16.12.1982
Efri deild: 20. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (934)
143. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Hæstv. félmrh. vék ekki í sinni stuttu svarræðu að neinu atriði sem ég ræddi um öðru en breytingu á ákvörðun vaxta á lánum Byggingarsjóðs ríkisins annars vegar og hins vegar á lánum Byggingarsjóðs verkamanna. Hæstv. ráðh. svaraði athugasemdum mínum með því að lesa upp úr grg. frv. skýringar starfshópsins á einstökum tillögum. Þar er tekið fram um Byggingarsjóð ríkisins að öll skuldabréf sem sjóðurinn selji séu með 3.5% vöxtum og til 15–16 ára, en lánin sem hann veitir til 25 eða 26 ára með 2% vöxtum. Og hæstv. ráðh. sagði að þetta gæti ekki gengið. Ég er honum alveg sammála um það. Þetta getur ekki gengið. Þetta er það sem ég hef lagt áherslu á næstum því í hvert skipti sem ég hef rætt um húsnæðismál á undanförnum árum. Þetta getur ekki gengið. Það er grafið undan Byggingarsjóði ríkisins með þessum hætti. Það sjá allir.
En ráðið hjá hæstv. ráðh. er það að hækka útlánsvextina hjá Byggingarsjóðnum. Þess vegna er fellt niður ákvæði úr lögunum um að vextir skulu vera 2%. Þess vegna er það lagt í hendur ríkisstj. og Seðlabankans. Þetta er leiðin út úr ógöngunum sem hæstv. ráðh. sér og ríkisstj.
Mín leið út úr ógöngunum er allt önnur. Hún hangir saman við það hvers vegna við erum komnir í ógöngur í þessu máli. Samkv. lögum á Byggingarsjóður ríkisins að fá andvirði 2% launaskatts sem óafturkræft framlag. Hann þarf ekki að borga vexti af því sem er óafturkræft framlag. Þetta var grundvöllurinn fyrir því að hægt var að ákveða svo lága vexti og ákveðna vexti af lánum Byggingarsjóðs ríkisins. Þetta var grundvöllurinn. Og það var nauðsynlegt að hafa þennan grundvöll til þess að gera Byggingarsjóð ríkisins þannig úr garði að hann gæti verið almennur lánasjóður. En hvað þýðir almennur lánasjóður? Það er lánasjóður sem lánar svo mikið að hinn almenni borgari geti komið sér upp þaki yfir höfuðið, og lánar með slíkum kjörum að hægt sé að standa undir því með almennum launatekjum.
Með því að fara þá leið sem þetta frv. leggur til er verið að eyðileggja Byggingarsjóð ríkisins sem almennan lánasjóð. Það er verið að eyðileggja hann. Við skulum gera okkur fullkomna grein fyrir þessu. Þetta var Byggingarsjóður ríkisins. Hinn byggingarsjóðurinn er Byggingarsjóður verkamanna.
Það var svo frá byrjun, frá því að Byggingarsjóður verkamanna var stofnaður árið 1931, að hann var miðaður við þarfir þeirra allra verst settu í þjóðfélaginu. Og með tilliti til þess voru lánakjörin sniðin. Lánin báru miklu, miklu lægri vexti en þekktist á nokkrum öðrum lánamarkaði. Þessi grundvallarstefna hefur ríkt fram til þessa, því á lánum hjá Byggingarsjóði verkamanna eru vextirnir 0.5%. En nú erum við komnir í ógöngur með Byggingarsjóð verkamanna vegna laganna frá 1980. Áður var allt fjármagn Byggingarsjóðs verkamanna óafturkræft framlag frá ríki og bæjar- og sveitarfélögum. Þetta skapaði grundvöllinn fyrir þessa starfsemi sjóðsins. En samkv. gildandi lögum er framlag ríkis og sveitarfélaga — takið eftir, samkv. gildandi lögum er það 40%. Það er eitt skemmdarverkið sem unnið var árið 1980. (Gripið fram í: Þetta eru öfgar.) Tekið er fram í lögunum að hitt fjármagnið eigi að útvega á hinum frjálsa lánamarkaði og við vitum hverjir vextirnir eru þar.
Ég er sammála hæstv. félmrh. um það að þetta getur ekki gengið. Við erum alveg sammála um það. En við erum ekki sammála um lausnina á þessu. Hæstv. ráðh. vill setja vaxtaákvörðunina í hendur ríkisstj. og Seðlabankans til þess að hafa möguleika á að hækka vextina af lánum til byggingar verkamannabústaða. En ég vil snúa af þessum villigötum og fara inn á þá leið sem var mörkuð þegar 1931, þegar stofnað var til byggingar verkamannabústaða, að allt fjármagn verði óafturkræft framlag eins og var í upphafi og eins og var þar til lögin frá 1980 voru sett. Þetta er munurinn. Og þess vegna lagði ég svona mikla áherslu á þetta. Ég vil í lengstu lög trúa því, að þegar hæstv. félmrh. hugleiðir þetta nánar athugi hann hvort ekki sé rétt að fara aðra leið en hann vill fara með því að kasta þessum hagsmunamálum alþýðunnar í landinu í náðarfaðm Seðlabankans.
Ég er sammála hæstv. félmrh. um það sem hann taldi vera höfuðmarkmiðin í þessum efnum. Hann sagði: Númer eitt er að hækka lánin. Ég er honum sammála.
Númer tvö er að lengja lánin. Ég er honum sammála. Og númer þrjú að bæta vaxtakjörin. Ég er honum sammála. En hann bætir ekki vaxtakjörin með því að leggja þau í vald Seðlabankans.
Nú ætla ég, eins og hæstv. félmrh. gerði, að ræða einungis um þetta vaxtaspursmál, ekki fara út í aðra sálma. Hann gaf mér heldur ekki tilefni til þess. Ég veit líka að við erum ekki búnir að ræðast við endanlega um þessi mál.