29.11.1983
Sameinað þing: 26. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1232 í B-deild Alþingistíðinda. (1083)

97. mál, skattheimta sveitarfélaga

Þórður Skúlason:

Herra forseti. Ég þykist vita að það sem rekur fyrirspyrjandann til þess að bera fram þá fsp. sem hér er á dagskrá sé hin miskunnarlausa kjaraskerðing, sem núv. ríkisstj. hefur beitt sér fyrir og bitnar harðast á láglaunafólki í þessu landi, og þær áhyggjur sem hún hefur þá væntanlega af afkomu heimilanna og hvernig launafólk geti risið undir þeirri kjaraskerðingu. Þetta hygg ég að sé undirrót þeirrar fsp. sem hér er til umr.

En það eru fleiri hliðar á þessu máli og mig langar til að nota tækifærið til að vekja athygli á gífurlegum vanda sveitarfélaganna í landinu, a.m.k. sumra þeirra. Sá vandi stafar fyrst og fremst af verðbólgunni, sem hér hefur geisað undanfarin ár, en hann stafar líka öðrum þræði að því hvað tekjustofnarnir nýtast sveitarfélögunum misjafnlega. Ég hygg að það bitni enn verr á minni sveitarfélögum en þeim stærri. En höfuðfjárhagsvandi sveitarfélaga er verðbólgunni að kenna. Við vitum að helsti hluti skatttekna sveitarfélaganna miðast við aflafé fyrri ára, en útgjöldin fylgja kostnaðarhækkunum ársins. Hlutfall sveitarfélaganna til eignabreytinga miðað við tekjur var á árinu 1981 30.7%, á árinu 1982 var það 27% og spáin fyrir árið 1983 er 22%. Tekjuhækkun er mun minni en hækkun rekstrargjalda. Í ár er áætlað að hækkun rekstrargjaldanna sé 68%, en hækkun tekna 58%. Afleiðingin af þessu er mjög erfið fjárhagsstaða, eins og ég gat um áðan. Það er samdráttur í framkvæmdum hjá sveitarfélögum og það eru gífurlegir greiðsluerfiðleikar. Það er mikil hætta á að það verði dregið úr þjónustu, sem bitnar þá e.t.v. mest á þeim sem síst skyldi, — þjónustu eins og rekstri barnaheimila og þvílíkri þjónustu.

Þá má geta þess, að það er mikil óvissa um innheimtu hjá sveitarfélögum vegna rýrnandi kaupmáttar og að hjá sveitarfélögunum hefur orðið gífurleg skuldasöfnun undanfarin ár. Vissulega kemur minni verðbólga sveitarfélögunum til góða og bætir hag þeirra. Því er spáð núna að verðbólgan fari minnkandi og því hefur reyndar verið spáð áður, og ég vara við því að taka allt of mikið mark á því, en spá Þjóðhagsstofnunarinnar er sú, að verðbólga fari snöggt um minnkandi á næstunni.

Hins vegar vil ég vekja athygli á að þar er langt frá því að öll kurl séu komin til grafar. (Forseti hringir.)

Herra forseti. Ég ætla aðeins að bæta við. Ég held að nauðsynlegt sé að gefa sveitarfélögunum nú svigrúm til að bæta stöðu sína, sem hefur farið gífurlega versnandi á undanförnum árum. Ég vil benda mönnum á: Hvers vegna er nauðsynlegt að hafa forsjá Alþingis með sveitarstjórnunum, sem eru stjórnvald kosið af þegnunum í sveitarfélaginu samkv. lögum og ættu að hafa besta yfirsýn yfir hag íbúanna og fjárhagslega stöðu þeirra og sveitarsjóðanna?