19.10.1983
Efri deild: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í B-deild Alþingistíðinda. (110)
26. mál, fjármálaráðstafanir til verndar lífskjörum
Stefán Benediktsson:
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð, því að það er nánast eins og að berja hausnum við steininn að vera að deila um lög sem þegar er farið að brúka.
Það er sagt um þessa stjórn, sem nú situr, að hún sé sterk, og ef maður horfir á þingstyrk hennar virðist hún hafa krafta í kögglum. En það virðist oft vera þannig, að ekki fara í raun saman kraftar og skynsemi. Það kemur mjög greinilega fram á þeim úrræðum sem þessi stjórn greip til í vor að þau eru flestöll glundroðakennd og í raun og veru engar lausnir á neinu. Maður hefði haldið að á því alvarlega augnabliki, sem menn álitu allavega að vorið í vor væri, þegar holskefla efnahagslífsins skal yfir fólk, hefðu menn talið nauðsynlegt að taka til í íslensku efnahagslífi.
Það að rétta launþegum rúmlega 100 kr. á mánuði sem persónuafslátt til uppbótar vegna þeirra kjaraskerðinga, sem þeir höfðu orðið fyrir, verka nánast eins og brandari á fólk. Svo eru sett einhver undarleg aldursmörk fyrir því hvernig barnabótum skuli skipt milli manna. Það er hægt að nefna einhverjar skýringar til þess að reyna að verja það, en þær skiljast aldrei. Maður teldi t.d. eðlilegra að það væri þá frekar miðað við einhver tekjumörk, því að alveg má sjá það fyrir sér, þó að ekki sé horft lengra í kringum sig en bara á þennan þingheim, að hér eru nokkrir aðilar innandyra sem fá þennan barna- og bótaauka og þurfa lítið sem ekkert á honum að halda.
Í framhjáhlaupi hefði mig reyndar gjarnan langað til að fá svör hjá fjmrh., en nú veit ég ekki alveg hvort hann er þess megnugur á þessum stað og þessari stundu að svara þeim spurningum. Mér skildist fyrir nokkrum árum, þegar barnabótagreiðslum var breytt, í sama skipti og þegar framtöl hjóna voru aðskilin, að það væri ætlunin að barnabætur rynnu að helmingi til karls og helmingi til konu og óskertar, en ég hef t.d. sjálfur orðið var við það á undanförnum mánuðum að barnabætur sem áttu að fara til kvenna hafa einfaldlega verið teknar upp í opinber gjöld karlmanns þegar hann er eina fyrirvinnan.
Lífeyrisbótum lífeyristrygginga til ellilífeyrisþega hefur hv. 2. þm. Austurl. þegar gert skil og ég get ekki bætt þar um betur. Þar er aðeins eitt atriði til viðbótar: Mæðralaun hækka með einu barni um 100%, með tveimur börnum og fleiri um 30%. Maður hefði haldið að hækkunin hlyti í raun og veru að verða meiri eftir því sem börnunum fjölgaði. Þörfin hlýtur að aukast.
Síðan er það 3. gr. þessara laga, sem er í raun og veru dæmigerð fyrir það framhald sem vænta má af þessari ríkisstjórn, að enn þá detta menn ofan á þá einu gamalkunnu lausn að halda áfram álíka vitleysu og niðurgreiðslu. Hvers vegna í ósköpunum er ekki hægt að leggja fram sæmilega skynsamlegar tillögur um að styrkja menn í því að auka og bæta sinn húsakost með tilliti til aukinnar orkunýtingar, þannig að þessara niðurgreiðslna verði ekki þörf eða allavega sem minnst þörf? Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta, því eins og ég sagði áðan er kannske ekki tilefni til að ræða lengi um þessa hluti, sem þegar eru orðnir.