29.11.1983
Sameinað þing: 26. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (1077)

398. mál, Áburðarverksmiðja ríkisins

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Á þskj. 85 er fsp. til landbrh. Í fyrsta lagi: „Hefur Áburðarverksmiðja ríkisins leyfi til reksturs gömlu framleiðslurásarinnar?“ Þessi fsp. var send til Áburðarverksmiðju ríkisins. Ég mun hér lesa upp það svar sem hún sendi. Við fyrstu spurningunni er svarið þannig:

„Ekki er alveg ljóst hvað átt er við með fsp., en reynt skal að gera grein fyrir hvernig mál varðandi starfsleyfi standa.

Þegar Áburðarverksmiðja ríkisins tók til starfa snemma árs 1954 þurfti ekki sérstök starfsleyfi stjórnvalda til reksturs slíkrar verksmiðju. Var nægilegt að Alþingi hafði ákveðið að verksmiðjan skyldi reist og starfrækt. Með reglugerð nr. 164/1972, um varnir gegn mengum af völdum eiturefna og hættulegra efna, útgefinni af heilbrrh., var hins vegar ákveðið að sérstök starfsleyfi heilbrrn. þyrfti til reksturs slíkrar verksmiðju. Skyldi umsókn um starfsleyfi berast Heilbrigðiseftirliti ríkisins fyrir hönd rn. fyrir 1. nóv. 1972. Var umsókn um starfsleyfi fyrir Áburðarverksmiðju ríkisins í heild ásamt tilheyrandi gögnum send 25. okt. 1972. Við þeirri umsókn hefur svar ekki borist enn.

Hinn 25. maí 1977 var Heilbrigðiseftirlitið minnt á umsókn Áburðarverksmiðjunnar um starfsleyfi og óskað eftir afgreiðslu. Málið var enn ítrekað með bréfi Áburðarverksmiðjunnar til Heilbrigðiseftirlitsins 2. apríl 1979, en eins og fyrr segir án árangurs.

Á árinu 1979 var ákveðið að endurnýja eina af fimm verksmiðjum í framleiðslurás Áburðarverksmiðjunnar. Var það saltpéturssýruverksmiðja. Í samræmi við framangreinda reglugerð nr. 164/1972 var sótt um starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlitsins fyrir þá nýbyggingu og var það gefið út 2. jan. 1981. Er því ljóst að hin nýja saltpéturssýruverksmiðja er eini hluti Áburðarverksmiðjunnar sem enn hefur fengið formlegt starfsleyfi. Á meðan beðið hefur verið eftir afgreiðslu starfsleyfis fyrir Áburðarverksmiðju ríkisins í heild hafa verksmiðjur fyrirtækisins að sjálfsögðu verið starfræktar á sama hátt og frá upphafi. Hefur verið litið svo á að það væri leyfilegt á meðan starfsleyfisumsóknin væri til afgreiðslu og athugasemdir ekki gerðar við reksturinn að öðru leyti. Verður því að líta svo á að rekstur gömlu framleiðslurásarinnar sé leyfilegur.“

Önnur spurningin er, fyrsta setningin: „Er ætlunin að í framtíðinni verði starfsleyfi fyrir báðum framleiðslurásunum?“ Þessari spurningu getur Áburðarverksmiðja ríkisins að sjálfsögðu ekki svarað. Svara við henni hlýtur að vera að leita hjá heilbrrn. Síðari hluti spurningarinnar er svona: „Ef svo er mega þá Reykvíkingar — sérstaklega þeir sem flytjast á Grafarvogssvæðið eiga von á því í framtíðinni að mengun af völdum köfnunarefnistvísýrings og annarra óhreininda, sem rekstur gömlu framleiðslurásarinnar hefur í för með sér, verði varanlegur þáttur í lífi þeirra?“

Þessari spurningu getur Áburðarverksmiðja ríkisins heldur ekki svarað. Hins vegar má benda á að til er hjá Hollustuvernd ríkisins ítarleg skýrsla um mælingar á köfnunarefnisoxíðum í nágrenni Áburðarverksmiðju ríkisins, „Niðurstöður og mat“, dags. nóv. 1982. Er þar að finna athyglisverðar staðreyndir um mengun frá Áburðarverksmiðjunni og öðrum mengunarvöldum að því er köfnunarefnisoxíð varðar. Er bent á að leita upplýsinga hjá Hollustuvernd ríkisins til þess að svara þessum hluta spurningarinnar.

Ég hef fengið hér í hendur þessa skýrslu sem er árs gömul nú. Hún er mjög löng svo að ekki eru tök á að rekja hana ítarlega. Ég vil þó lesa hér nokkrar setningar úr ályktun sem þar er dregin í niðurlagi skýrslunnar. Þar segir fyrst:

„Niðurstöður hér á undan benda ekki til þess að köfnunarefnisoxíðmengun frá Áburðarverksmiðju ríkisins sé yfir þeim stöðlum sem taldir eru vera áhyggjumörk í ytra umhverfi.“

Og síðar: „Af þessu virðist mega ráða að bílaumferðin í Reykjavík sé ekki síður en Áburðarverksmiðjan mengunarvaldur þegar um er að ræða köfnunarefnisoxíð í umhverfinu, en dreifing mengunarefnanna er með mjög ólíkum hætti.“

Og rétt síðast segir síðan: „Almennt má út frá niðurstöðum mælinganna álykta að þá mengun sem mældist í ca. 2 km fjarlægð frá verksmiðjunni sé í flestum tilfellum mjög erfitt að rekja beint til hennar. Miklu frekar virðast mælingar benda til þess að það séu verksmiðjan og bílaumferðin í þéttbýlinu í sameiningu sem viðhalda ákveðinni mengun af völdum köfnunarefnisoxíðs á svæðinu. Mengun þessi er ekki yfir áhyggjumörkum enn þá.“

Ég les þetta upp vegna þeirrar fullyrðingar, sem fram kom í þessari spurningu að vissu leyti og síðan í máli hv. fyrirspyrjanda, að þetta sé ekki rétt sem segir hér í skýrslu Hollustuverndar, en ekki vegna þess að ég telji ekki æskilegt að þessi guli reykur sé nú horfinn. Miklu fremur fagna ég því að þarna er komin ný verksmiðja sem er öðruvísi útbúin og vonast áreiðanlega allir til þess að hún muni ganga sem best og ekki þurfi aftur að verða breyting á, heldur séum við varanlega laus við hinn gula lit, enda þótt Hollustuvernd ríkisins telji að þarna hafi ekki verið um að ræða mengun yfir hættumörkum.