28.11.1983
Efri deild: 21. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (1030)

44. mál, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Virðulegi forseti. Mál þetta hefur þegar verið samþ. í hv. Nd. og rætt í hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar, þar sem menn urðu á eitt sáttir um að mæla með samþykkt þess. Menn þekkja þetta mál, hvað það snýst um, það er þátttaka okkar í almennri hækkun kvóta hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það mun vera 8. slík almenn hækkun.

Málið hefur fengið ítarlega umfjöllun í þinginu, fyrst í Nd. og síðan í nefnd hér í þessari hv. deild. Við leggjum til, allir nefndarmenn, að frv. verði samþ.