19.10.1983
Efri deild: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í B-deild Alþingistíðinda. (101)

24. mál, tollskrá o.fl.

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég verð að gera stutta aths. við ræðuna sem hv. 4. þm. Reykn. flutti hér. Í fyrsta lagi: Ég minnist þess ekki að hafa skrifað neina blaðagrein um þessi efni í sumar. Það getur þó verið að eitthvað hafi verið vikið að því í einni setningu. En það var allavega ekkert meginatriði máls. Og hitt er það, að hv. 4. þm. Reykn. hefur ekki hlustað nægilega vel á mína ræðu áðan. Ég hrósaði því sem gert var í sambandi við niðurfellingu tolla af búsáhöldum. Ég verð að endurtaka það hér, hafi hv. 4. þm. Reykn. ekki heyrt það. Annars hefur hún þá valið þann kost að rangtúlka mín orð.

Hins vegar spurði ég: Hvað olli því að þurrkaðar döðlur og fíkjur voru sérstaklega teknar út úr umfram ýmis önnur matvæli? Ég fékk ekkert svar við því. Og hér er fullyrt að þetta sé verulegur þáttur í daglegri neyslu heimilanna í landinu. Ég vil biðja hv. þm. að kynna sér neyslukönnun Hagstofunnar og sjá hvað gráfíkjur og döðlur vega þar þungt í útgjöldum venjulegrar fjölskyldu. Hvers vegna kynna hv. þm. sér ekki þessi mál? Ég fullyrði að þetta eru ekki stærstu útgjaldaliðirnir hjá venjulegum fjölskyldum í þessu landi í dag.

En hv. þm. hefur rétt mér grein úr Dagblaðinu frá því 15. júlí og það er rétt hjá henni að ég hef vikið að þessu í þremur línum. Þar segir, með leyfi forseta:

„Fyrir nokkru var frá því skýrt að lækka ætti tolla á ávöxtum. Þegar að var gætt kom í ljós að þar var einkum um að ræða þurrkaðar fíkjur, sem ekki vega mjög þungt í ávaxtaneyslu Íslendinga.“

Ég held að þetta sé alveg rétt. Ég stend við þau ummæli, að þurrkaðar fíkjur vegi ekki mjög þungt í ávaxtaneyslu Íslendinga. Ég held að því verði ekki móti mælt. En ég fagna þeirri yfirlýsingu hæstv. fjmrh. að tollskráin skuli öll vera í endurskoðun og ég vona að það verði mjög til einföldunar frá því sem verið hefur.

En nokkur orð varðandi yfirlýsingu hæstv. fjmrh., sem ég vitnaði til og birt var í Morgunblaðinu 14. þ.m. og ég vil endurtaka með leyfi forseta:

„Það er vitað að það hefur verið svipað með hljómplötur og nylonsokkana á sínum tíma,“ sagði Albert Guðmundsson í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Miklu er smyglað inn í landið.“

Fjmrh. í ríkisstjórn Íslands getur ekki leyft sér að viðhafa slík ummæli án þess að finna þeim stað eða skýra þau nánar. Það er mergur þessa máls. Ummæli ráðh. vega þungt og þegar ráðherrar láta hafa slíkt eftir sér verða þeir að finna sínum ummælum stað og skýra þau nánar. Þá kröfu verður að gera til hæstv. ráðh. í virðulegri ríkisstjórn Íslands.