28.11.1983
Efri deild: 22. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í B-deild Alþingistíðinda. (1049)
88. mál, starfsmannaráðningar ríkisins
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ekki hélt ég að það ætti fyrir mér að liggja að skilgreina hvað er bóndi eða hvenær bóndi er ekki bóndi eða atvinnurekandi. Ég verð líklega að gera tilraun til þess.
En fyrst vil ég segja það að hv. þm. Árni Gunnarsson blandar saman lífeyrissjóði og afleysingasjóði, afleysingasjóði bænda. Það er spurt um það. (AG: Hvort hann sé í gildi áfram fyrir afleysingaþjónustuna.) Já, ég reikna með því að afleysingasjóðurinn verði í gildi áfram. Afleysingasjóðurinn er sjóður sem greiðir laun þeirra sem leysa bændur af í veikindaforfötlum eða í hvíldarfríum. Það fer ekki á milti mála og blandast ekki saman við það frv. til l. um Lífeyrissjóð bænda sem hér er á dagskrá. Hv. þm. spurði: Hvað er bóndi í þessu sambandi? Er hann atvinnurekandi eða er hann ekki atvinnurekandi? Er hann launþegi? Ég vil þá með leyfi forseta lesa upp 2. gr. frv. sem svarar spurningunni. Hún hljóðar svo:
„Sjóðfélagar skulu vera allir bændur og makar þeirra. Bóndi í þessu sambandi, þar með talinn aðili að félagsbúi, telst sá er stundar búskap á lögbýli þar sem hann á lögheimili, enda hafi hann náð 16 ára aldri fyrir lok næsta almanaksárs á undan. Búi bóndi í óvígðri sambúð eiga bæði rétt á sjóðsaðild, ef þau eiga sameiginlegt lögheimili og hafa átt eða eiga von á barni saman eða sambúðin hefur varað samfleytt í a.m.k. tvö ár, enda óski þau þess bæði skriflega.
Launþegar er stunda störf við landbúnað skulu vera sjóðfélagar, enda hafi þeir náð 16 ára aldri og eigi ekki sjálfsagða aðild að öðrum lífeyrissjóði.“
Ég sé ekki ástæðu til að lesa þetta frekar en ég held að þetta svari spurningunni.