16.12.1982
Efri deild: 21. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (937)

21. mál, almannatryggingar

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Herra forseti. Heilbr.og trn. hefur haft til umfjöllunar 21. mál, frv. til laga um breytingu á almannatryggingalögunum. Flm. frv. eru hv. þm. Guðrún Helgadóttir, Pétur Sigurðsson, Magnús H. Magnússon og Guðmundur G. Þórarinsson. Það eru m. ö. o. fulltrúar allra flokka sem flytja þetta frv.

Eins og frv. var afgreitt endanlega frá Nd. gerir það ráð fyrir tveimur breytingum fyrst og fremst. Fyrri breytingin, á 3. málsgr. 34. gr. almannatryggingalaganna, er í raun og sannleika samræming vegna ákvæða í barnalögum um framfærsluskyldu til 18 ára aldurs, þ.e. aldursákvæði í 34. gr., sem hér er fjallað um, eru færð í 18 ár.

Annað atriðið sem breytist við gildistöku þessa frv. er varðandi örorkulífeyri. Í frv. stendur með leyfi forseta: „Ef örorkan er 75% eða meiri skal greiða fullar bætur, og gildir það bæði vegna barna, sem voru á framfæri bótaþega þegar slys átti sér stað, svo og þeirra, sem hann framfærir síðar.“

Eins og þetta var, þá var um að ræða bætur eingöngu vegna barna sem í heiminn voru borin þegar slys átti sér stað.

Þetta eru þær tvær meginbreytingar sem þetta frv. tíundar. Það var alger samstaða í n. að sjálfsögðu um að afgreiða frv.

Gunnar Thoroddsen var fjarverandi afgreiðslu málsins.