið gert.
Eins og menn vita er í núgildandi lögum gert ráð fyrir að lífeyrissjóðirnir skili um 40% af ráðstöfunarfé sínu til fjárfestingarlánasjóða. Það hefur ekki gengið nærri nógu vel. Til þess að ná 45% verður auðvitað að setja ennþá strangari reglur en nú eru í gildi og n á betra samkomulagi við lífeyrissjóðina en til þessa hefur náðst. Þetta atriði er m.ö.o. til meðferðar hjá ríkisstjórninni í tengslum við aðra lánsfjáröflun árið 1983.
Fjórði liðurinn snertir einnig lífeyrissjóðina, þar sem gert er ráð fyrir að reglum lífeyrissjóðanna um lánveitingar til sjóðfélaga verði breytt á þann veg að lán verði aðeins veitt til húsnæðismála, en það hefur verið giskað á að verulegur hluti lána lífeyrissjóðanna fari til annars en til húsnæðismála. Þar hafa menn jafnvel talað um að um það bil illa gangi til alls konar annarrar eyðslu, annarra þarfa þeirra sem lánin taka, og það sé óeðlilegt, sérstaklega á tímum lánsfjárkreppu eins og við höfum orðið að upplifa um þessar mundir.
Í fimmta lagi er ákvæði í tillögum nefndarinnar um að fella niður úr lögunum um Húsnæðisstofnun ríkisins það ákvæði sem kveður á um bindingu útlánsvaxta Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna. Ákvörðun um vextina tekur ríkisstjórnin að fengnum tillögum húsnæðismálastjórnar og Seðlabanka Íslands. Hér er sem sagt meiningin að um útlánavexti byggingarsjóðanna gildi sömu reglur og um útlánavexti annarra fjárfestingarlánasjóða. Hér er um að ræða mikla breytingu frá því sem er í gildandi lögum nr. 51 1980 og eðlilegt að benda á þetta atriði sem einna þýðingarmestu breytinguna í þessu frv.
6. brtt. er orðuð á þessa leið:
„Ríkisstjórnin beitir sér fyrir samkomulagi við viðskiptabanka og sparisjóði um samræmda þátttöku í fjármögnun húsnæðismála. Í þessu skyni verði stofnaðir nýir húsnæðisreikningar í viðskiptabönkum og sparisjóðum þar sem innlán í 2–4 ár veitir rétt til 15 ára viðbótarláns frá Byggingarsjóði ríkisins. Upphæð láns ákvarðast af reglum sem taka mið af innlánstíma. Það fjármagn sem bankarnir lána til lengri tíma í þessu skyni verði heimilt að draga frá bindiskyldu viðkomandi banka hjá Seðlabanka Íslands.
Jafnframt verði kannað hvort unnt sé að beita skattfríðindum til að hvetja til sparnaðar í bönkum í þágu húsnæðismála.“
Ég tel, herra forseti, að þessi breytingartill. nefndarinnar um húsnæðismál sé ein sú allra mikilvægasta sem frá henni kom. Ég tel að forsenda þess að unnt verði að breyta húsnæðislánakerfinu hér á Íslandi þannig að það verði sambærilegt við það sem gerist í grannlöndum okkar sé sú, að miklu betra samstarf takist við bankana en nú er um að ræða.
Samstarf húsnæðislánakerfisins við bankana hefur ekki verið nógu öflugt og það hefur ekki tekist nema í einu undantekningartilviki að fá bankana til skipulegs samstarfs í þessu efni. Þar á ég við skuldbreytingarátakið sem gert var snemma á síðasta ári í þágu húsbyggjenda. Þessi tillaga starfshópsins hefur verið samþykkt af ríkisstjórninni. Ég lít svo á, að það sé meginhlutverk viðskrn. og félmrn. í sameiningu að þrýsta á að bankarnir skili þessum þætti samkomulagsins hið allra fyrsta þannig að tillögur um hlutdeild bankanna geti legið fyrir um það leyti sem Alþingi hugsanlega afgreiddi þetta frv., þannig að við getum búið við nýtt samstillt lánakerfi opinberra aðila, lífeyrissjóða og banka, til húsnæðismála einhvern tíma frá miðju næsta ári eða svo.
Sjöundi þátturinn í þessu frv. gerir ráð fyrir að viðskiptabankarnir taki að sér að veita framkvæmdaaðilum í byggingariðnaði framkvæmdalán á byggingartímanum sem Byggingarsjóður ríkisins endurgreiðir þegar íbúðirnar eru lánshæfar samkvæmt reglum sjóðsins. Jafnframt því sem framkvæmdalán frá Byggingarsjóði ríkisins falli niður verði tekinn upp sá háttur að sjóðurinn greiði nýbyggingarlán til byggingarsamvinnufélaga og viðurkenndra byggingaraðila í tvennu lagi, fyrri hlutann einum mánuði eftir fokheldisstig, seinni hlutann sex mánuðum síðar.
Hér er verið að leggja á það áherslu að koma til móts við byggingarsamvinnufélögin sem mjög þýðingarmikinn hlekk í okkar húsnæðismálum, sérstaklega að því er varðar byggingar fyrir ungt fólk, þá sem eru að eignast íbúðir í fyrsta sinn.
Þetta ákvæði, töluliður 7 í till., er inni í frv.
8. till. snýr fyrst og fremst að húsnæðismálastjórn, viðskrn. og bönkunum, en þar segir:
„Til hagræðingar og einföldunar fyrir lántakendur húsnæðistengdra lána leiti Húsnæðisstofnun samstarfs við banka, sparisjóði og lífeyrissjóði um nýtt fyrirkomulag lánveitinga og afborgana húsnæðislána. Fyrirkomulag þetta byggi á því, að lántakandi eigi aðgang að upplýsingum og gögnum frá öllum ofangreindum aðilum í sínum eigin viðskiptabanka, þar sem útborgun og innheimta húsnæðistengdra lána fari sömuleiðis fram“.
Sú grundvallarhugsun er í þessari till., að þeir sem þurfi á húsnæðislánum að halda til byggingar eða kaupa geti snúið sér til síns viðskiptabanka með þau mál og fengið afgreiðslu í viðskiptabankanum, sem síðan annist samskiptin við lífeyrissjóði viðkomandi einstaklinga og Húsnæðisstofnun ríkisins. Hér væri um að ræða, að mínu mati, afskaplega mikla framför í húsnæðismálum því eitt það allra versta í okkar húsnæðismálum er að menn verða að una því að hlaupa á milli fjölmargra lánastofnana og opinberra stofnana í sambandi við lántökur og alls konar vottorð út og suður. Þetta tekur mikinn tíma og er slítandi og þreytandi fyrir fólk. Þessi till. miðar að því að reyna að fá þessa þjónustu alla inn á einn og sama staðinn, í viðskiptabankaviðkomandi, hvort sem er t.d. í þéttbýlinu hér eða þá í dreifbýlinu, þannig að menn þurfi ekki heldur að fara í langar suðurferðir til að fá eðlilega fyrirgreiðslu í sínum húsnæðismálum. Ég tel að þetta sé ein þýðingarmesta till. frv.
Ég vil geta þess hér, að ég hreyfði þeirri hugmynd á undirbúningsstigi þessa máls í starfshópnum að bankakerfið tæki að sér almennu byggingarlánin að verulegu leyti, en lögin væru til þess fyrst og fremst að tryggja að menn ættu lágmarksrétt. Enda þótt bankarnir neituðu hugsanlega viðkomandi einstaklingi gæti hann leitað til Húsnæðisstofnunar um tryggingu þessa lágmarksréttar. Ég held að þetta sé mál sem eigi að athuga miklu betur. Enda þótt nefndin treysti sér ekki til þess í sumar eða haust að fallast á þessa hugmynd mína held ég að eigi að athuga þetta mál miklu betur þó síðar verði og eigi að reyna að beina almenna húsnæðislánakerfinu inn í einhvern farveg af þessu tagi án þess auðvitað að vísa almenningi einvörðungu á bankastjóra varðandi húsnæðislán, sem auðvitað taka fólki misjafnlega vel og allavega eftir því hvernig stendur á í þeirra bönkum. En þá held ég að bankakerfið eigi að koma þarna inn í auknum mæli. Það gæti orðið til einföldunar og þæginda og skapað báðum aðilum, bæði húsbyggjendum og bönkum, betri þjónustumöguleika en um er að ræða nú.
9. till. nefndarinnar gekk út á það, að innheimta skyldusparnaðar ungs fólks til húsnæðismála verði bætt og reglur um endurgreiðslu hertar. Samkvæmt lögunum, sem við settum 1980, voru kjörin á húsnæðismálalánum bætt mjög verulega, en það hefur greinilega ekki dugað til að halda skyldusparnaðarfé inni í húsnæðislánakerfinu sem skyldi, að okkar mati, og þess vegna er þessi tillaga flutt og kemur hún fram í frv. sjálfu.
10. till. er einnig í frv. Það er ein allra mikilvægasta till. í frv., að mínu mati, vegna þess að þar er komið til móts við sjónarmið mjög margra aðila í þjóðfélaginu einmitt um þessar mundir, á tímum lífskjarasamdráttar. — Í till. segir:
„Verðtrygging afborgana og vaxta húsnæðislána verði ætíð bundin við þá af vísitölunum tveimur, kauplagsvísitölu (samkvæmt útreikningi kjararannsóknanefndar) og lánskjaravísitölu, sem er lægri. Hins vegar verði eftirstöðvar lánsins reiknaðar upp eftir lánskjaravísitölu. Ef til að mynda lán sem veitt var til 26 ára er ekki að fullu greitt (vegna bindingar eftirstöðva við lánskjaravísitölu) verði veitt nýtt lán sem framlengir það gamla eftir þörfum. Með þessu móti er tryggt að afborganir af húsnæðislánum hækki ekki úr hófi fram á tímum lífskjarasamdráttar.“
Þessi till. er í raun og veru mjög lík í meginatriðum og sú till. sem hv. þm. Alþfl. hafa flutt hér í Nd., þar sem gert er ráð fyrir að gerð verði breyting á lögum um Seðlabankann í þessa veru. Þetta frv., sem ég er hér að fala fyrir, gerir auðvitað aðeins ráð fyrir að breyta þessum kjörum hjá Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna. Ég vil láta það koma hér fram hins vegar að ég er hlynntur því að settar verði almennar reglur um slíkar breytingar einnig þegar um er að ræða lánasamninga við bankastofnanir og lífeyrissjóði. Þess vegna tel ég eðlilegt að athugað verði hvort unnt sé að koma slíku við þar sem um lánsviðskipti er að ræða almennt. Ég held að það sé óhætt að geta þess hér, að Seðlabankinn hefur tekið saman ítarlega greinargerð um þetta mál, þar sem hann bendir á vissa möguleika í þessu efni, en hefur þó ekki treyst sér til að leggja til að viðskiptabankarnir taki þennan hátt upp almennt, ekki ennþá. En mér sýnist að það sé að vakna skilningur á þessu hjá mörgum aðilum, jafnvel í bankakerfinu, sem hefur lengst af tregðast við í þessum efnum eins og fleiri þegar kemur að húsnæðismálum.
11. till. n. var um leiguíbúðir. Við teljum að í raun og veru sé einn meginvandinn í húsnæðismálum hér á þéttbýlissvæðinu hjá þeim sem þurfa að leigja eða vilja leigja húsnæði. Eftirspurn eftir leiguhúsnæði er gífurleg, framboð litið og þetta fólk verður að sæta afarkostum iðulega, að sagt er. Þess vegna er sú till. til orðin sem getið er um í tölulið 11, en þar segir:
„Hafnar verði skipulegar byggingar leiguíbúða og verður lögð áhersla á eftirtalda liði:
Í fyrsta lagi verði veitt lán til byggingar sérhannaðra leiguíbúða fyrir aldraða með hlutafjárþátttöku leigjenda.“
Hér er um að ræða nýmæli í íslenskri húsnæðismálalöggjöf.
„Í öðru lagi verði gert sérstakt átak í leiguíbúðarmálum námsmanna og skal stefnt að því að byggðar verði eigi færri en 150 námsmannaíbúðir á næstu þremur árum. Leitað verði eftir þátttöku eftirtalinna aðila auk Húsnæðisstofnunar í fjármögnun þessa átaks: Byggðasjóðs, Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og Lánasjóðs sveitarfélaga.“
Ég held að hér sé um að ræða ákaflega þýðingarmikið atriði, sem komið er inn á í frv. sjálfu og grg. þess. Þetta er mál sem við í félmrn. munum ræða m.a. við námsmenn núna á næstunni, hvernig þessu megi fyrir koma, því það er ekki nokkur vafi á að ein meginástæðan fyrir aukinni eftirspurn eftir húsnæði hér á Reykjavíkursvæði er sú, að námsmönnum hefur fjölgað verulega frá því sem áður var.
Í tólfta lagi var gerð till. um það á vegum n. að frv. til l. um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, er flutt var á síðasta þingi, verði flutt á yfirstandandi löggjafarþingi að lokinni endurskoðun sem taki mið af þeim tillögum sem komið hafa fram hér að framan. Það er í raun og veru það sem gert er með þessu frv. Síðan segir: „Þá verði núgildandi lög um byggingarsamvinnufélög endurskoðuð og felld inn í frv. sem sérstakur kafli.“ Það er einnig gert í þessu frv. Hér er um að ræða lagaákvæði um byggingarsamvinnufélög. Að sumu leyti eru þau flutt hér óbreytt eða lítið breytt frá því sem er í gildandi lögum, en að nokkru leyti er um að ræða brtt. sem ég kem að síðar.
Í þrettánda lagi er gert ráð fyrir að þjónustu- og upplýsingastarfsemi á vegum Húsnæðisstofnunar verði efld með aukinni ráðgjafarstarfsemi fyrir lántakendur og einnig verði hafin skipuleg vinnsla upplýsinga um húsnæðismál í landinu, svo og gerð áætlana um íbúða- og byggingaþörf. Hérna er ætlunin hjá okkur að reyna að bæta úr því sem vantað hefur verulega á undanförnum árum, þ.e. heildstæðar upplýsingar og upplýsingasöfnun um húsnæðismál, bæði fyrir stjórnvöld til þess að þau geti tekið ákvarðanir bæði í einstökum byggðarlögum og á landsvísu og einnig upplýsingar fyrir almenning um húsnæðismál sem ekki er nógu greiður aðgangur að eins og sakir standa. Í fjárlagafrv. fyrir árið 1983 er gert ráð fyrir að heimila Húsnæðisstofnuninni að taka upp sérstaka þjónustu- og upplýsingastarfsemi í framhaldi af þessari till. hér, nr. 13 í till. starfshópsins um húsnæðismál.
Í fjórtánda lagi var svo till. um að kannaðar verði leiðir til að lækka byggingarkostnað, meðal annars með lækkun aðflutningsgjalda á byggingarefni, lækkun launaskatts og aðstöðugjalds. Þetta mál er í athugun, en er skammt á veg komið.
Ég hef nú farið yfir þær tillögur sem liggja til grundvallar því frv. til l. um Húsnæðisstofnun ríkisins sem hér er á dagskrá, sem er 143. mál á þskj. 151. Ég hef farið svona rækilega yfir till. vegna þess að ég tel að þær sýni best grundvallaratriðin í þessu máli. Þessar tillögur taka á því sem mestu máli skiptir og mest ástæða er til að vekja athygli á.
Frv. er margar greinar og þess vegna er eðlilegt að fara nokkrum frekari orðum um það og einstakar greinar þess.
Ég vil fyrst víkja að 1. gr. frv., en breytingin sem þar er gerð er sú, að það er sett inn nýtt ákvæði þar sem segir að fjár í Byggingarsjóð ríkisins skuli aflað m.a. með árlegu framlagi úr ríkissjóði sem verði eigi lægra en tvöfalt hærra að verðgildi en framlag á fjárl. ársins 1982. Þetta orðalag og ákvæði kemur í staðinn fyrir tölulið 2 í 9. gr. núgildandi laga, þar sem segir: „Með árlegum framlögum úr ríkissjóði af launaskatti, byggingarsjóðsgjöldum, af tekju- og eignarskatti og af aðflutningsgjöldum.“ — Hér er talið að það sé skynsamlegra að ákveða framlagið á þann hátt að hafa það tvöfalt hærra en á árinu 1982 fremur en að miða við tekjur af launaskattsstigi, þar sem nú eru uppi kröfur um að fella niður launaskatt og lækka launaskatt af einstökum atvinnugreinum. Þess vegna þótti okkur ráðlegra að miða við þetta svona. Er þetta í rauninni svipað ákvæði og er að finna varðandi markaða tekjustofna til Framkvæmdasjóðs öryrkja og þroskaheftra, þar sem miðað er við ákveðna tölu á árinu 1979 ef ég man rétt.
2. gr. frv. er ekki stórvægileg, en þó áhersluatriði þar sem byggingarsamvinnufélögin eru sett inn sem sérstakur aðili til að taka á móti lánum ásamt framkvæmdaaðilum í byggingariðnaði.
3. gr. felur í sér vissa grundvallarbreytingu því þar segir að lán megi veita til að byggja eða kaupa nýjar íbúðir, ekki aðeins einstaklingum heldur og fyrirtækjum. Síðan segir, sem er verulegt nýmæli:
„Ef umsækjandi um lán ætlar að byggja leiguíbúð eina eða fleiri eða leigja sina fyrri íbúð þegar byggingu er lokið, skal hann undirrita skuldbindingu um að hann muni leigja hana til íbúðar þegar nýja íbúðin er fullgerð.“
Hér er um að ræða mjög verulega breytingu frá því sem er í gildandi lögum, þar sem það er í raun og veru fortakslaust bannað að slíkt geti gerst sem er gerð till. um þarna í 3. gr.
4. gr. er einnig mjög mikilvæg, en með henni eru opnaðir möguleikar fyrir sveitarfélög og stofnanir að fá aukið fjármagn til byggingar fyrir aldraða. Þetta er í fyrsta lagi gert með því að heimila hlutareign þeirra sem fá íbúðirnar til afnota og í öðru lagi með því að heimila sölu á skuldabréfum til þeirra sem þarfnast vistunar á stofnun og hafa nokkur fjárráð.
Þegar rætt er um hlutareign er átt við eignarform sem er lítið þekkt hér á landi, en vel þekkt í nágrannalöndum okkar. Þegar sjálfseignarstofnanir eða sveitarfélög byggja íbúðir þar sem veitt er margvísleg þjónusta geta þau selt einstaklingum, er þess æskja, tiltekinn eignarhluta í íbúð, sem þeir fá til afnota, gegn hóflegu gjaldi. Eignarhluta sinn fær kaupandi endurgreiddan ef hann flytur úr íbúðinni eða hann greiðist út við andlát íbúðarhafa samkvæmt sérstökum samningi. Sama gildir um skuldabréf sem aldrað fólk kaupir í dvalarheimilum þar sem það fær vistrými og félagslegt öryggi. Margt aldrað fólk á nokkurt fjármagn eða jafnvel íbúð sem það vill selja og kaupa sér öryggi og þjónustu með þessum hætti.
Rétt þykir að reyna þessa leið hér á landi til að flýta fyrir uppbyggingu íbúða og vistheimila fyrir aldraða. Jafnframt er talið æskilegt að setja takmörk fyrir ráðstöfun vistrýmis eða íbúða með skuldabréfasölu í því augnamiði að gæta hagsmuna þess fólks sem þarfnast vistunar, en ekki ræður yfir neinu fjármagni. Er að sjálfsögðu óhjákvæmilegt að setja slíkt öryggisákvæði inn í slíka grein.
Í 5. gr. eru settar fyllri reglur en áður um lán til endurbóta á eldra húsnæði og viðbyggingar, einkum þegar þetta tvennt fer saman.
Í 6. gr. er felld niður krafan um bakábyrgð sveitarstjórnar við lánveitingar, en það verður að telja eðlilegt ákvæði þar sem fyrsti veðréttur í viðkomandi íbúð ætti auðvitað að duga.
Í 7. gr. er ákvæði sem er í samræmi við þá stefnu sem ég hef áður gert grein fyrir, en þar er annars vegar bætt inn heimild til að lána einstaklingum og fyrirtækjum fé til að endurbyggja og bæta heilsuspillandi húsnæði. Hins vegar er felld niður bakábyrgð sveitarstjórnar eins og gert er í 6. gr.
Í 8. gr. er lagt til að heimilt verði að fresta afborgunum af lánum lántaka sem orðinn er 70 eða eldri eða er fatlaður, ef fjárhag hans er þannig varið að sýnt þykir að hann fái ekki staðið undir afborgunum af láninu. Hér er um að ræða grein sem er samhljóða grein sem var í frv. á síðast liðnu vori að öðru leyti en því, að bætt hefur verið við orðinu „fatlaður“ þannig að það eru ekki einungis aldraðir sem miðað er við í þessu efni.
Í 9. gr. er ákvæðið um byggingarsamvinnufélögin og viðskiptabankana sem ég gat um er ég ræddi till. áðan, þar sem segir að viðskiptabankarnir eigi að taka við því verkefni af Byggingarsjóði ríkisins að veita byggingarsamvinnufélögum og öðrum framkvæmdaaðilum rekstrarlán á byggingartímanum. Er því húsnæðismálastjórn heimilað að endurgreiða þau lán innan tiltekins tíma frá því að húsin eru fokheld. Þessi grein, sem hér er um að ræða, kemur inn sem viðbót, ný málsgr. við 32. gr. laganna.
10. gr. er í samræmi við tillögur um vexti af lánum Byggingarsjóðs ríkisins, að þeir verði ekki bundnir í lögum, heldur verði þeir ákveðnir af ríkisstjórn eftir tillögum Seðlabankans hverju sinni. Þó skulu vextir af lánum til fatlaðra og til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis vera bundnir svo sem verið hefur. Í greininni er einnig gert ráð fyrir að fella úr lögum fasta gjalddaga fyrir lán húsnæðismálastjórnar, sem er auðvitað óeðlilegt með öllu að hafa í lögum.
Í 11. gr. er eitt þýðingarmesta atriðið í þessu frv. Það hefur ekki verið í lögum heimilt að hækka sérstaklega lán til þeirra t.d. sem byggja og kaupa í fyrsta sinn. Það hefur engin heimild verið til slíks. Þess vegna er hér flutt tillaga um að þeir sem enga íbúð eiga og hafa ekki átt íbúð á síðustu tveimur árum geti fengið hærra lán en aðrir frá húsnæðismálastjórn. Ennfremur er í greininni heimild til að veita hærri lán til nýrra íbúða sem byggðar eru á lögbýlum. Þetta ákvæði er flutt með tilliti til þeirra viðhorfa að það sé eðlilegt að á sveitabýlum sé mögulegt að byggja nokkru stærra en gengur og gerist í þéttbýli af ástæðum sem allir þeir þekkja sem hafa kynnst aðstæðum í sveitum.
Í 12. gr. er brtt. sem verður að teljast grundvallaratriði og eitt meginatriði þessa frv. Þar er gert ráð fyrir að Byggingarsjóður verkamanna láni ekki aðeins til sveitarfélaga sem byggja leiguíbúðir, heldur einnig til félagssamtaka, stofnana og fyrirtækja sem byggja leiguíbúðir fyrir félagsmenn sína eða aðra sem þurfa á leiguhúsnæði að halda. Er þá sérstaklega höfð í huga sú mikla þörf sem námsfólk hefur fyrir leiguhúsnæði. Lítið hefur verið byggt af leiguíbúðum gagngert hér á landi um margra ára skeið, enda fer þeim stöðugt fækkandi, og því er brýn nauðsyn að gera sérstakt átak til að byggja leiguíbúðir. Þess vegna er hér tekin inn í 36. gr. gildandi laga í þessu frv. nýr lánaflokkur um leiguíbúðir.
13. gr. er óþarfi að fara orðum um og sömuleiðis 14. gr. Sömuleiðis ræði ég ekki 15. gr. sérstaklega hér.
16. gr. fjallar um það og leggur á það áherslu, að stjórn verkamannabústaða úthluti íbúðum þegar á byrjunarstigi framkvæmda til að kaupendum íbúðanna gefist lengri tími til að greiða framlag sitt til byggingarinnar.
17. gr. er í raun og veru hliðstæð þeirri 16. til þess að flýta fyrir því að fólk geti farið að greiða inn á þær íbúðir sem það fær í verkamannabústöðum.
Í 18. gr. er nokkuð mikilvægt atriði, sem ég vil vekja sérstaka athygli á. Þar er gert ráð fyrri að slaka nokkuð á ákvæðum um rétt til veðsetningar íbúða í verkamannabústöðum. Heimilað er að hleypa lífeyrissjóðsláni fram fyrir lán Byggingarsjóðs verkamanna að því tilskildu að síðarnefnda lánið lækki sem nemur upphæð lífeyrissjóðslánsins. Það er sem sagt gert ráð fyrir að lán frá Byggingarsjóði verkamanna verði áfram 90%, en lífeyrissjóðslánið komi þar til frádráttar, þannig að heildarupphæð lánsins verði 90%, en lífeyrissjóðslánið geti komið á undan láni Byggingarsjóðs verkamanna, en til þessa hefur verið óheimilt að taka önnur veð í verkamannabústöðum en þau sem Byggingarsjóður verkamanna hefur tekið.
Í 19. gr. eru fjögur atriði sem nauðsynlegt er að minna á. Í fyrsta lagi er fellt niður að binda framlag kaupanda íbúðar við 10% af kostnaðarverði. Það getur oft verið meira þó heimilt sé að lána allt að 90% af byggingarverði íbúðar. Í öðru lagi er fellt niður að skylt sé að taka 1. veðrétt fyrir lánum Byggingarsjóðs verkamanna. Ef kaupandi að íbúð í verkamannabústað á rétt á lífeyrissjóðsláni má gefa eftir 1. veðrétt, en þó má veðsetning íbúðar aldrei fara yfir 90% af kostnaðarverði. Í þriðja lagi er fellt niður að binda vaxtaprósentur sjóðsins í lögum, en í staðinn er sett sambærilegt ákvæði og um Byggingarsjóð ríkisins. Í fjórða lagi er fellt niður að binda greiðsludaga lána við tiltekna daga til samræmingar við starfsreglur bankanna.
Í 20. gr. er kaupskylda sveitarfélaganna á íbúðum sem byggðar eru samkvæmt lögum frá 1980 stytt úr 30 árum í 15 ár, en sveitarfélög hafa lagt mikla áherslu á þessa breytingu.
Í 21. gr. eru ákvæði um hvernig á að reikna verð íbúðar. Þar vil ég vekja sérstaka athygli á síðustu málsgreininni, en þar segir.
„Nú verður framreiknað innkaupsverð íbúðar samkvæmt ákvæðum þessarar greinar hærra en markaðsverð sambærilegrar íbúðar í sama sveitarfélagi. Skal þá matsnefnd félagslegra íbúða afskrifa verð íbúðarinnar þar til markaðsverði er náð og skal þar meðal annars byggt á upplýsingum Fasteignamats ríkisins. “Hér er um að ræða verulega breytingu frá því sem er í gildandi lögum, sem mestu skiptir fyrir byggðarlög þar sem markaðsverð íbúða er lægra en fasteignamatsverð.
Í 22. gr. er komið inn á leiguhúsnæðismálin, en tilgangur þeirrar greinar er að laga lögin að því hlutverki Byggingarsjóðs verkamanna að veita lán til félagssamtaka og stofnana sem byggja leiguíbúðir, jafnframt því að halda áfram að veita lán til sveitarfélaga sem byggja leiguíbúðir. Þegar rætt er um félagssamtök og stofnanir sem framkvæmdaaðila við byggingu leiguíbúða eru hafðar í huga sjálfseignarstofnanir, svo sem Félagsstofnun stúdenta og aðrar sambærilegar stofnanir, samtök leigjenda, verkalýðsfélög og fleiri hagsmunaaðila sem myndað gætu samtök til að byggja leiguíbúðir til afnota fyrir félagsmenn eða til útleigu á atmennum markaði. Þurfa þá slíkir aðilar að leggja fram fjármagn sem nemur 35% af byggingarkostnaði, en lánið sem veitt er frá húsnæðismálastjórn yrði þá 65% af byggingarkostnaði.
Breytingarnar í 23. gr. eru í raun og veru til samræmis við þetta sjónarmið, að taka fleiri aðila inn varðandi leiguíbúðir. Hið sama er að segja um 24. gr. og 25. gr. og fjölyrði ég því ekki um þær.
26. gr. kveður á um lánshlutfall til leiguíbúða fyrir almennan markað eða einstaka þ jóðfélagshópa og lánshlutfallið er 65%, eins og ég gat um áðan.
27. gr. kemur einnig inn á leiguhúsnæðismálin og 28. gr. sömuleiðis.
Í 29. gr. er svo öryggisákvæði varðandi leiguíbúðirnar, sem er mjög mikilvægt, en þar segir:
„Óheimilt er að selja leiguíbúðir, sem byggðar eru samkvæmt lögum þessum, meðan á þeim hvíla lán frá Byggingarsjóði verkamanna.“
Ég held að ekki sé ástæða til að fara sérstökum orðum um 30. gr. En 31. gr. gerir ráð fyrir endurbótum á skyldusparnaðarkerfinu. Með henni er þrengdur nokkuð réttur ungmenna til að fá endurgreitt það fjármagn sem haldið hefur verið eftir af launum í skyldusparnað. Þar segir auk þess, sem er alveg nýmæli: „Ekki er þó heimilt að endurgreiða skyldusparnað á sama ári og hann er dreginn af launum skyldusparenda.“ Hér er um að ræða nýmæli, eins og ég sagði, sem skiptir miklu máli.
Í 32. gr. er nýmæli sem er einnig vert að nefna. Þar segir: „Heimilt er húsnæðismálastjórn að veita þeim viðbótarlán við önnur lán úr Byggingarsjóði ríkisins sem taka út sparifé sitt til þess að kaupa eða byggja íbúð. Húsnæðismálastjórn skal setja nánari reglur um þær lánveitingar.“ Samkvæmt gildandi lögum er ekki heimilt, svo undarlegt sem það kann að vera, að hækka sérstaklega lán til þeirra sem hafa staðið sig sérstaklega vel í sambandi við skyldusparnaðinn.
Í 33. gr. er ákvæði sem gerir ráð fyrir að það verði horfið frá sparimerkjakerfinu. Sparimerkjakerfið er komið nokkuð til ára sinna, sennilega orðið meira en 20 ára. Ætli það hafi ekki verið alveg frá upphafi vega. En hér er gert ráð fyrir að hverfa alveg frá sparimerkjakerfinu í sambandi við skyldusparnaðinn. Það er vafalaust til einföldunar. Í staðinn verði Póstgíróstofunni falin innheimtan með sama hætti og innheimta orlofsfjár af tímakaupi launafólks. Það er ekki nokkur vafi á að það yrði til mikilla bóta að fela Póstgíróstofunni þetta. Hérna er lagt til að það verði bundið á hana með lögum.
Þá kem ég að lokagreinum þessa frv., 35–42. Þar eru ákvæði um byggingarsamvinnufélög. Með þessum tillögum er gert ráð fyrir að lög um byggingarsamvinnufélög verði hluti af hinni almennu húsnæðismálalöggjöf, eins og eðlilegt má telja.
36. gr. gerir ekki ráð fyrir miklum breytingum í þessu efni og hið sama er að segja um 37. gr. Þó er þar eitt lítilsvert ákvæði í 2. málgr. Þar er kveðið á um sameiningu byggingarsamvinnufélaga. Að undanförnu hafa farið fram viðræður milli forsvarsmanna nokkurra helstu byggingarsamvinnufélaga í Reykjavík um hugsanlega sameiningu félaganna í eitt félag. Við athugun hefur komið í ljós að nokkur vafi kann að leika á því hvernig sameining félaganna skuli framkvæmd. Með þessum málsgreinum er verið að greiða fyrir sameiningu byggingarsamvinnufélaganna án þess þó að dregið sé úr möguleikum almennra félagsmanna til að hafa áhrif á ákvarðanatöku.
38. gr. er til samræmis við fyrri tillögu sem ég hef gert grein fyrir varðandi byggingarsamvinnufélög og framkvæmdalán. Þar er þó einnig ákvæði sem gerir ráð fyrir að varasjóðstillag, sem greitt er af hverri íbúð í varasjóð byggingarsamvinnufélags, hækki úr 1% af byggingarkostnaði íbúðarinnar í 2%. Hér er um að ræða mikla breytingu sem forráðamenn byggingarsamvinnufélaganna lögðu mjög mikla áherslu á að væri nauðsynleg til að styrkja stöðu þessara félaga. Einkum er það vafalaust mikilvægt fyrir þessi félög, eftir að þau verða að búa sig dýrum tækjakosti til að geta sinnt hlutverki sínu, að eiga möguleika á að koma sér upp skikkanlegum varasjóði. Þetta er mál sem hv. félmn. deildarinnar þarf auðvitað að líta á mjög vandlega, hvort svo langt eigi að ganga að tvöfalda þetta fé.
Það eru engar efnisbreytingar í 39. gr. eða 40. gr. Tilgangurinn með 41. gr. er að tryggja að enginn geti selt réttindi sín til að byggja hjá byggingarsamvinnufélagi og í 42. gr. er ákvæði sem skyldar byggingarsamvinnufélög til að senda Húsnæðisstofnuninni ársreikninga byggingarsamvinnufélaganna og hún eigi jafnan aðgang að bókhaldi þessara félaga.
Í 43. gr. er ákvæði til bráðabirgða. Í tölulið 1 er komið það ákvæði, sem ég gat um hér og er úr tillögum n., að fólk verði ekki fyrir gífurlegum byrðum af húsnæðismálalánum á tímum lífskjarasamdráttar, heldur verði sérstök hækkun á lánskjaravísitölu tekin þannig að hún bætist við lánið og lengir það, bætist aftan við lánstímann, sem lengist þá eftir þörfum, þannig að greiðslubyrði verði ekki óbærileg fyrir það fólk sem hér er um að ræða. Töluliður 2 gerir ráð fyrir svipuðum ákvæðum og eru í bráðabirgðaákvæðum laga nr. 51 frá 1980. Við töldum að á framkvæmd þeirra ákvæða hefðu verið verulegir annmarkar og þess vegna er hér gerð till. um nýtt ákvæði til bráðabirgða varðandi lán þeirra sem áður hafa skipt við stofnunina.
44. gr. skýrir sig sjálf.
Herra forseti. Ég ætla ekki á þeim tíma sem ég hef að fara yfir einstök atriði í ádeilum sem fram hafa komið frá stjórnarandstöðunni á húsnæðislánakerfið yfir höfuð. Ég tel að þar hafi í rauninni ekkert farið úr böndunum. Það sem gerst hafi hafi verið það, að þegar verðtryggingarstefnan var ákveðin á sínum tíma hafi ekki um leið verið tekin ákvörðun um að knýja bankana til að veita kerfisbundin húsnæðislán. Það tel ég að sé grundvallaratriðið í þessu efni og það þýði ekki, hvorki fyrir stjórnarandstöðuna né aðra, að ætla sér að kenna hinum nýju húsnæðislögum um þann vanda sem uppi er í húsnæðismálum í okkar þjóðfélagi. Þar kemur til verðbólgan, þar kemur það til að bankarnir hafa ekki sinnt hlutverki sínu sem skyldi og að ekki hefur náðst pólitísk samstaða um það, fyrr en þá núna, að koma á samfelldu lánakerfi banka, lífeyrissjóða og opinberra stofnana fyrir húsbyggjendur.
Herra forseti. Mér er það mjög í mun að frv. þetta fái afgreiðslu á yfirstandandi þingi. Enda þótt það kunni að verða stutt, þá verði þetta frv. afgreitt. Ég er viss um að formaður félmn. Ed., hv. þm. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, mun gera allt sem hann getur til að þoka þessu máli áleiðis, svo hugleikinn sem honum er þessi málaflokkur eins og mér.
Ég vil einnig nefna það, að fyrir hv. Nd. liggur frv. til l. um staðfestingu á brbl. um húsnæðismál frá síðastliðnu sumri. Ég hef geymt að taka það frv. fyrir þangað til þetta mál væri komið til n. í deildinni. Ég fer fram á að félmn. starfi sem mest saman að þessum málum þannig að staðfesting brbl. frá því í sumar verði partur af þessu máli hér með því að frv. tvö fylgdust að í gegnum þingið.
Ég lagði frv. um staðfestingu brbl. fyrir Nd. og hafði í huga að leggja þar einnig fram þetta frv., en það varð síðan að samkomulagi milli mín og hv. þm. Þorv. Garðars Kristjánssonar að ég legði þetta frv. fyrir Ed. vegna þess að hann hafði lagt þar fram annað frv. um húsnæðismál. Ég held að þetta eigi ekki að þurfa að spilla neinu.
Ég legg sem sagt á það mikla áherslu að málið verði afgreitt hér á yfirstandandi þingi.
Herra forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. félmn.