17.12.1982
Efri deild: 22. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1240 í B-deild Alþingistíðinda. (976)

28. mál, málefni aldraðra

Forseti (Helgi Seljan):

Varðandi fundahöld í dag vil ég taka það fram, að núna hefur verið óskað eftir því að þingfundahlé yrði til kl. 3.30 vegna þingflokkafunda. Að þeim þingflokkafundum loknum mun fundi fram haldið hér í deild, en síðan boðað til nýs fundar, þar sem ég reikna með að á dagskrá verði: 1. Málefni aldraðra, 3. umr. um það mál, 2. Lífeyrissjóður bænda, 2. umr. um það mál, og 3. Tollskrá o.fl., 2. umr. um það mál einnig, en þau mál lágu hér fyrir til 1. umr. í gærkvöld og nál. mun vera á leiðinni í báðum þessum málum. Að öðru leyti munum við svo taka fyrir þau mál sem koma frá Nd. einnig, ef þau verða þá einhver komin, en síðan hljótum við að fara nokkuð eftir því með framhald funda í dag, hvernig störfum miðar áfram í Nd. varðandi þau mál, sem þar eru og eiga eftir afgreiðslu hér í þessari hv. deild, þ.e. allar umr. í þessari hv. deild.