30.11.1983
Neðri deild: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1289 í B-deild Alþingistíðinda. (1134)

16. mál, stjórnarskipunarlög

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Þær till. sem þetta frv. til stjórnskipunarlaga gerir ráð fyrir, þ.e. annars vegar afnám þingrofsréttar forseta, í reynd forsrh., og hins vegar að heimild ríkisstj. til útgáfu brbl. milli þinga falli niður, hefur þegar hlotið mikla umfjöllun hjá Alþingi. Á s.l. vori urðu hér langar og ítarlegar umr. um þessi mál í tilefni af þá fram lögðum till. um breytingar á stjórnskipunarlögum, fram lögðu frv. um heildarendurskoðun stjskr. Vegna þess að þessi mál voru svo ítarlega rædd þá þykir mér ekki ástæða til að fara um þetta mörgum orðum, aðeins stuttlega drepa á nokkur aðatatriði.

Í fyrsta lagi skal það tekið fram að till. um afnám brbl.-heimildar ríkisstj. mun fyrst hafa verið lögð fram af fulltrúum Alþfl. í stjskrn. þegar stjskr. í heild var þar til endurskoðunar. Það var samkvæmt einróma samþykkt þingflokks Alþfl. Þeirri till. var síðan fylgt eftir hér við afgreiðstu á Alþingi. Sem kunnugt er varð ekki samkomulag um þessa tillögugerð innan stjskrn. né heldur á Alþingi, og eins og vísað hefur verið til þá er niðurstaða í stjskrn. sú að gera eins konar mátamiðlun í þessu efni, þ.e. að ríkisstjórnir skyldu áfram hafa rétt sinn til þess að gefa út brbl., en sá réttur skyldi að nokkru takmarkaður — eða réttur Alþingis varðandi þá umfjöllun heldur aukinn — með því að brbl. skyldu kynnt fyrir þingnefnd, og í öðru lagi að brbl. skyldu lögð fyrir þegar í stað í upphafi þings.

Ég þarf ekki að hafa mörg orð um það að sú till. sem hér liggur fyrir er sú hin sama till. og Alþfl.-menn hafa barist fyrir, að stíga skrefið til fulls og afnema þennan rétt með öllu. Það er því óhætt að lýsa yfir stuðningi okkar Alþfl.-manna við þessa till., enda er hún frá okkur komin.

Hitt atriðið, sem varðar þingrofsréttinn, kann frekar að orka tvímælis. Í umfjöllun stjskrn. varð niðurstaðan sú að færa þingrofsréttinn frá forsrh. til Alþingis. Í till. stjskrn. í því efni segir svo, með leyfi forseta:

„Forseti getur rofið Alþingi með samþykki þess og skal þá stofna til nýrra kosninga áður en 45 dagar eru liðnir frá því að þing var rofið, enda komi Alþingi saman eigi síðar en fjórum mánuðum eftir að það var rofið. Alþm. haldi umboði sínu til kjördags.“

Þetta er sá texti sem stjskrn. náði samkomulagi um í stað hinnar gömlu 24. gr. stjskr. þar sem þingrofsheimildin var í reynd í höndum forsrh.

Til þess hefur verið vitnað að samkvæmt norsku stjskr. er þingrofsréttur enginn. Þinginu er þar lögð sú skylda á herðar að sjá landinu fyrir ríkisstj. og þingið heldur umboði sínu þann tíma sem kjörtímabilið varir, hvað svo sem í kann að skerast. Þessi hugmynd er út af fyrir sig athyglisverð en ég vil af þessu tilefni aðeins vekja athygli á einu atriði sem varð ágreiningsefni milli okkar og BJ í sambandi við endurskoðun stjskr.

Eins og menn minnast þá var kjarni málsins, meginatriðið í till. BJ á síðasta þingi að því er varðaði endurskoðun stjskr. að gera miklu róttækari kerfisbreytingu en í þessu felst. Hún var með öðrum orðum sú að breyta stjskr. á þann veg að æðsti handhafi framkvæmdavaldsins, forsrh., skyldi kosinn beinni kosningu milliliðalaust af þjóðinni. Jafnframt var ráð fyrir því gert að við þær kosningar skyldi atkvæðisréttur vera samkvæmt grundvallarreglunni einn maður/eitt atkvæði. Á hinn bóginn var síðan gert ráð fyrir óbreyttri skipan kosninga að því er varðaði löggjafarvaldið. M.ö.o., við kosningar til Alþingis skyldu kjósendur una því enn að misvægi atkvæðisréttar yrði þar viðhaldið.

Oft var til þess vitnað í þessum umr. að þetta væri að nokkru leyti samkvæmt fyrirmynd svokallaðs fransks kerfis. Nú var mjög rækilega á það bent í umr. hér á Alþingi á s.l. vori að þessar till. væru ekki í samræmi við þá stjórnskipan sem ríkir hjá Frökkum. Þar er aðalatriðið þetta: Í Frakklandi er æðsti handhafi framkvæmdavaldsins, forseti, kjörinn milliliðalaust beinum kosningum, en hann er kosinn samkvæmt nákvæmlega sömu kosningaaðferð eins og kosið er til löggjafarþingsins. Það er mjög þýðingarmikið atriði vegna þess að stjórnlagafræðinga hefur yfirleitt ekki greint á um það að helsta hættan í sambandi við hið franska fyrirkomulag væri sú, að til kynni að koma verulegur árekstur milli annars vegar löggjafarvaldsins og framkvæmdavaldsins, sem gæti verið lamandi í stjórnarfari.

Nú er það svo að til þess að sjá við slíkum hugsanlegum árekstri framkvæmdavalds og löggjafarvalds gerir franska stjskr. ráð fyrir tvennu. Í fyrsta lagi er þingrofsréttinum haldið. Þingrofsréttinum er þar haldið einfaldlega vegna þess að kerfið býður upp á það ástand að til komi algjör árekstur milli handhafa framkvæmdavaldsins og meiri hluta þings, og þá er ráð fyrir því gert að forseti geti gripið til þess að rjúfa þing. Þessi réttur framkvæmdavaldsins er enn áréttaður með 16. gr. frönsku stjskr. sem heimilar forseta að taka sér alræðisvald við vissar kringumstæður og senda þing heim.

Ég nefni þetta hér vegna þess að þó þm. BJ hafi a.m.k. ekki enn á þessu þingi flutt upphaflegar till. sínar, sem var meginefnið í kosningabaráttu þeirra fyrir seinustu kosningar, þá veit ég ekki til að þeir hafi fallið frá því. Ef skoða ber till. um afnám þingrofsréttar í ljósi þess að BJ hyggist flytja áfram till. um að kosið skuli með gjörólíkum hætti til þings og framkvæmdavalds, þá skiptir það miklu máli hvort BJ heldur í því samhengi fast við hugmyndina um afnám þingrofsréttar eða ekki. M.ö.o., ég teldi óhyggilegt, ef menn aðhyllast slíkt kerfi, að afnema þingrofsréttinn. Beinlínis varasamt. Hitt er annað mál, að ef við göngum út frá því sem gefnu að í stórum dráttum búum við áfram við þingræði af því tagi sem við höfum búið við lengi, þá gegnir allt öðru máti um afstöðu manna til þingrofsréttar. Þá er vissulega hægt að rökræða það og vissulega sjónarmið bæði með og móti, hvort skynsamlegt væri að fara þarna að ráðum Norðmanna. En eins og ég hef sagt, ef um væri að ræða róttækari breytingu í líkingu við þær till. sem BJ setti fram á s.l. vori, þá teldi ég varasamt að fylgja þeim eftir með afnámi þingrofsréttar.