30.11.1983
Neðri deild: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (1125)

85. mál, sveitarstjórnarkosningar

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég tel að mörg atriði í þessu frv. horfi til réttrar áttar, þar á meðal að einn og sami kjördagur skuli gilda til sveitarstjórna á öllu landinu. Það er óeðlileg skipan miðað við nútímahætti og samgöngur að vera að mismuna sveitarfélögum að þessu leyti eins og er samkv. gildandi lögum. Sama gildir um ákvæði 5. gr. varðandi 18 ára kosningarétt og fleiri atriði sem þar koma fram, sem ég er alveg samþykkur.

Ég kvaddi mér hljóðs til að blanda mér aðeins í þá umr. sem fram hefur farið um 4. gr. frv., um tíma fyrir sveitarstjórnarkosningar, og vil að sú skoðun mín komi hér fram, sem ég held að sé skoðun margra og hefur raunar komið fram hér í umr., að óheppilegt sé að velja aprílmánuð til sveitarstjórnarkosninga. Maímánuður er af ýmsum ástæðum líka tæplega til þess fallinn. Því valda m.a. annir í sveitum landsins. En ég sé ekki rök sem mæli sérstaklega gegn því að kosið sé til sveitarstjórna í júnímánuði o þá helst nálægt miðjum júní eða um aðra helgi í júní. Ég tel að það sé æskilegur tími til sveitarstjórnarkosninga, og gæti hið sama gilt um alþingiskosningar. Ég man ekki til þess að nein starfsstétt eða samtök hafi helgað sér sérstaklega t.d. annan laugardag í júnímánuði. Þó kann að vera að bændur landsins hafi efnt til einhvers um þá helgi. Ég man samt ekki til þess. Sjómannadaginn höfðu menn í huga. Það er fyrsta helgi í júní og fyrir því er orðin rík hefð sem óæskilegt er að raska. Því tel ég að önnur helgi júnímánaðar, annar laugardagur í júní, sé skynsamlegur tími fyrir sveitarstjórnarkosningar.

Það kemur raunar fram í aths. við 4. gr. að nefndin, sem samið hefur þetta frv., telur að helst kæmi til álita að velja annan laugardag í júnímánuði eða annan laugardag í októbermánuði og þar segir í framhaldi: „Og var leitað eftir viðhorfum sveitarstjórna um hvorn ofangreindra daga þær teldu heppilegri sem almennan kjördag í sveitarstjórnarkosningum framvegis. Af svörum sveitarstjórnarmanna virðist ljóst,“ segir áfram í greinargerð, „að hvorki getur orðið samstaða milli dreifbýlissveitarfélaga og þéttbýlissveitarfélaga um kjördag í maí né júní og hugmyndin um kosningar að haustinu virðist ekki njóta fylgis. Nefndin leggur hér til að kosningar fari fram samtímis í öllum sveitarfélögum í aprílmánuði og hefur ástæðu til að ætla að sveitarstjórnarmenn muni geta fellt sig við þá hugmynd sem málamiðlun.“

Þetta er því tillaga nefndarinnar. Hún byggir ekki á þessari skoðanakönnun, að séð verði, og ekki eru færð rök fyrir þeirri staðhæfingu, sem fram kemur í þessari greinargerð, að hvorki geti orðið samstaða milli dreifbýlissveitarfélaga né þéttbýlissveitarfélaga um kjördag í maí né júní. Það er sjálfsagt fyrir þá nefnd sem fær þetta frv. til athugunar að átta sig á hvaða upplýsingar nefndin hefur sem renna stoðum undir þá staðhæfingu eða það viðhorf sem þarna kemur fram í grg. Ég á satt að segja bágt með að sjá rökin þar í mót og vona að niðurstaðan geti orðið sú sem ég hef hér nefnt og nefndin hefur hallast að í upphafi áður en hún efndi til skoðanakönnunar.

Ég vil einnig geta þess hér, af því að það er verið að vitna til sveitarstjórna dreifbýlis og þéttbýlis í þessu samhengi, að mál þetta var rætt á fundi samtaka sveitarstjórna á Austurlandi, aðalfundi þess sambands, seint í ágústmánuði s.l. Þar kom fram tillaga varðandi þetta efni einmitt í þá átt, sem ég hef hér rakið, að önnur helgi í júní verði valin til að kjósa til sveitarstjórna. Ég var ekki á fundi þegar tillaga þessi kom til lokaafgreiðslu, en mig minnir að hún hafi hlotið þar samþykki og víðtækan stuðning. En auðvelt er að ganga úr skugga um það.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða hér og nú önnur atriði þessa frv., en nauðsynlegt er að það verði athugað af kostgæfni af þeirri þingnefnd sem það fær til meðferðar.