16.12.1982
Efri deild: 20. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (933)
143. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorv. Garðari Kristjánssyni, 4. þm. Vestf., fyrir ítarlega ræðu um þetta mál. Hann kom víða við eins og efni standa til. Hér er um að ræða viðamikið, efnismikið og fjölþætt mál og frv. sem tekur á mörgum meginatriðum þessara mála. Því væri ástæða til að halda um það ítarlegar ræður, jafnvel ítarlegri en við höfum gert samanlagt, ég og hv. þm. (Gripið fram í: Og er þá mikið sagt.) Og er þá mikið sagt. Það er rétt hjá hv. skrifara, það er alveg laukrétt. Hv. 11. landsk. þm. hitti þarna naglann á höfuðið. Er þá langt til jafnað. En hér verðum við senn að láta staðar numið, enda væri mikið mál ef við ætluðum að ræða það líka sem vantar í þetta frv. Það mundi endast okkur lengi dags og nætur ef við ætluðum að tína það allt saman til. Því það er með þetta eins og annað, það er ekki hægt að hafa allt í frv. eins og þessu enda gera slík frv. lítið gagn oft á tíðum. Það vill nú vera sull sem verður þeim að litlum notum sem þurfa á þeim lögum að halda sem verið er að gera till. um.
Það sem hv. þm. aðallega ræddi um í þessu efni var 10. gr. frv., sem víkur að Byggingarsjóði ríkisins, og samsvarandi grein sem víkur að Byggingarsjóði verkamanna. Og ég er ekki undrandi á því þó að hv. þm. ræði það mál ítarlega, því það er auðvitað eitt af meginatriðum frv., og það er í samræmi við tillögu starfshópsins sem ég greindi frá í upphafi máls míns hér fyrr í kvöld. Tillaga starfshópsins var svohljóðandi:
„Fellt verði niður ákvæði í lögum nr. 51/1980 um Húsnæðisstofnun ríkisins sem kveða á um bindingu útlánsvaxta Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna. Ákvörðun um vextina tekur ríkisstj. að fengnum tillögum húsnæðismálastjórnar og Seðlabanka Íslands.“
Hér er sem sagt gert ráð fyrir því að farið verði með vexti af lánum þessara sjóða á sama hátt og aðra vexti fjárfestingarlánasjóða í landinu. Tel ég að það sé ekkert út af fyrir sig við slíkt að athuga, enda hljóta menn þá að gæta hófs og taka tillit til þess hvaða sjóðir eru hér á ferðinni. Og það getur auðvitað ekki verið eðlilegt að meðhöndla þá einlægt á sömu forsendum og gert er t.d. í sambandi við almenna fjárfestingarlánasjóði atvinnuveganna, þar sem ætla verður að greiðslugeta sé meiri en hjá almenningi á hverjum tíma.
Í grg. nefndarinnar, sem ég fór ekki út í hér áðan, er mjög rækilega fjallað um þetta atriði. Ég held að ég svari best hv. þm. með því að lesa fáeinar línur úr þessari grg. Þar segir með leyfi hæstv. forseta:
„Vextir á nær öllum útlánum Byggingarsjóðs ríkisins eru nú, samkv. lögum nr. 51/1980, bundnir við 2% og vextir af meginhluta útlána Byggingarsjóðs verkamanna við 0.5%. Öll þau skuldabréf sem sjóðirnir selja eru hins vegar með 3.5% vöxtum og til 15–16 ára, sem er styttri lánstími en á obbanum af útlánum sjóðanna.“
Þetta er sem sagt þannig núna, að þessir sjóðir verða að taka lán á 3.5% vöxtum til 15 og 16 ára meðan þeir lána þetta fé út aftur sjálfir með 0.5–2% vöxtum til 20–42 ára. Hér er auðvitað um að ræða ótækt fyrirkomulag að mínu mati. Þess vegna er eðlilegt að þetta ákvæði sé sett hér inn, með tilliti til þess vaxtamunar m.a. sem sjóðirnir þurfa nú að búa við.
Ég tel að ljóst sé hvernig raða eigi forgangsverkefnum í húsnæðismálum varðandi húsnæðislán, ef menn hafa meiri peninga til að lána út. Í fyrsta lagi eigi að hækka lánin, það sé atriði númer eitt. Í öðru lagi eigi að lengja lánin, það sé áhersluatriði númer tvö. Og í þriðja lagi eigi að bæta kjörin. Ég held að það sé svo mikið og brýn þörf fyrir húsnæðislán að þessi mál hljóti að vera í þessari röð um þessar mundir, hvort sem okkur líkar betur eða verr.
Í grg. nefndarinnar segir síðan: „Augljóst er að áframhaldandi mismunur á vöxtum þess fjár sem sjóðirnir fá að láni og þess fjár sem þeir lána út mun þegar á allra næstu árum grafa undan fjárhagsgetu sjóðanna. Þetta sést glöggt ef skoðuð er skuldabréfasala Byggingarsjóðs ríkisins til lífeyrissjóðanna á yfirstandandi ári, en hún er áætluð 187 millj. kr. Miðað við 50% meðalverðbólgu á ári og að öll upphæðin sé lánuð út á þessu ári, þá myndi sjóðurinn á næstu fimm árum fá inn greiðslur frá lántakendum sem næmu 231 millj. kr., en yrðu hins vegar að standa í skilum við lífeyrissjóðina með 349.6 millj. kr. Sú upphæð sem sjóðurinn þarf að greiða er rúmlega 50% hærri en sú sem hann fær inn. Það er því alger forsenda fyrir framtíðarstöðu hinna opinberu byggingarsjóða að þeir þurfi ekki að bera slíkan vaxtamun til frambúðar.“
Af þeirri ástæðu, herra forseti, er þetta ákvæði flutt í frv. Og ég tel að það sé í raun og veru engin ástæða til að amast við þessu, enda hafa menn úr þremur stjórnmálaflokkum staðið að því að flytja þetta, og ég veit að þeir gera það að mjög vel yfirveguðu ráði.