28.11.1983
Efri deild: 22. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (1034)

26. mál, fjármálaráðstafanir til verndar lífskjörum

Kristófer Már Kristinsson:

Virðulegi forseti. Um efni þess frv. sem hér liggur fyrir hafa farið fram ítarlegar umr. bæði í tilefni frv. sjálfs og eins hafa menn tekið sér önnur tilefni til þess arna. Það er þess vegna e.t.v. til lítils að ætla að taka hér til máls og endurtaka að meira eða minna leyti það sem aðrir hafa sagt í fyrri umr. Þó get ég ekki orða bundist vegna þeirrar yfirskriftar sem frv. ber, og eins vegna yfirlýsts tilgangs hæstv. ríkisstj. með lagasetningu þessari. Það hefur komið fram og er margítrekað að þessum lögum er fyrst og fremst ætlað að koma hinum lægst launuðu og verst settu til góða. Gott um það. Hins vegar finnst mér sýnt fram á það í áliti minni hl. fjh.- og viðskn. að lögin ná alls ekki tilgangi sínum. Og ég hef ekki heyrt hæstv. ráðh. eða hv. stjórnarþingmenn hrekja þær niðurstöður sem birtar eru í áliti minni hlutans. Mér finnst það varða álit og virðingu þingsins að þau lög sem það setur nái yfirlýstum tilgangi sínum. Þess vegna furða ég mig á þeim vinnubrögðum sem hv. stjórnarþm. ætla að viðhafa við afgreiðslu þessa lagafrv.

Mér sýnist brtt. minni hl. fjh. og viðskn. mjög af hinu góða og sníða augljósa vankanta af frv. Það kom greinilega fram í atkvgr. að hv. stjórnarþm. líta á það sem sitt hlutverk að koma þessu máli óbreyttu — og þá meingölluðu í gegn. Nú kann að mega kenna það einfeldni minni að ég get ekki á það fallist að hlutverk hv. meiri hl. á þingi sé fyrst og fremst að drífa stjórnarfrv, í gegn, en ekki að tryggja ásamt öðrum þm. að lög séu réttlát og umfram allt nái yfirlýstum tilgangi sínum. Þetta er e.t.v. barnaleg afstaða og í litlu samræmi við raunveruleikann, en mér finnst að sjálfstæði þingsins og ábyrgð í vinnubrögðum hljóti að vera sameiginlegt hagsmunamál þm. í stjórn og stjórnarandstöðu.

Sú viðleitni til mildandi aðgerða sem birtist í þessu frv. er af hinu góða, en ég hlýt að harma að ekki verður séð að það nái þeim tilgangi sínum að vernda hag þeirra sem við lökust kjör búa.