25.11.1983
Neðri deild: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (1014)
59. mál, innlend lánsfjáröflun ríkissjóðs
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég legg hér fram frv. til l. um innlenda lánsfjáröflun ríkissjóðs. Það er eins komið með þetta frv. eins og hin fyrrnefndu sem ég hef mælt hér fyrir í dag. Þetta frv. var lagt fram í Ed. og hefur hlotið afgreiðslu Ed. og vísa ég til ræðu minnar þegar ég fylgdi því úr hlaði þar ásamt grg. eða aths. við þetta frv. hér. Ég vona að það hljóti sömu afgreiðslu hér í þessari hv. deild eins og það hefur þegar hlotið í Ed.