25.11.1983
Neðri deild: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1168 í B-deild Alþingistíðinda. (1021)

101. mál, frestun byggingaframkvæmda við Seðlabanka Íslands

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Mér finnst ástæða til þess að fara örfáum orðum um frv. það sem hér er til umr. og það sem komið hefur fram í ræðu hv. frsm., hv. 3. þm. Vestf., enda þótt nokkuð hafi nú verið rætt um bankamál, Seðlabankabyggingu, útibú, á Alþingi á undanförnum vikum. Það frv. sem hér er flutt er að mínum dómi skýrt. Því er ætlað að taka af allan vafa um hvernig þessum málum skuli háttað, þar til annað verður ákveðið og að því leyti — samanborið við þá þáltill. sem hér var til umr. um daginn, tekur það skýrt fram hvernig með þetta skuli farið. Fyrri málsl. 1. gr. er skýr og í 2. mgr. er gert ráð fyrir að af því sem fyrri mgr. segir og framkvæmd hennar þá verði þó ekki gerðar neinar þær ráðstafanir að til bótagreiðslna þurfi að koma.

Það er svo aftur allt annað mál hvort þm. eru sammála þeirri aðferð sem þessir hv. flm. leggja til eða hvort þeir telja að málið sé með þeim hætti á öðrum vettvangi að ástæða sé til slíkrar lagasetningar, svo og hitt hvort slík lagasetning, slík bönn sem hér er um að ræða séu til nokkurs í þessum efnum. Því að hér er verið að ræða um fjárfestingarákvarðanir sem gerðar háfa verið í sambandi við framkvæmdir á árinu 1984. Það eru settar fram tölur í þeim efnum og hins vegar rætt um efnahagsvanda og hvað hægt væri nú að gera ef þær milljónir sem nefndar hafa verið væru til ráðstöfunar um leið og það er tekið fram að þær séu í raun og veru ekki til ráðstöfunar og það viðurkennt.

Ég held að við deilum ekkert um það að óhófleg fjárfesting, hvar svo sem hún er, er okkur þm. ekki að skapi og við viljum því stemma stigu við henni. Hitt liggur ljóst fyrir eins og þetta frv. gerir ráð fyrir að aftur verður ekki snúið með ákvarðanatökur sem átt hafa sér stað kannske snemma á þessu ári og einmitt gert ráð fyrir að ekkert slíkt gerist ef um verði að ræða bótagreiðslur af hálfu hins opinbera.

Þessar umr. sem fram hafa farið hafa dregið fram í dagsljósið fjármuni bæði í sambandi við byggingarmál hjá Seðlabankanum, sem hér er vikið að, svo og byggingarkostnaði við útibú sem leyfð hafa verið og rekstrarkostnað. Ég held að hér sé verið að flíka tölum sem ekki eru raunhæfar til lausnar á því vandamáli sem við höfum við að glíma, enda þótt ég sé þeirrar skoðunar að það þurfi að gæta hófs í þessum efnum og ég hef beitt mér fyrir því að slíkt verður gert.

Hv. frsm. sagði að þeir Alþfl.-menn sem flytja þetta frv. gerðu þetta eiginlega til að létta mér leiðina í þessum málum og þetta væri gert sérstaklega fyrir viðskrh. Jafnvel látið liggja að því að hann hefði óskað eftir að frv. eins og þetta væri flutt, en gjarnan dregið til baka í síðari setningu sem látið var í ljós ótvírætt þó í fyrri setningu.

Ég gat þess þegar ég ræddi um þá þáltill. sem liggur fyrir Sþ. um byggingarmál Seðlabankans að ef Alþingi ætlaði sér að hafa afskipti af málinu yrði það ekki gert með þeirri till., það yrði ekki gert öðruvísi en með lagasetningu. Það er hárrétt og ég vil svo gefa flm. þá einkunn með því frv. sem hér er flutt að það er út af fyrir sig að mínum dómi rétt ef menn eru inni á þeirri stefnu sem í því felst.

Ég er hins vegar ekki maður banna, ég vil gera þessa hluti og leysa þá með þeim hætti sem eðlilegast er að gera og það sé leitað samstarfs við þá aðila sem hér eiga hlut að máli og það hefur verið gert af hálfu viðskrn. Viðskrn. hefur ritað öllum bönkunum, ekki bara ríkisbönkunum heldur einnig einkabönkunum, iðnrn. og landbrn. bréf og óskað eftir því, eins og segir í þessum bréfum, að bankarnir dragi svo sem unnt er úr fyrirhuguðum fjárfestingum á næsta ári m.a. með því að gera enga nýja verksamninga við framkvæmdaaðila. Jafnframt hefur ráðuneytið mælst til þess að fá upplýsingar um þær fjárfestingar sem viðkomandi banki hefur ákveðið að ráðast í á næsta ári.

Mér finnst eðlilegt að sú nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar, sem að mínum dómi á að vera hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar, hún fái þessi bréf send frá ráðuneytinu. Hún fái allar þær upplýsingar sem bréfin gera ráð fyrir til þess að geta glöggvað sig á því, hver staða þessara mála er.

Vissulega erum við sammála um það, ég og hv. flm. þessa máts, að við viljum létta byrðarnar og dreifa þeim réttlátlega niður. Við reynum að gera það eftir bestu getu, hvor á sínum stað. En að láta í það skína að það sem hér er til umr. geri það með einum eða öðrum hætti held ég að sé nú meira til að setja þetta mál út til einhvers konar auglýsingar en hitt, að að baki þess sé í raun og veru hugsað, að hér geti orðið um eitthvað slíkt að ræða varðandi þessi atriði.

Ég gat um þau bréf sem rituð hafa verið til bankanna og sjálfsagt er að sú nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar fái. Skoðun mín er sú að svör við þessum bréfum verði með þeim hætti að því sem í fyrri málsgr. þessa frv. er um fjallað verði fullnægt með þessum svörum og þess vegna það sem hér er um að ræða, samþykkt á fyrri málsgr., með öllu óþarft, enda á ég von á að áður en langt um liður verði til meðferðar hér á Alþingi frumvörp í sambandi við Seðlabankann, viðskiptabanka og sparisjóði og þar fái menn tækifæri til að koma að sínum athugasemdum og lögfesta þá hluti eða leggja til lögfestingu á þeim hlutum sem þeir telja rétt.

Það var vikið að því hér áðan hvernig þessum málum væri nú komið í sambandi við útibúin og vikið að því að 32 umsóknir um útibú liggi óafgreiddar í viðskrn. eða hjá Seðlabankanum því þangað eru þær sendar og leitað umsagnar hans. Þessi tala, 32 útibú, þar er náttúrlega verið að fara með tölu með mjög röngum hætti því að það skömmtunarfyrirkomulag sem er í dag á þessum málum kallar á þær starfsaðferðir sem hafðar hafa verið af þessum aðilum, þ.e. að leggja inn umsóknir, ekki eina, ekki tvær, ekki þrjár heldur kannske miklu fleiri til að öruggt sé að þegar næsta skömmtun á sér stað verði þeir ekki útundan. Þess vegna er sjálfsagt talan 32 eða hver önnur jafnhá til komin og hefur í allri umr. verið misnotuð gegn bönkum og sparisjóðum, en ástæðan er, eins og ég sagði áðan, það skömmtunarfyrirkomulag sem hefur gilt um nokkuð langan tíma.

Hv. frsm. talaði um hógværð, raunsæi og vilja til að taka tillit til staðreynda af hálfu þeirra flm. og um það efast ég ekki. Hans hógværð þekkja allir, hans raunsæi og hans vilja til að taka tillit til annarra og við skulum vona að þannig reynist það nú þegar fram í sækir.

Ég ætla ekki að hafa þessi orð mín fleiri. Ég vildi að það kæmi hér fram við þessa umr. að bönkum og sparisjóðum, ekki aðeins ríkisbönkunum, hefur verið ritað á þá leið sem ég las hér upp áðan og ég vonast til að þeir muni innan mjög skamms tíma svara þeim þannig að sú nefnd sem fjallar um þetta frv. muni fá þær upplýsingar. Mín skoðun er sú að boð og bönn eins og hér er gert ráð fyrir séu ekki lausnin á vandanum, heldur samstarf á milli aðila, stjórnvalda og þeirra stofnana sem hér er um fjallað. Nefndin mun komast að raun um að það samstarf er fyrir hendi og ef um óhóflegar fjárfestingar eða of stórhuga hugmyndir er að ræða að dómi þeirra sem hér hafa lagt fram frv. muni þeir sjá að þessir aðilar eru reiðubúnir til samstarfs í þeim efnum. En til fjh.- og viðskn. finnst mér, herra forseti, eðlilegast að þetta frv. gangi.