19.10.1983
Efri deild: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í B-deild Alþingistíðinda. (105)

27. mál, niðurfelling stimpilgjalda af íbúðalánum

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég legg hér fram frv. til l. um heimild til niðurfellingar eða endurgreiðslu stimpilgjalda af íbúðalánum, sem eru brbl. Í samræmi við ákvæði í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. fóru á s.l. sumri fram viðræður við banka og sparisjóði um skuldbreytingalán fyrir þá sem stofnað höfðu til skuldar vegna byggingar eða kaupa á eigin húsnæði í fyrsta sinn undanfarin 2–3 ár. Leiddu þessar viðræður til þess, að lánastofnanirnar féllust á að taka að sér slíkar skuldbindingar af lánum sem þær höfðu veitt. Lánstími þessara skuldbreytingalána var allt að fimm árum og þau voru bundin lánskjaravísitölu með 3% vöxtum og veitt gegn fasteignaveði.

Samkv. lögum um stimpilgjald hefði átt að leggja 1.5% stimpilgjald á fjárhæð skuldbreytingalánanna. Ljóst er að stimpilgjald hafði þegar verið greitt af flestum þeirra skammtímalána sem breyta skyldi í lán til lengri tíma á grundvelli ofangreinds samkomulags. Hefði slík gjaldtaka því í mörgum tilfellum leitt til tvísköttunar á þessum lánum. Með þessum rökum og til að draga sem allra mest úr kostnaði húsbyggjenda við skuldbreytinguna voru hinn 6. sept. s.l. sett brbl. um heimild til handa fjmrh. til niðurfellingar eða endurgreiðslu á stimpilgjaldi af þeim skuldbreytingalánum er undir samkomutagið féllu. Er frv. þetta flutt til staðfestingar á þeim brbl.

Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.