16.12.1982
Efri deild: 21. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1230 í B-deild Alþingistíðinda. (943)

123. mál, tollskrá

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Það gildir sama um það mál sem nú er á dagskrá og það mál sem var hér seinast á dagskrá, að um er að ræða framlengingarmál sem væntanlega á að geta verið full samstaða um meðal allra flokka. Fyrir réttu einu ári síðan var flutt hér í þinginu frv. um breytingu á lögum um tollskrá, sem gerði ráð fyrir því að fjmrh. verði veitt heimild til að leggja jöfnunarálag á hús og húshluta í tilteknum tollskrárnúmerum. Ljóst er að að óbreyttum lögum njóta innflutt hús tollfríðinda umfram hús sem byggð eru hér innanlands, vegna þess að tollar eru á ýmsum aðföngum. Að sjálfsögðu er stefnt að því að samræmd endurskoðun tollskrárlaga eigi sér stað og að henni er nú unnið. Ekki er þó gert ráð fyrir að sú endurskoðun leiði til lagabreytinga fyrr en í fyrsta lagi síðar á þessu ári. Það ber því brýna nauðsyn til að tryggja að innlend húsaframleiðsla njóti jafnréttis á við innflutt hús og því verður að leggja sérstakt jöfnunarálag á innfluttu húsin. Innflutningur á húsum hefur farið mjög vaxandi og væri sannarlega ekki á bætandi ef ekki væri lagt á þetta sérstaka gjald á innfluttu húsin.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að-fjölyrða um þetta frv., sem fjallar um það að lögin, sem sett voru í fyrra í desembermánuði og eiga að ganga úr gildi í lok þessa mánaðar, séu framlengd um eitt ár, eða til 31. des. 1983.

Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. fjh.- og viðskn.