30.11.1983
Neðri deild: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í B-deild Alþingistíðinda. (1119)
85. mál, sveitarstjórnarkosningar
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Frv. það til l. um sveitarstjórnarkosningar sem hér liggur fyrir á þskj. 90 er samið af nefnd sem þáv. félmrh. skipaði þann 13. júní 1981 til að endurskoða sveitarstjórnarlög, lög um sameiningu sveitarfélaga og sveitarstjórnarkosningar.
Eins og fram kemur í aths. með frv. er lagt til að sett verði sérstök lög um sveitarstjórnarkosningar í stað gildandi laga um sama efni, nr. 5 frá 7. mars 1962, þar sem safnað væri saman ákvæðum úr þeim lögum og ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 58/1961, um sveitarstjórnarkosningar, auk viðbótarákvæða að því leyti sem menn teldu efni til að víkja frá atmennum reglum laga um alþingiskosningar nr. 52/1959.
Helstu nýmæli og breytingar frá því sem verið hefur, sem frv. gerir ráð fyrir, eru:
Kjördagur verði sá sami í öllum sveitarfélögum, þ.e. síðasta laugardag í aprílmánuði í stað síðasta laugardags í maímánuði eins og nú gildir, þar sem 3/4 hlutar íbúa sveitarfélags búa í þéttbýli, og síðasta laugardags í júnímánuði í dreifbýlishreppum. Þetta er veruleg breyting og hefur verið lögð mikil vinna í það í endurskoðunarnefndinni að samræma sjónarmið sveitarstjórnarmanna í landinu um þetta atriði. M.a. var öllum sveitarstjórnum skrifað bréf um þetta atriði. Niðurstaðan sem hér er fengin, að hafa sama kjördag alls staðar síðasta laugardag í aprílmánuði, er byggð á þeirri úttekt.
Kosningaaldur er lækkaður úr 20 árum í 18 ár. Nýkjörin sveitarstjórn taki við störfum 15. næsta mánaðar eftir kjördag, þ.e. u.þ.b. tveim vikum eftir kosningar. Þetta er lagt til til að auðvelda stjórnarskipti. Með þessu gefst hinni nýkjörnu sveitarstjórn nokkurt svigrúm, t.d. til að kjósa oddvita eða ráða sveitarstjóra, og ekki fer þá milli mála að sú skipan á framkvæmdastjórn sveitarfélagsins sem verið hefur helst fram yfir kosningar. Hér er reynt að koma í veg fyrir það óvissuástand sem vissulega skapast þegar kosningar eru kærðar, vegna þess að umboði fráfarandi sveitarstjórnar lýkur um leið og kosningar hafa farið fram. Þá er einnig kveðið á um sérstakar reglur um meðferð sveitarstjórnarmála meðan úrslit kosninga eru í óvissu, þannig að heimild sveitarstjórnar sem situr á þessu óvissutímabili til að inna af hendi greiðslur og gangast undir skuldbindingar er takmörkuð.
Kosningar verða ekki úrskurðaðar ógildar nema ætla megi að það sem áfátt er hafi haft áhrif á kosningaúrslit, jafnvel þó frambjóðandi hafi átt í hlut. Þetta ákvæði er sett vegna þess að sú regla felst í 2. mgr. 136. gr. laga nr. 52/1959, um kosningar til Alþingis, að ógilda beri kosningu þm. vegna galla á framboði eða kosningu sem hann sjálfur, umboðsmenn hans eða meðmælendur hafa átt vísvitandi sök á, þótt ekki verði ætlað að misfellurnar hafi haft áhrif á úrslit kosninganna enda séu misfellurnar verulegar. Ekki er talin sama ástæða til þessarar reglu í sveitarstjórnarkosningum og í alþingiskosningum.
Sérstök kjörnefnd fari með úrskurðarvald um gildi kosninga í stað sveitarstjórnar áður, þar eð ótryggt sé að hún fái litið hlutdrægnislaust á málavexti. Í þessu sambandi hefur verið rætt um að fela fráfarandi sveitarstjórn, umboðsmanni ríkisins með eða án „meðdómenda“ eða yfirkjörstjórn samkv. 9. gr. laga um alþingiskosningar þetta verkefni, en hér er gerð till. um að umboðsmaður ríkisins nefni þrjá menn til að gegna þessu starfi einungis í þeim tilvikum þegar gildi kosningar er dregið í efa. Með þessu er talið tryggt að þeir sem fara með þetta úrskurðarvald séu fullkomlega óhlutdrægir.
Af öðrum breytingum má nefna þá sem fram kemur í 3. mgr. 2. gr. um að ef einungis komi fram einn framboðslisti skuli framboðsfrestur framlengdur um tvo sólarhringa. Þetta ákvæði er sett hér inn vegna þess að reynslan hefur sýnt að það getur komið mönnum á óvart að einungis einn framboðslisti komi fram og vera má að sú niðurstaða að listi verði sjálfkjörinn sé ekki í samræmi við vilja kjósenda í viðkomandi sveitarfélagi.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að eyða miklu máli í að skýra þetta frv. út. Athugasemdir eru nokkuð greinilegar með frv. og vísa ég til þeirra að öðru leyti.
Ég vil geta þess að endurskoðunarnefndin taldi eðlilegt að setja þetta frv. fram sem sérstakt frv. um sveitarstjórnarkosningar, enda þótt hún telji raunar sjálfsagt að gera þetta frv. um sveitarstjórnarkosningar að sérstökum kafla sveitarstjórnarlaga. Endurskoðunarnefndin er nú að nálgast lokastig í almennri endurskoðun sveitarstjórnarlaganna í heild og vel má svo fara að áður en lýkur umr. hér á hv. Alþingi um þetta frv. verði komið fram frv. til l. um sveitarstjórnarlög almennt, þannig að það gefist þá ráðrúm til að fella þetta frv. að heildarlöggjöf um sveitarstjórnarmál. En það mun koma í ljós. Eðlilegt þótti þó að leggja þetta mál fram þar sem nefndin hafði frá því gengið og ég vænti þess að það fái eðlilega meðferð í hv. Alþingi.
Ég vil, herra forseti, leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. félmn.