25.11.1983
Neðri deild: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (1026)
101. mál, frestun byggingaframkvæmda við Seðlabanka Íslands
Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Það eru nokkur orð út af þeim ræðum sem hér hafa verið fluttar.
Hv. 4. landsk. þm. kom og talaði um framferði bankanna í sambandi við þau mál sem hér hafa verið til umr. Ég vil benda þessum hv. þm. og öðrum hv. þm. á þá þjónustu sem bankastofnanir veita fólkinu í þessu landi og ég vil benda öllum hv. alþm. á að þær niðrandi umr. sem hér fara fram varðandi þær stofnanir sem við erum að tala um eru ekki Alþingi til sóma. Það má vel vera að menn séu á einum eða öðrum tíma ekki sammála þeim mönnum sem veita þessum stofnunum forustu. Þó skulum við ekki gleyma því að fólkið í þessu landi hefur notið þjónustu þeirra og það hefur víða verið svo, að bankarnir og sparisjóðirnir hafa verið lyftistöng atvinnulífs á hverjum stað. Ég vil gjarnan segja þessum hv. þm. frá því, að seinasta beiðnin um útibú er einmitt komin frá því kjördæmi sem hann hefur verið í framboði fyrir. Og það er ekki bara að sú stofnun sem biður um útibú sæki þar um. Það fylgja undirskriftir næstum allra íbúanna í því byggðarlagi og samþykkt bæjarstjórnar í því byggðarlagi. Við skulum því átta okkur á að það er ekki aðeins að peningastofnanirnar vilji gjarnan fá tækifæri til að veita þjónustu, taka á móti fé og lána fé. Það eru líka forustumennirnir í byggðarlögunum sem víða óska eftir þessu og hafa lagt á það megináherslu.
Þetta vildi ég gjarnan láta koma fram. Ég hef sjálfur starfað í tengslum við bankaþjónustu í 25 ár. Ég þekki þau mál mjög vel og veit hvernig þeim er háttað. Hitt liggur svo ljóst fyrir að auðvelt er að höggva í þann knérunn þegar á móti blæs í þjóðfélaginu og segja: Þangað á að sækja það fjármagn sem við þurfum til þess að leysa vandann. — En það gerum við ekki með frv. því sem þessir þrír hv. þm. hafa flutt, einfaldlega vegna þess að með 2. mgr. taka þeir í burtu það sem þeir segja í þeirri 1. Í því lá það sem ég sagði áðan. Það er talað um að stöðva byggingu húss Seðlabankans og stöðva byggingar annarra ríkisbanka. En svo er 2. gr. Hún segir, sem er alveg hárrétt: Það skulu menn ekki gera ef það kosti skaðabætur. Og ég spyr: Hvaða verksamninga kostaði ekki skaðabætur áð stöðva? Það liggur alveg ljóst fyrir að það sem sagt er í 1. mgr. er dregið til baka í 2. mgr.
Varðandi það sem ég sagði um tilmæli mín til rn.: Ég er sannfærður um það og viss um það, að tilmæli mín til rn. muni þjóna þeirri hugsun sem er að baki þessa frv. og þess vegna sé með öllu óþarfi að samþykkja það. Að því leyti sem það lýtur að valdi, eins og ég sagði í fyrri umr., þá tel ég það miklu betur komið í höndum þess sem fer með viðskrn. nú en að um það séu sett lög sem banni eitt eða banni annað.