28.11.1983
Neðri deild: 18. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1208 í B-deild Alþingistíðinda. (1064)

14. mál, verslunaratvinna

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Hér er á ferðinni, eins og að hefur verið vikið, gamall kunningi og þekktur ekki að góðu. Hér er verið að rifja upp skýrslu sem er fimm ára gömul, gerð að frumkvæði fyrrv. viðskrh. og lögð fram árið 1978, byggð á sérstakri úttekt á innflutningsverslun á Íslandi og samanburði á henni við innflutningsverð annars staðar á Norðurlöndum. Þessi skýrsla var á sínum tíma tilefni alvarlegrar pólitískrar umræðu og ég minnist þess að mörgum varð hún mikil hneykslunarhella. Ástæðan er einföld. Ástæðan er sú, að meginniðurstaða skýrslunnar var að innflutningsverðlag á Íslandi í samanburði við innflutningsverðlag til annarra landa á Norðurlöndum væri miklum mun hærra, eða eins og hér segir í grg. verðtagsstjóra orðrétt, með leyfi forseta:

„Könnun sýnir ótvírætt að við skerum okkur alveg úr miðað við hinar Norðurlandaþjóðirnar þar sem okkar innkaupsverð eru áberandi hæst. Vegna samkomulagsins um birtingu, sem getið er um að framan, mun ég ekki gera grein fyrir útkomu einstakra vörutegunda, en til þess að gefa hugmynd um heildarniðurstöðu könnunarinnar er hér eftirfarandi tafla sem sýnir meðaltalsútkomu á innkaupsverðum hverrar þjóðar og er Svíþjóð, sem kemur út með lægst meðaltalsverð, sett sem 100.“ Og síðan kemur upptalningin: Svíþjóð 100, Danmörk 103.6, Noregur 103.6, Finnland 104.7, Ísland 126.7.

Í öllum þeim umræðum sem orðið hafa um mistök hagstjórnar á Íslandi á liðnum 10–12 árum hefur athyglin beinst minna en ástæða kannske væri til að verðmyndunarkerfinu sjálfu og þá ekki síst innflutningsversluninni. Undantekning frá því er þessi skýrsla. Satt að segja er það makalaust að hún skuli hafa rykfallið á borðum margra viðskrh. árum saman og vera enn í dag ekkert annað en pappírsgagn, fróðleikur, og að enginn þeirra viðskrh. sem setið hafa á stóli síðan skuli hafa séð ástæðu til að taka alvarlega efni skýrslunnar eða taka alvarlega þær ábendingar eða þær tillögur sem höfundar skýrslunnar lögðu fram um breytingar á verslunarháttum.

Ég minnist þess t.d. að haustið 1979 skrifaði sá sem hér stendur greinaflokk í dagblað þar sem hann gerði að umtalsefni niðurstöður þessarar skýrslu og kannanir eða skoðanir höfunda skýrslunnar á orsökum þessa gífurlega misræmis, tók afstöðu til þeirra tillagna sem fram voru settar og beindi ótal spurningum til hæstv. þáv. viðskrh., sem reyndar er flm. þessarar till. hv. 3. þm. Reykv. Svavar Gestsson. Ég minnist þess alveg sérstaklega að þrátt fyrir þessi greinaskrif og þrátt fyrir ítrekaðar fsp. til hæstv. ráðh. voru svörin engin, nákvæmlega engin. Og það liggur alveg ljóst fyrir, eins og málflutningur hans hér ber með sér, að það ár eða rúmlega svo sem hann sat á stóll viðskrh. lá þessi skýrsla, hneykslanleg sem hún er, á borði hans, rykféll þar og athafnir hans urðu engar, nákvæmlega engar. Þetta er tilefni til að hugleiða að það er ekki mjög trúverðugt þegar einstaklingar eða stjórnmálaflokkar hafa setið við völd árum saman, fengið upp í hendurnar frá forverum sínum annað eins mál og þetta, aðhafast ekki nokkurn skapaðan hlut allan sinn valdatíma, jafnvel sitjandi í viðskrn. sjálfu, og draga síðan skýrsluna rykfallna upp úr pússi sínu rétt í þann mund sem hv. þm. hefur yfirgefið stjórnarstólana og gera hana þá að tilefni til málflutnings á Alþingi. Til hvers eru menn að sitja í ríkisstj., til hvers sækjast menn eftir völdum? Til hvers boða menn skoðanir sínar fyrir kosningar um að það þurfi að taka málefni innflutningsverslunarinnar til gagngerðrar endurskoðunar, aðhafast síðan ekkert á valdastóli og varpa síðan fram einhverjum fsp. eða till. u.þ.b. sem þeir láta af völdum? Þetta er því miður enn eitt sorglegt dæmi um skort á pólitískum hellindum að mínu mati, sem á sinn þátt í því að skapa trúnaðarbrest milli stjórnmálamanna og almennra kjósenda í landinu.

Herra forseti. Ég vitnaði áðan í meginniðurstöðu þessarar skýrslu, sem er sú að innflutningsverðlag til Íslands er allt að fjórðungi hærra en innflutningsverðlag annars staðar á Norðurlöndum. Þegar höfundar skýrslunnar greindu orsakir þessa nefndu þeir einkum eftirfarandi þætti:

Í fyrsta lagi nefndu þeir það verðlagningarkerfi, þ.e. prósentuálagningarkerfi, sem lögboðið er og lengi hefur viðgengist í innflutningsverslun og er þess eðlis að það beinlínis verkar hvetjandi fyrir innflytjendur til þess að hækka innflutningsverð. Alla vega má orða það svo varfærnislega, að það hefur í sér falið enga hvatningu til innflytjenda til að hafa fyrir því að leita eftir sem hagkvæmustum innflutningi.

Í annan stað nefna höfundar skýrslunnar afleiðingar þessa kerfis, svo sem eins og t.d. töku óeðlilega hárra umboðslauna erlendis, jafnvel vanskil á gjaldeyri og undandrátt frá sköttum af því tilefni, óhagkvæmni í innflutningi vegna millliðakaupa frá þriðja aðila, ef vara er t.d. flutt inn frá Bandaríkjunum er hún flutt inn í gegnum þriðja aðila í Danmörku, óhagkvæmni smárra innkaupa og fleira í þeim dúr. Þetta eru helstu niðurstöður eða helstu orsakir sem höfundar skýrslunnar lögðu fram og nefndu til.

Ég minnist þess einmitt frá haustinu 1979 að ég mætti einhvern tíma á fundi, að mig minnir hjá Verslunarráði Íslands, sem málsvari fyrir minn flokk vegna blaðaskrifa og umræðna um þessa skýrslu. Ég lýsti þar þeirri skoðun minni, að það ástand sem skýrslan lýsti væri harður dómsáfellir yfir það kerfi sem ríkt hefði í verslunar- og innflutningsmálum hér á landi, hún virtist a.m.k. renna stoðum undir þá skoðun að lögbundin verðstöðvun, sem við vorum þá búnir að upplifa í 10 ár, jafnvel nýbúnir að upplifa herta verðstöðvun og verðlagseftirlit af því tagi, virtist bókstaflega engum árangri hafa skilað.

Við stóðum eftir sem áður, þrátt fyrir alla lagasetningu um verðstöðvanir og hertar verðstöðvanir, uppi með verðlagsþróun sem fól í sér verðbólgu sem var þetta sex- til tíföld á við þær viðskiptaþjóðir sem bjuggu við allt annars konar kerfi. Ég leyfði mér þess vegna að lýsa því yfir og vitnaði til stefnuyfirlýsingar Alþfl. fyrir þær kosningar, að það væri alveg augljóst mál að þetta kerfi sem stíkt hefði gengið sér til húðar og það væri fyrir löngu kominn tími til að gera a.m.k. tilraun í þeim greinum verslunar þar sem ástæða væri til að ætla að raunveruleg samkeppni væri fyrir hendi með það, hvort árangur yrði betri af raunverulegri samkeppni í innflutningsverslun. M. ö. o. að gera tilraunir með það kerfi í þessum málum sem flestar ef ekki allar þjóðir í Vestur-Evrópu búa við og hafa skilað þeim þeim árangri sumum hverjum að verðbólga þar hefur verið á bilinu 2–3 og upp í 6–8%.

Þá stóð upp kunnur innflytjandi, sem þennan fund sat, og flutti smátölu. Og ég ætla að leyfa mér að endurflytja kjarna hennar fyrir hv. þm. Hann sagði eitthvað á þessa leið: Í guðanna bænum verið nú ekki að þessu. Ég lýsi því hér með yfir fyrir hönd okkar innflytjenda að við erum hæstánægðir með það kerfi sem við búum við, hæstánægðir. Það kerfi sem við búum við er ósköp einfaldlega þannig, að löggjafinn ákveður hvaða álagning sé lögleg á hverri vörutegund. — Umræddur heildsali sagði: Hún er í mjög mörgum greinum, sérstaklega ef um er að ræða magnmiklar neysluvörur, svo lág — og bætti við: eins og félagar okkar hjá Sambandi ísi. samvinnufélaga munu geta vottfest — að hún hrekkur ekki fyrir dreifingar- og geymslukostnaði. Við bætum okkur þetta upp á einfaldan máta: Við hækkum umboðslaun. Það er búið að vera á vitorði verðlagsyfirvalda í 10 ár. En aðalatriðið er þetta: Samkvæmt þessu kerfi er innflutningsverslun eins konar partur af hinum opinbera geira. Við erum eins konar opinberir starfsmenn. Við búum við þannig kerfi að það er engin ástæða fyrir okkur, og reyndar andstætt okkar hagsmunum, að leggja okkur á nokkurn máta fram í okkar starfi. Hvers vegna skyldum við leggja okkur alla fram um að afla okkur þekkingar á því, hvar innflutningsverð er hagkvæmast að fá? Hvers vegna ættum við að leggja það á okkur að auka við okkur mannafla eða leggja á okkur meiri vinnu við að rannsaka hvar lægst innflutningsverð er? Hvers vegna ættum við að hafa fyrir því að gera t.d. sérstakar verðkannanir, sérstök útboð í því skyni að tryggja okkur lægst verð? Við höfum að sjálfsögðu engra hagsmuna að gæta í því, vegna þess að þeim mun lægra sem innflutningsverðið er, þeim mun minni er okkar hlutur. Kerfið sem okkur er boðið upp á af ríkisstjórn eftir ríkisstjórn er þess eðlis að við erum raunverulega hvattir til þess að láta kyrrt liggja, að sætta okkur við að þegar við flytjum inn vöru frá Taiwan komi hún inn í gegnum þriðja aðila í Danmörku, þegar við flytjum inn vöru frá Suður-Afríku komi hún í gegnum þriðja aðila frá Hamborg. Við erum hvattir til þess að leita sem allra óhagkvæmastra og hæstra innflutningsverða. Þeim mun hærra sem innflutningsverðið er, þeim mun meiri er okkar prósentvís álagning og meiri von til þess að sú álagning dugi fyrir kostnaði við kaup og dreifingu. Við erum m.ö.o. opinberir starfsmenn. Okkar líf er ákaflega náðugt. Við þurfum ekkert fyrir því að hafa, eins og starfsmenn í innflutningsverslun í samkeppnisríkjum, eða að leggja okkur alla fram um það í grimmilegri samkeppni fyrir hönd okkar neytenda að leita að lægstu innflutningsverði. Þvert á móti. Og ef það skyldi nú fara svo að þið Alþfl.-menn næðuð einhverjum áhrifum, t.d. á stjórn mála í viðskrn., ætla ég bara að biðja ykkur lengstra orða um að vera ekki að breyta þessu. Núverandi kerfi undir stjórn hæstv. viðskrh. þáv., Svavars Gestssonar kommissars Alþb., dugar okkur nefnilega alveg prýðilega. Við erum hæst ánægðir með það, og í guðanna bænum farið þið ekki að breyta því.

Þetta var kjarni málsins hjá þessum skynsama og málsnjalla talsmanni heildverslunar á Íslandi. (Gripið inn í: Getum við ekki fengið nafnið á þessum manni.) Það getur vel verið. Það er ekkert leyndarmál. (Gripið inn í: Var þetta Björgvin Schram?) Nei, nei. Umræddur maður heitir Jóhann Ólafsson. Þetta var á opinberum fundi og ég viðurkenni að mér þótti þessi málflutningur athyglisverður. Ég man ekki betur en ég hafi skýrt frá honum í blaðagreinum síðar. En það vakti enga athygli, man ég, hæstv. þáv. viðskrh. Svavars Gestssonar, sem hafði eyrun og augun lokuð fyrir þessu sem öðru meðan hann sat í viðskrn. A.m.k. eftir því sem sýnilegt varð almenningi utan frá.

Herra forseti. Þetta mál vísar til þessarar skýrslu, sem að sjálfsögðu kom upp um reginhneyksli á sinni tíð, það hneyksli að fyrirkomulag innflutningsverslunar og það kerfi sem stjórnvöld á Íslandi hafa lögboðið hér hefur brugðist íslensku þjóðinni og brugðist íslenskum neytendum árum og áratugum saman. Mjög rækilegar umræður í blöðum og á mannfundum fyrir kosningar 1979 báru engan árangur í þá átt að knýja stjórnmálaflokka til að taka afstöðu til þess sem er kjarni þessa máls. Hver er kjarni málsins? Hann er þær niðurstöður, sem höfundar skýrslunnar komast að, að innflutningsverðið er svo miklu hærra á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum. Og í annan stað, að sú staðreynd hefur auðvitað veruleg áhrif í þá átt að skýra, ásamt með svo mörgu öðru, að verðbólguþróun hér er miklu meiri en annars staðar. Og þeir nefna ótal dæmi um þetta og að því leyti er skýrslan fróðleg. En að lokum draga þeir saman niðurstöður sínar og spyrja: Hvað er til ráða? Hvaða úrbætur í þessu efni eru það sem höfundar skýrslunnar lögðu fram fyrst og fremst?

Þeir segja svo á bls. 13 í grg. þessa frv., þar sem vitnað er til skýrslunnar sjálfrar, með leyfi forseta:

„Í fyrsta lagi hefur hið lítt sveigjanlega hundraðstöluálagningarkerfi, sem notað hefur verið um áratugaskeið, ekki verið hvetjandi þar sem tekjur innflytjandans hafa greinilega minnkað við að gera hagkvæm innkaup.

Í öðru lagi hefur kerfinu í mörgum tilvikum verið beitt á þann veg að álagningu hefur verið haldið mjög lágri með þeim afleiðingum að innflytjendur hafa farið inn á þá braut að hækka upp innkaupsverð erlendis. Á þann hátt hafa þeir bætt sér upp lága álagningu.“ Þetta eru þær tvær meginniðurstöður sem höfundar skýrslunnar komast að. Því næst spyrja þeir sjálfa sig: Hvað er þá til ráða? Eigum við að ganga lengra á þeirri braut sem þegar hefur verið mörkuð, þ.e. lengra á þeirri braut að ákvarða verðlagningu og verðmyndun í innflutningsverslun og þá hugsanlega smásölu líka, með lögum? Af því höfum við sjálfir langa og ótvíræða reynslu og niðurstaðan er sú, að það kerfi hefur brugðist okkur, brugðist neytendum, brugðist þjóðinni. Engu að síður segja þeir: Það er tveggja kosta völ: Annars vegar að halda áfram á sömu braut eða að fikra sig áfram í aðra átt með því að taka upp frjálsari viðskiptahætti, a.m.k. í þeim greinum þar sem ástæða er til að ætla að um einhverja raunverulega samkeppni sé að ræða. Höfundar taka það skilmerkilega fram, að við aðstæður sem þá voru ríkjandi, þ.e. í stjórnlausri óðaverðbólgu, 60–70%, höfðu þeir ekki trú á því að afnám núverandi kerfis og innleiðing frjálsra viðskiptahátta á grundvelli samkeppni mundi duga til. En þeir stungu upp á að gerðar yrðu tilraunir með það í þeim greinum þar sem samkeppni er — ástæða er til að ætla að hún sé raunverulega fyrir hendi — hvaða árangri það kerfi skilaði. Og það er í raun og veru meginniðurstaða skýrslunnar.

Það er auðlesið af texta þessara aðila að venjur sem skapast hafa í innflutningsverslun eru óþolandi með öllu. Það er óþolandi með öllu að íslensk stjórnvöld skuli hafa horft upp á árum saman og látið líðast t.d. ólöglega hækkun umboðslauna erlendis, sem í mörgum tilvikum felur í sér alveg ótvírætt brot á lögum og reglum um gjaldeyrisskil og brot á skattalöggjöf. Spurningin er sú: Hvaða leiðir á að fara til þess að kveða niður þessa óeðlilegu og spilltu viðskiptahætti, sem fram er tekið í skýrslunni að hafi verið á vitorði og með vitneskju yfirvalda á Íslandi a.m.k. rúman áratug? Höfundar skýrslunnar virðast vera þeirrar skoðunar, að einföld lagasetning dugi ekki til. Þeir hafa ekki trú á að sú leið, sem við höfum þegar mikla reynslu af, dugi. Það vantar ekkert upp á að það eru lög gegn þessu. Spurningin er, hvernig á að framfylgja þeim lögum og hvernig kerfi á að taka upp, sem stuðlar að því að viðskiptahættir af þessu tagi líðist ekki.

Að lokum, herra forseti: Höfundar þessarar skýrslu lýsa greinilega vantrú sinni á þeim ramma sem löggjafinn og stjórnvöld hafa búið innflutningsversluninni. Þá á ég við þá hluti sem ég hef þegar minnst á, þetta prósentuálagningarkerfi sem raunverulega felur í sér hvatningu til óhagkvæmra innkaupa og verðlagseftirlit sem fyrst og fremst beinist að smásöluverslun, en slíkt verðlagseftirlit kallar á gífurlegan mannafla ef það á að skipta nokkru máli eða vera raunhæft. Þeir leggja þvert á móti til, að um leið og gerðar verði tilraunir í þeim greinum þar sem samkeppni er um að ræða um hvort samkeppnin geti knúið innflytjendur til lækkunar á vöruverði í þágu neytenda eins og reynslan sýnir að hún gerir í öðrum löndum, þá verði ekki felld niður löggjöf um verðlagseftirlit og Verðlagsstofnun, en störfum hennar breytt með þeim hætti að höfuðáherslan verði lögð á að fylgjast einmitt með samningum um innflutningsverðlag, fylgja eftir þessari skýrslu, þar sem bent er á helstu meinsemdirnar í innflutningsversluninni, með því að beita meiri mannafla og meiri fjármunum til þess að fylgjast með innflutningsverðlaginu. — Fyrir nú utan það að örva verðskyn neytenda, eins og menn oft hafa gert ráð fyrir, með reglubundinni birtingu á verðsamanburði innanlands.

Í lok þessarar skýrslu er að finna ýmsar ábendingar frá höfundum, sem eru efnisatriði þessa frv. til l. Þar er átt við tillögur um að breyta ákvæðum sem nú eru í gildi um útgáfu verslunarleyfa, um skilyrði af löggjafans hálfu fyrir veitingu verslunarleyfa, í þriðja lagi um eftirlit með verslunarleyfishöfum og gjöld fyrir verslunarleyfi og fyrirgerð verslunarleyfa að fenginni reynslu um brot á slíkri löggjöf.

Herra forseti. Það sem vekur athygli mína við flutning á þessu frv. er fyrst og fremst það, að höfundur skuli ekki taka afstöðu til þess sem höfundar skýrslunnar frægu töldu vera meginatriði málsins, kjarna málsins: Hvaða leið eigum við að fara til þess að tryggja neytendum á Íslandi sambærilegt vöruverð við neytendur meðal grannþjóða okkar? Hann birtir eingöngu í þessu frv. tiltölulega minni háttar tillögur, svo sem eins og um útgáfu og skilyrði fyrir veitingu verslunarleyfa. Það kann vel að vera að þau ákvæði úr löggjöf frá 1968 megi endurskoða, en frv. sem slíkt, úr því að það byggir á annað borð á þessari úttekt verðlagsstjóraembættisins á verðmyndunarkerfinu, leiðir algerlega hjá sér að taka afstöðu til þess hvaða leiðir flm. boðar að því marki að tryggja íslenskum neytendum lægra verð. Þetta eitt út af fyrir sig, skriffinnskuaðgerðir af þessu tagi, kann að vera gagnlegt, en hefur sáralítil áhrif í þá átt að ná fram því markmiði að tryggja neytendum lægra vöruverð — sáralítil áhrif ef nokkur. Það sem vantar í þetta frv. er að höfundur frv., hv. 3. þm. Reykv. og formaður Alþb., geri grein fyrir því: Hver er afstaða hans, hver er stefna hans og hans flokks í verðmyndunarmálum? Hver er afstaða hans til þeirrar tillögu höfunda skýrslunnar að gerðar skuli tilraunir í þeim greinum þar sem við getum gert okkur vonir um að um einhverja samkeppni sé að ræða með frjálsari viðskiptahætti og sú tilraun síðan látin skera úr um framhaldið? Ef sú tilraun leiðir í ljós að hún skili neytendum lægra vöruverði í þessum samkeppnisgreinum en lögbindingarkerfið hefur gert s.l. áratug, er þá flm. og formaður Alþb. í fyrsta lagi reiðubúinn að styðja þá till. höfundanna að þessi tilraun verði gerð og í annan stað, ef niðurstöður eru jákvæðar, að fylgja því eftir með því að auka samkeppnina í fleiri greinum? Kjarni málsins er sá, að hér er flutt frv. byggt á fimm ára gamalli skýrslu, lagt fram af hæstv. fyrrv. viðskrh. eftir að hann hefur látið af völdum, skýrslan birt í heild sinni, en síðan flutt frv. sem aðeins snýst um minni háttar atriði. Ég leyfi mér þess vegna að beina þeim spurningum til hv. þm. og flm.: Hver er afstaða hans til þess sem er meginatriðið í tillögugerð höfunda skýrslunnar frægu frá árinu 1978?