19.10.1983
Efri deild: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

25. mál, lántaka Áburðarverksmiðju ríkisins

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Frv. til l. um lántöku Áburðarverksmiðju ríkisins, sem er á þskj. 25, er flutt til að leita staðfestingar á brbl. sem sett voru 30. mars s.l. í tíð forvera míns í embætti fjmrh.

Í fjárlögum fyrir 1983 var svo ráð fyrir gert, að aflað yrði 80 millj. kr. innlends láns til Áburðarverksmiðju ríkisins. Sú leið mun þó ekki hafa þótt fær og var því heimildar til töku erlends láns aflað með brbl. Var lánið tekið s.l. vor. Í brbl. er að finna heimild til að greiða helming hverrar afborgunar og vaxta af láni þessu og segir þar að greiðslur þessar skuli metnar sem stofnframlag ríkissjóðs í Áburðarverksmiðju ríkisins vegna byggingar saltpéturssýruverksmiðju.

Fyrrv. fjmrh. ákvað að nýta þessa heimild. Hér er á ferðinni glöggt dæmi þess, hvernig fyrrv. ríkisstj. flúði undan vanda líðandi stundar og velti honum yfir á framtíðina.

Ég bið virðulegan forseta afsökunar, en ég legg til að frv. þessu verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.