29.11.1983
Sameinað þing: 26. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1225 í B-deild Alþingistíðinda. (1076)
398. mál, Áburðarverksmiðja ríkisins
Fyrirspyrjandi (Kristín S. Kvaran):
Herra forseti. Í lok okt. bilaði hin nýja framleiðslurás Áburðarverksmiðju ríkisins sem tekin var í notkun s.l. sumar. Þegar þessi nýja framleiðslurás bilaði var gamla rásin tekin umsvifalaust í notkun. Fyrir Reykvíkinga og þá sem búa í næsta nágrenni hefur sú stefna að taka þessa gömlu rás í notkun aftur haft mikla þýðingu, þ.e. það stafar mikil umhverfismengun af notkun þessarar rásar. Mengunin frá Áburðarverksmiðjunni hefur valdið miklum óþægindum og hefur verið mikill þyrnir í augum Reykvíkinga og þeirra sem þar búa í næsta nágrenni, auk þess að auðvitað er þessi mengun mjög skaðleg.
Ég vil nú leyfa mér, herra forseti, að vitna í blaðagrein um þetta mál frá 2. nóv. s.l. eftir Þorstein Einarsson verkfræðing þar sem hann segir m.a.:
„Fyrir Reykvíkinga hefur þessi stefna þýtt umhverfismengun af stærðargráðu sem er óþekkt í þeim hópi landa sem við teljum okkur tilheyra. Á undanförnum árum hefur Áburðarverksmiðjan sleppt út í umhverfið 600 tonnum af köfnunarefnistvísýringi á ári. Köfnunarefnistvísýringur er hinn svokallaði guli reykur sem umlykur borgina á góðviðrisdögum.“
Alvarlegasta fullyrðingin í grein Þorsteins er í rauninni sú að hann heldur því fram að verksmiðjan hafi aldrei haft starfsleyfi. Og við nánari athugun kom ekki í ljós að annað væri réttara en það, sem hann heldur fram í sinni grein, að það var ekki hægt að fá upplýsingar um að starfsleyfi væri fyrir hendi. „Það væri forvitnilegt að vita hvaðan verksmiðjan tekur sér heimild til þess að taka gömlu framleiðslurásina í notkun,“ segir Þorsteinn ennfremur í þessari grein. Því spyr ég í framhaldi af þessu:
1. Hefur Áburðarverksmiðja ríkisins leyfi til reksturs gömlu framleiðslurásarinnar?
2. Er ætlunin að í framtíðinni verði starfsleyfi fyrir báðum framleiðslurásunum? Ef svo er mega þá Reykvíkingar — sérstaklega þeir sem flytjast á Grafarvogssvæðið nýja — eiga von á því í framtíðinni að mengun af völdum köfnunarefnistvísýrings og annarra óhreininda, sem rekstur gömlu framleiðslurásarinnar hefur í för með sér, verði varanlegur þáttur í lífi þeirra?