17.12.1982
Neðri deild: 21. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1242 í B-deild Alþingistíðinda. (992)
65. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Frsm. meiri hl. (Skúli Alexandersson):
Herra forseti. Iðnn. Nd. hefur haft til meðferðar frv. til l. um breyting á lögum nr. 83/1974, um verðjöfnunargjald af raforku. Frv. hefur verið til meðferðar í hv. Ed. og var samþ. þar.
Iðnn. hefur rætt frv. á fundum sínum og fengið þá Kristján Jónsson rafmagnsveitustjóra og Aðalstein Guðjohnsen rafveitustjóra á fund n. til að gefa upplýsingar og umsögn.
Nefndin varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþ. óbreytt eins og það var samþ. í Ed. Tveir minni hlutar munu skila séráliti. Reyndar hefur ekki komið fram álit nema frá öðrum minni hl.
Með setningu þessara laga 1974, um verðjöfnunargjald af raforku, var tekið upp núverandi fyrirkomulag á innheimtu verðjöfnunargjalds. Lögin voru sett til eins árs í senn og hafa verið framtengd árlega nánast óbreytt síðan. Meiri hl. nm. telur að enn skorti nokkuð á um að ráðin hafi verið bót á fjárhagsvanda Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða, en í því augnamiði voru þessi lög sett. Við teljum því að enn sé þörf á því að framleng ja þessi lög til ársloka 1983 og leggjum til að frv. verði samþykkt.