25.11.1983
Neðri deild: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)

101. mál, frestun byggingaframkvæmda við Seðlabanka Íslands

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég get í rauninni tekið undir margt af því sem hér er sagt um framferði banka og peningastofnana. Þessar hallabyggingar eru dónaskapur, má segja, við fólk sem alltaf er verið að minna á sultarólarnar og að herða skuli beltin. Ég get trútt um talað sjálfur. Ég er svo heppinn að háfa silfurbólu á beltinu mínu þar sem ég byrjaði í vor og ég er búinn að bæta við fjórum götum. Ég veit að það er ekki á þann veginn sem Steingrímur hæstv. forsrh. bað um.

En þessar byggingar sýna okkur á skondinn hátt inn í einn álfahólinn í stjórnkerfi efnahagsmála. Það er ekkert nýtt að upp komi umræða um eyðslusemi bankanna. Slíkar umræður hafa komið upp með nokkuð reglubundnum hætti í mörg ár. Ég man eftir því þegar hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson stillti bankastjórum upp í sjónvarpssal á árunum eins og leirdúfum og baunaði á þá spurningum um eyðslusemi og peningaráð. Menn eru að fást við króa sem hefur lengi verið til og þeir bera ábyrgð á að einhverju leyti sjálfir.

Ég held að á verði hérna að ósi stemma eins og oftar. Þessi útþensla í bankakerfinu er afleiðing af stefnuleysi í stjórn peningamála og það er í raun til lítils að stöðva þessar framkvæmdir ef menn finna ekki almennilega skýringu á því, hvers vegna bankarnir hafa þessi ótrúlegu peningaráð. Það er kannske ástæða til að setja lög um umgengni bankanna við innstæður viðskiptamanna sinna. Á sama hátt er, eins og áður hefur verið bent á úr þessum stóli, að mig minnir af hv. þm. Jóni Baldvin Hannibalssyni, undarleg ráðstöfun ef Seðlabankinn notar sína sjóði, sem m.a. eru refsivextir, settir á til að hamla gegn verðbólgu, það er undarlegt ef Seðlabankinn notar það fé síðan til bygginga og veitir því þannig út í verðlagið aftur, þar sem það veldur vafalaust þeirri þenslu sem átti að koma í veg fyrir áður.