25.11.1983
Neðri deild: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1160 í B-deild Alþingistíðinda. (1016)
59. mál, innlend lánsfjáröflun ríkissjóðs
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Ég ætla að lýsa stuðningi við það minnihlutaálit sem er komið frá Ed. í þessu máli eða þá aðra sambærilega aðgerð sem tryggir þessa peninga hugsanlega á annan hátt. Ég held að það sé nauðsynlegt vegna þess að ástæða er til að hafa uppi efasemdir um að sala þessara skuldabréfa gangi vel. Það er þá eitthvað búið að segja manni rangt um ástand sparnaðar og efnahagsmála í þessu þjóðfélagi. Ég held að það sé mikið atriði að tryggja framgang húsnæðismála, þau verða að fá þann sess sem þeim hæfir. Þau eru forgangsverkefni, það á að líta á þau sem félagsmál af sama toga og menningar- eða menntamál, heilbrigðismál o.fl. Og því held ég að nauðsynlegt sé að tryggja þessa peninga. En mér sýnist að lagt sé til í þessu minnihlutaáliti að gera það á mjög skynsamlegan hátt með fjárveitingu frá Seðlabankanum vegna þess að við höfum verið að komast á síðustu vikum að ýmsu fróðlegu um Seðlabankann. Þar er hægt að útvega fé sem enga peninga kostar og þá held ég að það sé rétt að reyna það enn um sinn.