29.11.1983
Sameinað þing: 26. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1224 í B-deild Alþingistíðinda. (1074)
397. mál, eftirlit og mat á ferskum fiski
Fyrirspyrjandi (Skúli Alexandersson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. mjög greinargóð svör við spurningum mínum og fagna þeim upplýsingum sem komu fram um það hvað er verið að gera á vegum rn. í sambandi við könnun og betri undirbúning að því að ganga betur um sjávarafla.
En um hinn þáttinn, þ.e. í sambandi við þá kvikmynd sem mikið hefur verið til umræðu og gerð var af sjútvrn. um vinnubrögð um borð í skipi, hvort halda eigi áfram að sýna hana þrátt fyrir það að ráðh. hafi nú hér lýst því yfir að vinnubrögð í þeirri mynd séu brot á reglugerð um meðferð fisks, það svar fannst mér frekar einkennilegt. Að ráðh, geti lýst því yfir hér á Alþingi að það sé hægt að nota sem fræðslukvikmynd kvikmynd sem sýnir röng vinnubrögð. Ég veit ekki hvað væri hægt að ganga langt í þessu ef slíkt ætti að ganga út á víðari veg. Ég sé ekki að það sé nokkur munur á því hvort þarna sé verið að brjóta reglugerð eða brjóta lög með einhverjum öðrum hætti. Það mætti alveg eins gera mynd sem sýndi það að fiskur væri ekki blóðgaður. Kvikmyndagerð sem sýnir röng vinnubrögð til þess að kenna bætt og betri vinnubrögð er dálítið einkennileg, hvað þá ef sýnd eru vinnubrögð sem ekki standast lög og reglur.
Ráðh. upplýsti að í gangi væru tilraunir til að kanna hvort þessi sérstöku vinnubrögð skiptu máli. Hann sagði að verið væri að gera tilraun með að þvo fisk í 15 mínútur með öðrum hvorum þessara vinnubragða, annaðhvort með því að fiskurinn væri blóðgaður strax og látinn bíða eða blóðgaður og slægður í striktotu. Ég get ekki séð að það geti nokkurn tíma átt sér stað að um borð í íslensku fiskiskipi getum við leyft okkur þann lúxus að láta fisk sem verið er að taka úr veiðarfæri liggja í vatni í 15 mínútur. Það er algjörlega út í bláinn. slíkur þvottur verður að eiga sér stað á mjög stuttum tíma, stundum 2–3 mínútum, en hægt sé að gera þetta — eða nota þvottaleiðina til þess að ná blóði úr fiski á 15 mínútna tíma, það er alveg fráleitt.
Ráðh. undirstrikaði líka að þessi kvikmynd hefði orðið til þess að umræða hefði orðið meiri um þessi mál en reyndin hefði annars orðið. Ég ber ekki á móti því að viss umræða hefur átt sér stað um kvikmyndina, en ég held að það sé ekki góð leið að koma með illa undirbúna hluti til þess að koma af stað umræðum. Það væri æskilegra að upp væri staðið til að fagna því sem reglulega vel hefði verið gert heldur en þyrfti að standa í því að gagnrýna það sem gert hefur verið vegna þess að það hafi ekki verið nógu vel úr garði gert.