30.11.1983
Neðri deild: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (1124)
85. mál, sveitarstjórnarkosningar
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Það eru örfá orð í sambandi við þetta mál sem ég vildi koma á framfæri. Ég hvet þá þingnefnd sem fær þetta mál til meðferðar til að taka frv. til ítarlegrar athugunar, ekki síst 4. gr. þess. Ég segi þetta um leið og ég tek undir varnaðarorð þeirra þm., sem hér hafa tekið til máls, að fenginni reynslu af undirbúningi og framkvæmd síðustu alþingiskosninga, sem fram fóru í lok aprílmánaðar s.l. Það má segja að það hafi í raun verið tilviljun að tókst að kjósa þann dag sem ætlaður var til kosninganna. Dagana næstu á undan var veðrahamur slíkur og ófærð með þeim ódæmum, a.m.k. um norðanvert landið, að það hefði verið frágangssök að kjósa í strjálbýli þá daga. Og þrátt fyrir að veðrið lægði og gerði gott veður kjördaginn urðu gífurlegir erfiðleikar við það að koma fólki á kjörstað og staðreynd er að í ýmsum strjálbýlum sveitarfélögum var kjörsókn lítil. Ég hygg því að það mundi oft þurfa til að koma undantekningarákvæði 4. gr. þess efnis, að heimild yrði notuð til að fresta kjördegi í ýmsum sveitarfélögum vegna veðurs eða vegna ófærðar. Með því er auðvitað ekki náð þeim tilgangi frv. að kosningar til sveitarstjórna skuli fara fram samtímis á öllu landinu.
Ég tel ekki ástæðu til að hafa um þessi efni fleiri orð. Ég vitna aðeins til þeirrar reynslu sem engum kemur á óvart sem byggir strjálbýlli hluta landsins eða a.m.k. norðanvert landið.
Hæstv. félmrh. hefur greint frá því hér, að fram hafi farið skoðanakönnun sveitarstjórnarmanna í maímánuði 1982 um þetta efni. Ég tel með miklum ólíkindum ef sú skoðanakönnun hefur leitt í ljós einróma niðurstöðu sveitarstjórnarmanna um land allt. Ég geri ekki heldur ráð fyrir að unnt væri að fá einróma niðurstöðu sveitarstjórnarmanna eða annarra um einhvern annan kjördag en þann sem hér er tilgreindur. En þrátt fyrir þetta skulu menn ganga að því með opin augun og með skilningi á þeim aðstæðum sem landsmenn eiga við að búa í hinum erfiðari landshlutum á þessum árstíma að hverju hér er stefnt. Því hvet ég hv. félmn. til að athuga þessi atriði sem og önnur atriði frv. mjög gaumgæfilega.